Innlent

Dagur strikaður niður um sæti

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Dagur B. Eggertsson er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Kristrún Frostadóttir formaður flokksins leiðir listann.
Dagur B. Eggertsson er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Kristrún Frostadóttir formaður flokksins leiðir listann. Vísir/Einar

Dagur B. Eggertsson var strikaður út eða færður til á lista 1.453 sinnum sem gerir það að verkum að hann færist niður fyrir Þórð Snæ Júlíusson í þriðja sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Örfáir Sjálfstæðismenn strikuðu út Dag og ógildu þannig atkvæði sín.

Heimir Örn Herbertsson, oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, staðfesti þetta við fréttastofu.

„Heildarútstrikanir á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður voru 1.699, það er heildarfjöldi breyttra seðla, sem eru 17,6 prósent af atkvæðatölu listans. Af þeim eru 1.453 seðlar þannig að það eru gerðar breytingar á stöðu Dags, annað hvort hann strikaður út eða hreyfður til um sæti, sem eru fimmtán prósent af atkvæðatölu listans,“ sagði Heimir.

„Þetta er af þeirri stærðargráðu, við getum orðað það sem svo, að okkur sýnist þá að röð frambjóðenda samkvæmt ákvæðum kosningalaga sé þá sú að Kristrún Frostadóttir sé í fyrsta sæti, Þórður Snær Júlíusson í öðru sæti og Dagur B. Eggertsson í þriðja sæti og röðun annarra frambjóðenda óbreytt,“ segir hann.

Hvað með útstrikanir á öðrum frambjóðendum Samfylkingarinnar á listanum?

„Þær upplýsingar sem ég er með varða bara sex efstu sætin, sem fá þessa svokölluðu röðunartölu. Þannig ég er ekki alveg með heildaryfirlit yfir allar útstrikanir en ég get sagt að langflestar útstrikanir vörðuðu Dag og mér sýnist að næstflestar útstrikanir hafi varðað Þórð Snæ Júlíusson en þær voru miklu færri, tæp 300 sýnist mér,“ segir Heimir.

Dagur kemur í Dags stað

Þessar vendingar eru sérstaklega áhugaverðar í ljósi þess að Þórður Snær Júlíusson greindi frá því fyrir kosningar að hann myndi ekki taka sæti á lista Samfylkingarinnar myndi hann ná kjöri. Það þýðir að Dagur dettur niður í þriðja sæti og fer svo aftur upp í annað sæti við brotthvarf Þórðar.

Sjá einnig: Þórður Snær mun ekki taka þingsæti

Annað sem vakti athgyli fyrir kosningar var grín Dags á Facebook þar sem hann hvatti kjósendur Sjálfstæðisflokksins til að strika sig út. Sjálfstæðismenn æstust margir upp við þetta og sökuðu Dag um að brjóta kosningalög og var hann á endanum kærður fyrir brot á kosningalögum.

Voru einhver atkvæði Sjálfstæðismanna ógild vegna útstrikana á Degi?

„Já, þetta er samt bara eithvað sem er byggt á minni. Slíkir seðlar eru náttúrulega ógildir. Það var eitthvað um það að seðlir voru úrskurðaðir ógildir af þessum sökum, að lista Sjálfstæðisflokksins hefði verið greitt atkvæði en nafn Dags Eggertssonar strikað út. Ég hygg þó að þetta hafi ekki verið margir seðlar, það voru einhver dæmi um þetta.

Hvað með útstrikanir á öðrum listum?

„Útstrikanir á listum annarra framboða voru ekki nálægt því að leiða til neinna breytinga á röðun frambjóðenda,“ segir Heimir.

Vegabréfið komið aftur í réttar hendur

Fréttastofa fjallaði á kjördag um vegabréf sem hafði lent ofan í kjörkassanum á kjördag. Viðkomandi þurfti auðvitað að bíða eftir því að kjörkassarnir yrðu opnaðir og atkvæðin talin.

En vegabréfið sem lenti í kjörkassanum?

„Ég held að það sé komið í hendurnar á eigandanum. Þetta var fullorðin kona sem virðist alveg óvart hafa misst vegabréfið sitt ofan í kassann en ég held að það sé komið til skila,“ segir Heimir Örn

Þar fyrir utan gekk öll framkvæmd kosninganna í sögu sem og talningin og frágangur.

„Kosningin gekk mjög vel, viljum við meina. Kjördagurinn sjálfur gekk mjög vel í Reykjavík og sömuleiðis öll vinna við flokkun og talningu og annað,“ sagði Heimir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×