Innlent

Eðli­legt að Krist­rún fái fyrst að spreyta sig á um­boðinu

Lovísa Arnardóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa
Formenn allra flokka á þingi hittu forsetann á Bessastöðum í dag.
Formenn allra flokka á þingi hittu forsetann á Bessastöðum í dag. Vísir/Vilhelm

Formaður Viðreisnar hefur lagt til að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, fái umboð til stjórnarmyndunar. Inga Sæland sagðist treysta Kristrúnu fyrir umboðinu og Sigmundur Davíð að eðlilegt væri að Kristrún fengi fyrst að spreyta sig. 

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, fundaði í dag með formönnum allra flokka sem náðu inn á þing í alþingiskosningunum á laugardag. Dagurinn hófst klukkan níu með Kristrúnu Frostadóttir og lauk svo með Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins. Halla fundaði með formönnum í þeirri röð eftir því hve marga þingmenn flokkarnir náðu inn.

Samfylkingin fékk 20,8 prósent atkvæða og fimmtán þingmenn og er stærsti flokkurinn á þingi.Vísir/Vilhelm

„Þetta var rosalega góður fundur okkar á milli,“ sagði Kristrún að loknum fundi hennar með Höllu. Fyrir fundinn sagði hún við fréttamenn að það væri mörg tækifæri í niðurstöðu kosninganna og að niðurstöður kosninganna væru „ótrúlega áhugaverðar“. Samfylkingin er stærst flokka á þingi eftir kosningarnar með fimmtán þingmenn og 20,8 prósent atkvæða. 

Kristrún sagðist hafa rætt stöðuna í stjórnmálum við Höllu og þá sérstaklega ákall kjósenda um breytingar.

„Ég held það hljóti allir að sjá það að þjóðin er að kalla eftir skýrum breytingum.“

Hún vildi ekkert segja til um það hvort hún fengi umboðið. Eðlilegt væri að forsetinn myndi ræða við alla formennina fyrst.

„Við þurfum líka að leyfa þessum samtölum að eiga sér stað. Mér finnst það mjög eðlilegt,“ sagði Kristrún.

Lykilatriði að ríkisstjórnin sé samhent

Hún sagði lykilatriði að það verði mynduð samhent ríkisstjórn sem geti komist áfram með sín mál. Kristrún sagðist treysta forsetanum til að meta hvað væri eðlilegt.

„Við höfum rætt ýmislegt,“ sagði Kristrún spurð um það hvort hún hafi hitt aðra formenn. Þau hafi hist í útsendingu og svo hafi þau rætt saman í síma. Dagurinn muni leiða næstu skref í ljós en það hafi verið augljóst ákall hjá kjósendum um breytingar.

Verður að geta unnið með umboðið

Að loknum fundi Höllu og Kristrúnar kom Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins á fund forseta. Flokkur hans er annar stærsti flokkurinn á þingi með 19,4 prósenta fylgi og 14 þingmenn. Hann sagði gott fyrir forsetann og formenn að geta talað saman. Hann sagðist ekki leggja sérstakt kapp á það að hann fái stjórnarmyndunarumboðið fyrstur.

„Það er ekkert unnið með því í sjálfu sér að sækjast eftir því og sitja uppi með umboðið og geta svo ekkert gert með það,“ sagði Bjarni.

Að sama skapi sagði hann þann sem væri með umboðið ekkert betur settan ef einhverjir aðrir myndu mynda meirihluta á sama tíma. Það þurfi að huga að praktískum atriðum og formsatriðum.

„En við erum auðvitað tilbúin að axla þá ábyrgð sem fylgir því að vera stór flokkur á þinginu.“

Bjarni sagði Sjálfstæðisflokkinn tilbúinn að axla þá ábyrgð að vera annar stærsti flokkurinn á þingi.Vísir/Vilhelm

Hann sagðist ekki hafa lagt til sérstakt stjórnarmynstur á fundi sínum með Höllu en þau hafi farið yfir niðurstöðuna saman og hvaða möguleikar séu í stöðunni. Það hafi gagnast þeim báðum. Þau hafi svo ætlað að vera í sambandi aftur síðar en sagði enga tímasetningu ákveðna. 

Kristrún fái umboðið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar kom næst og sagði eftir fund sinn með Höllu að hún hefði lagt til að Kristrún fengi umboð til að mynda ríkisstjórn. Hún sagði nýjan þingflokk sinn styðja þessa tillögu. Viðreisn er þriðji stærsti flokkurinn á þingi með 11 þingmenn og 15,8 prósent atkvæða. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar vonar að hægt verði að mynda samhenta ríkisstjórn.Vísir/Vilhelm

„Mín skilaboð til forseta voru að Kristrún ætti að stjórnarmyndunarumboðið,“ sagði Þorgerður Katrín að loknum fundinum. Hún sagði samband þeirra Kristrúnar gott og að hún vonaðist til þess að þær gætu myndað sterka ríkisstjórn. Það komi svo síðar í ljós hvaða flokkur komi með en þær hafa ekki meirihluta í tveggja flokka stjórn. 

