Sport

Mátti ekki tefla í galla­buxum og hættir keppni á heims­meistaramóti

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Magnus að tafli á skákmóti í október.
Magnus að tafli á skákmóti í október. EPA

Magnus Carlsen hefur dregið sig úr keppni í heimsmeistaramótinu í at- og hraðskák, eftir að hafa fengið sekt fyrir að hafa teflt í gallabuxum. Magnus er ríkjandi heimsmeistari bæði í atskák og hraðskák.

Norski fréttamiðillinn Verdens gang hefur þetta eftir Henrik Carlsen, föður og umboðsmanni Magnusar.

Magnus Carlsen hafði þetta um málið að segja:

„Ég kom hingað, síðan fékk ég sekt og viðvörun þess efnis að ég mætti ekki tefla í níundu umferð nema ég myndi skipta um föt eftir umferð þrjú. Ég svaraði þeim og sagðist ætla skipta um buxur á morgun. Þá sögðu þeir að ég þyrfti að skipta núna strax.“

„Þá var þetta orðið prinsipmál fyrir mig.“

200 dollara sekt

Magnus Carlsen tefldi fyrstu tvær skákir mótsins í gallabuxum, en skömmu eftir seinni leikinn fékk hann sekt upp á 200 dollara frá dómara fyrir að brjóta reglur mótsins um klæðaburð.

Heimsmeistaramótið í at- og hraðskák stendur nú yfir í New York, en mótið hófst 26. desember og lýkur þann 31.

Magnus Carlsen er langstigahæsti skákmaður heims í dag, með 2831 FIDE Elo stig þegar þetta er ritað. Hann er af mörgum talinn sterkasti skákmaður allra tíma.

Hann er hins vegar ekki ríkjandi heimsmeistari í klassískri skák. Magnus varð heimsmeistari árið 2013 og vann titilinn samtals fimm sinnum á árunum 2013 - 2021, en hætti keppni í heimsmeistaraeinvíginu árið 2022.  Þá sagðist hann ekki nenna þeirri keppni lengur, hann hefði engan hvata til þess að verja titilinn.

Sumir halda að Carlsen myndi glaður keppa aftur í heimsmeistarmótinu verði fyrirkomulaginu breytt, og horfið verði frá einvígisfyrirkomulaginu. Þá yrði mótið meira í ætt við heimsmeistaramótin í at- og hraðskák.

Nánari umfjöllun um gallabuxnamálið málið má finna á vef VG.


Tengdar fréttir

Yngsti heimsmeistari sögunnar í skák

Indverski skákmaðurinn Gukesh Dommaraju sló 39 ára met Garry Kasparov í dag þegar hann tryggði sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil í skák.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×