Fótbolti

Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Radu Dragusin fór meiddur af velli gegn Nottingham Forest í miðri viku. Það er eitthvað sem hjálpar Ange Postecoglou líklega ekki við að losna við hausverkinn sem fylgir meiðslalista liðsins.
Radu Dragusin fór meiddur af velli gegn Nottingham Forest í miðri viku. Það er eitthvað sem hjálpar Ange Postecoglou líklega ekki við að losna við hausverkinn sem fylgir meiðslalista liðsins. Catherine Ivill - AMA/Getty Images

Meiðslalisti Tottenham Hotspur lengist bara og lengist og í hlutfalli við listann eykst hausverkur þjálfara liðsins, Ange Postecoglou.

Tottenham mætir Wolves í ensku úrvalsdeildinni á morgun og þegar flautað verður til leiks gæti vel verið að liðið verði ekki með einn einasta miðvörð í leikmannahópnum.

Radu Dragusin fór meiddur af velli þegar liðið mátti þola 1-0 tap gegn Nottingham Forest í miðri viku og er hann því fjórði miðvörðurinn sem skráir nafn sitt á sjúkralistann.

Inn á í hans stað kom miðjumaðurinn Yves Bissouma og kláraði hann leikinn ásamt Archie Gray, öðrum miðjumanni.

Dragusin bætist þar með á langan meiðslalista Tottenham, þar sem varnarmenn, og þá sérstaklega miðverðir, virðast vera í aðalhlutverki. Ben Davies, Micky van de Ven og Christian Romero - allt miðverðir - voru fyrir á meiðslalistanum.

Liðið vonaðist til að endurheimta Ben Davies fyrir leikinn gegn Úlfunum, en Postecoglou hefur nú sagt frá því að hann hafi meiðst lítillega aftur á æfingu og verði því líklega ekki með.

Það verður því áhugavert að sjá liðsuppstillinguna hjá Tottenham á morgun. Bakvörðurinn Djed Spence verður í banni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Nottingham Forest og því spurning hvort að fjögurra manna varnarlína Tottenham samanstandi af þremur miðjumönnum og bakverðinum Pedro Porro, eða hvort Postecoglou sæki enn einn guttann úr unglingastarfi félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×