„Við ætlum vonandi að reyna að mynda sterka og samhenta ríkisstjórn.“

Þorgerður sagðist bjartsýn fyrir viðræðunum.

„Ég sé þarna ákveðið mynstur af ríkisstjórn sem hægt er að mynda,“ sagði Þorgerður og vildi ekkert gefa upp hvort það væri til hægri eða vinstri.

Treystir Kristrúnu fullkomlega

Eftir það var tekið stutt hlé í hádeginu en Inga Sæland formaður Flokks fólksins kom á fund forsetans að því loknu. Flokkur hennarer fjórði stærsti flokkur landsins með 13,8 prósent atkvæða og tíu þingmenn. Inga Sæland sagði alltaf yndislegt að hitta forsetann.

„Ég treysti Kristrúnu fullkomlega og ég held að sagan okkar segi okkur að sá sem sigri kosningarnar, og það gerði Samfylkingin algjörlega óumdeilt,“ sagði Inga um það hvort Kristrún eigi að fá umboðið eins og Þorgerður Katrín lagði til.

Hún sagði þær þrjár ekki hafa hist saman til að ræða saman formlega en þær hafi átt í óformlegum samtölum.

Inga Sæland ræddi við Höllu Tómasdóttur á Bessastöðum í dag.Vísir/Vilhelm

„Þetta er allt í mótun eins og staðan er í dag,“ sagði Inga. Það væri ábyrgðarlaust að „blaðra“ meira um það en gaf þó í skyn að eitthvað myndi mögulega gerast fljótlega.

„Það eina sem mér leiðist eru þessi hallærisleg skilaboð um að Flokkur fólksins sé ekki stjórntækur. Við erum tíu manna gullfallegur, glæsilegur þingflokkur hlaðinn af reynslumiklu og menntuðu og flottu fólki í allar áttir. Ég held að það sé ástæðulaus ótti að við séum ekki fædd tilbúin.“

Eðlilegt að Kristrún fái fyrst að spreyta sig

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins kom næstur, næstsíðastur, á fund forseta. Flokkurinn fékk 12,1 prósent atkvæða og átta þingmenn, fimm fleirum en voru á síðasta þingi. Sigmundur sagði sín skilaboð til forsetans að það sé vel hægt að mynda ríkisstjórn. 

Þá sagði hann eðlilegt að Kristrún fengi að spreyta sig fyrst. Flokkur hennar væri stærstur og hefði bætt mestu við sig.

Sigmundur ræddi við fréttamenn áður en hann hélt á fund sinn með forsetanum.Vísir/Vilhelm

Hann sagðist þó vel undirbúinn að sitja í ríkisstjórn sjálfur. Hann sagði Höllu hafa spurt um málefni í stjórnarmyndunarviðræðum og hvaða málefni geti verið stærsta hindrunin. Hann segist ekki hafa gert tilkall til umboðsins.

„Ég gerði ekki tilkall til þess en nefndi að ég teldi mig geta náð fólki saman í stjórn. En skildi því skilning ef hún ætlaði að byrja á því að fela formanni stærsta flokksins umboðið.“

Niðurstaðan augljós

Sigurður Ingi Jóhannsson kom á Bessastaði á sama tíma og Sigmundur fór. Sigurður Ingi leiðir minnsta flokkinn á þingi en Framsóknarflokkurinn fékk 7,8 prósent atkvæða og fimm þingmenn.

„Mér sýnist niðurstöður kosninganna augljósar. Að menn vilji fá Samfylkingu, Viðreisn og Flokk fólksins í ríkisstjórn,“ sagði Sigurður Ingi og að það sé líklegt að Framsókn sé á leið í stjórnarandstöðu.

„Það eru skilaboðin,“ sagði Sigurður Ingi og hélt svo inn til forsetans. 

Sigurður Ingi ítrekaði eftir fund sinn með forseta það sem hann sagði fyrir hann. Það væri ákall frá kjósendum um ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Það séu aðrir möguleikar á stjórn í boði en skýrast sé ákall um þessa ríkisstjórn.

Hann segir þingflokk Framsóknar ekki hafa hist en þau hafi rætt saman. Þau verði í stjórnarandstöðu.


Tengdar fréttir

Vaktin: Halla fær for­menn flokkanna á sinn fund

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun funda með þeim forystumönnum stjórnmálaflokka sem eignuðust fulltrúa á nýkjörnu Alþingi í dag. Fundirnir munu eiga sér stað á Bessastöðum þar sem forsetinn mun kanna hvernig landið liggur með það fyrir augum að veita einhverjum þeirra stjórnarmyndunarumboð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×