Lífið

Lauf­ey Lín og Bjarki á lista Forbes

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Laufey Lín og Bjarki eru á lista yfir 30 einstaklinga undir 30 ára sem hafa skarað fram úr í tónlistarheiminum á árinu sem er að líða.
Laufey Lín og Bjarki eru á lista yfir 30 einstaklinga undir 30 ára sem hafa skarað fram úr í tónlistarheiminum á árinu sem er að líða.

Tveir Íslendingar eru á lista Forbes tímaritsins yfir þrjátíu einstaklinga yngri en þrjátíu ára sem hafa náð sem mestri velgengni í tónlistarheiminum á árinu sem er senn á enda. Það eru þau Laufey Lín Jónsdóttir og Bjarki Lárusson.

Laufey þarf vart að kynna er yngst til að hljóta Grammy-verðlaun í flokki hefðbundinnar popptónlistar, fyrir breiðskífu sína Bewitched. Platan kom út þann 8. september í fyrra og sló í kjölfarið met hjá Spotify en eftir fyrsta sólarhringinn var plötunni streymt 5,7 milljón sinnum, en það er langmesta spilun sem djassplata hefur fengið á tónlistarveitunni á fyrsta sólarhring eftir útgáfu.

Í júlí var Laufey sæmd Ellu Fitzgerald verðlaunum sem veitt eru árlega á jazzhátíðinni í Montreal í Kanada.

Eins og alþjóð veit hefur stjarna Laufeyjar aldrei skinið skærar.

Sjá: Laufey Lín á lista Forbes

Framúrskarandi tæknilausnir í tónlist

Bjarki er einn af stofnendum tónlistar- og tæknifyrirtækisins Too lost, ásamt Gregory Hirschhorn og Alex Silverstein, sem gerir tónlistarmönnum kleift að spila og dreifa tónlist sinni á öllum helstu kerfum eins og Spotify, Apple Music, TikTok, Amazon Music og Meta rásum - og halda 100% af tekjum sínum.

Too Lost býður tónlistarmönnum aðgang að ítarlegum greiningum á sölu-, streymi- og heildartekjugögnum á stafrænum vettvangi. Þjónustan gerir listamönnum einnig kleift að fá tekjur byggðar á frammistöðu þeirra, þar með talið greiðslum vegna höfundarréttar. 

Fyrirtækið byggir viðskipti sín á blöndu af áskriftum, fjármögnun þóknana, virkjun á stafrænum vettvangi og afgreiðslugjöldum. Þessar lausnir hafa gert Too Lost að arðbæru fyrirtæki, og samkvæmt fyrirtækinu námu heildartekjur þess 22 milljónir dala árið 2023.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í New York, með skrifstofum í Los Angeles, Barcelona og Reykjavík.

Sjá: Too lost á lista Forbes

Á list­an­um er einnig að finna þekkta tón­list­ar­menn á borð við Tyla, Zach Bry­an og Sha­boozey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.