Erlent

Þing­maður myrtur í Mexíkó

Samúel Karl Ólason skrifar
Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó.
Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó. EPA/JOSE MENDEZ

Mexíkóskur þingmaður var skotinn til bana í launmorði í Veracruz-ríki á mánudagskvöldið. Benito Aguas, sat á þingi fyrir Græna flokkinn en sá flokkur er aðili að stjórnarsamstarfi sem elitt er af Morena-flokki Claudiu Sheinbaum, forseta, og var hann skotinn ítrekað af morðingja eða morðingjum sínum.

Umfangsmikil ofbeldisalda hefur gengið yfir Mexíkó að undanförnu og á það sérstaklega við nokkur héruð þar sem glæpasamtök eru áhrifamikil. Stjórnmálamenn verða ítrekað fyrir barðinu á glæpamönnum í Mexíkó og þá sérstaklega í tengslum við kosningar en tugir frambjóðenda voru myrtir í aðdraganda kosninga í sumar.

Þá var borgarstjóri í Mexíkó afhöfðaður í október.

Í frétt Reuters er haft eftir Sheinbaum að hún hafi skipað yfirmönnum öryggisstofnana að vinna með ríkisstjóra Veracruz til að ganga úr skugga um að morðinginn eða morðingjarnir finnist og þeim verði refsað.

Í kjölfar þess að áðurnefndur borgarstjóri var myrtur opinberaði Sheinbaum nýja öryggisáætlun sína. Hún hefur einnig sýnt að hún sé viljugri en forveri sinni til að beita hernum og þjóðvarðliðum gegn glæpasamtökum í Mexíkó.

Her Mexíkó hefur orðið mun áhrifameiri í landinu á undanförnum árum.AP/Felix Marquez File)

Glæpamenn í Mexíkó eru margir hverjir mjög vel vopnum búnir. Í mjög einföldu máli sagt hafa glæpagengi þar í landi lengi flutt mikið magn fíkniefna víða um heim og þá sérstaklega til Bandaríkjanna. Frá Bandaríkjunum fá þeir mikið magn peninga fyrir þessi fíkniefni og eru þeir peningar meðal annars notaðir til að kaupa gífurlegt magn skotvopna í Bandaríkjunum og flytja þau til Mexíkó.

Áhrif hersins í Mexíkó hafa aukist að undanförnu, samkvæmt AP fréttaveitunni. Sheinbaum tilkynnti á mánudaginn að sparnaður ríkisins við að loka óháðum eftirlitsstofnunum yrði varið í að hækka laun hermanna. Meðlimir stjórnarandstöðunnar og aðrir hafa gagnrýnt lokun þessara stofnan.

Nýlegur skattur á farþega skemmtiferðaskipa á einnig að fara að mestu til hersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×