Erlent

Engin grið gefin þeim sem stóðu að pyntingum og morðum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Móðir grætur eftir að hafa fundið einn sona sinna í líkhúsi í Damaskus.
Móðir grætur eftir að hafa fundið einn sona sinna í líkhúsi í Damaskus. AP/Hussein Malla

Leiðtogar uppreisnarmanna sem nú eru við stjórnvölinn í Sýrlandi segja engin grið verða gefin þeim sem báru ábyrgð á pyntingum og morðum í alræmdu fangelsiskerfi stjórnar Bashar al-Assad.

Í yfirlýsingu sem birt var á Telegram segir Ahmed Hussein al-Sharaa, einnig þekktur sem Abu Mohammed al-Jolani, leiðtogi uppreisnarhópsins HTS, að hinir seku verði eltir uppi í Sýrlandi og erlend ríki beðin um að framselja þá sem flýja þangað.

Samkvæmt umfjöllun Guardian hafa uppreisnarmenn unnið að því síðustu tvær vikur að leita að herforingjum og öðrum embættismönnum stjórnar forsetans Bashar al-Assad. Margir þeirra eru sagðir hafa flúið land en talið er að sumir þeirra séu í felum við ströndina, þar sem stuðningur við Assad er mestur.

Guardian segir að nokkur myndskeið sem séu í dreifingu á samfélagsmiðlum virðist sýna dráp á mönnum í herklæðum víðsvegar um Sýrland. Þá hafa þúsundir freistað þess að flýja landið inn í Líbanon og uppreisnarmenn leitað að meðlimum her- og öryggissveita Assad og fjölskyldum þeirra við landamærin.

Leit stendur enn yfir í fangelsum landsins að einstaklingum sem hafa horfið á síðustu árum. Fjöldi líka hefur fundist sem sýna ummerki pyntinga. Þá söfnuðust þúsundir saman í al-Midan í Damaskus í gær, þar sem orðrómur hafði farið af stað um að hengja ætti einn höfuðpauranna á bakvið fjöldamorðið í Tadamon.

Það átti sér stað árið 2013 en upptökur hermanna Assad leiddu í ljós að að minnsta kosti 288 einstaklingar, þar af tólf börn, hefðu verið skotnir og látnir falla í gryfjur sem síðan var kveikt í.

Enn ríkir algjör óvissa um framtíð stjórnskipunar í landinu í kjölfar brotthvarfs Assad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×