Ísland féll á svekkjandi hátt úr leik í riðlakeppninni eftir jafntefli við Angóla þar sem þær angólsku voru með betri markatölu. Sigur hefði dugað Íslandi í milliriðil og segir Elín að það hafi reynst liðinu erfitt að kyngja jafnteflinu, sem í raun hafi virkað sem tap.
„Þetta var smá brekka til að byrja með. Við vorum rosa sárar og svekktar að komast ekki í milliriðilinn, sérstaklega af því það var bara eitt mark á milli. Þetta var alveg erfitt og það hefur verið smá erfitt að gíra sig inn í þessa leiki sem maður er að fara í en samt hafa þeir gefið okkur mjög mikið. Við erum mjög þakklátar. Við erum búnar að læra rosa mikið inn á hvora aðra og þetta hefur gefið mikið,“ segir Elín Jóna.
Angólska liðið stóð sig vel í milliriðli og vann tvo leiki, við Austurríki og Suður-Kóreu. En er þá sárt fyrir stelpurnar að sjá þær vinna leiki þar sem Ísland hefði hæglega getað verið?
„Já og nei, það er alveg flott að sjá að þær séu að vinna þessi lið vegna þess að þá hefur maður mikla trú á því að við myndum líka gera það ef við værum þarna. Þetta gefur manni ákveðið sjálfstraust að sjá, við getum unnið Angóla, og það að þær vinni Austurríki og Suður-Kóreu sýnir að við getum líka gert það.“
Markmiðið í Forsetabikarnum, sem Ísland fór í sem neðsta lið síns riðils, hafi þá alltaf verið skýrt. Liðið er nú aðeins einum sigri frá því markmiði.
„Þetta var leikurinn sem við vildum fá eftir að við fréttum að við værum að fara í Forsetabikarinn. Við erum gríðarlega vel stemmdar. Kongó er með sterkt lið og þetta verður hörkuleikur,“ segir Elín Jóna. Þá eigi að koma bikarnum til forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, sem var í stúkunni á leiknum við Angóla í Stafangri.
„Guðni var búinn að panta bikarinn á Bessastaði þannig að við verðum að sækja hann.“