Lífið

Ásta Fann­ey til Fen­eyja

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ásta Fanney fer á Feneyjartvíæringinn fyrir Íslands hönd í ár.
Ásta Fanney fer á Feneyjartvíæringinn fyrir Íslands hönd í ár. Vísir/Bjarni

Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að Ásta sé einn af fremstu gjörningalistamönnum landsins og er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í list sinni. Ásamt því að fást við myndlist er hún einnig ljóðskáld og tónlistarkona og blandar saman listformum og ólíkum miðlum, þar má nefna meðal annars kvikmyndir, skúlptúra, hljóðinnsetningar og textaverk. Hún hefur sýnt og flutt verk sín á söfnum og hátíðum víða um heim meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Ars Longa, Onassis og MOT og var tilnefnd til Bernard-Heidsieck-Centre Pompidou verðlaunanna í Frakklandi árið 2021.

Myndin er stilla úr kvikmyndinni Munnhola, obol ombla obla eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur og var frumsýnd á Sequences hátíðinni 2021.

Verk hennar einkennist af næmni og hráleika, þar sem kímni og alvara, hefð og framúrstefna fléttast saman í óræða heild sem umvefur á kunnuglegan en jafnframt framandi hátt og bendir á ný og óvænt sjónarhorn. Hún vinnur gjarnan með hverfulleika og orkusvið í tímatengdum verkum sem birtast og hverfa jafnóðum.

Sjálf segist Ásta vera hafa verið himinlifandi þegar hún fékk þær fréttir að hún hafi orðið fyrir valinu. „Ég var alveg himinlifandi að fá fréttirnar. Mér líður svo vel með þetta allt saman, ég hugsa að ég fagni þessu í Pétursbúð og fái mér mandarínu eða kaffibolla. Svo leyfi ég bara innsæinu að ráða ferðinni, þetta þarf ekki að vera flókið. Einfaldleikinn er oft bestur.“

Ásta Fanney og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.Vísir/Bjarni

Tvíæringurinn í Feneyjum er einn mikilvægasti vettvangur samtímalistar á heimsvísu og það er mikill heiður fyrir þann íslenska myndlistarmann sem valinn er til þátttöku á tvíæringnum hverju sinni.

Ísland hefur tekið þátt í Feneyjatvíæringnum frá árinu 1960. Myndlistarmiðstöð hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd Menningar- og viðskiptaráðuneytisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.