Matur

Pastaréttur með hráskinku og klettasalati

Marín Manda skrifar
Dögg Gunnarsdóttir
Dögg Gunnarsdóttir

Dögg Gunnarsdóttir er faglegur stjórnandi hjá Turebergs förskolor og er búsett í Stokkhólmi ásamt manni og tveimur börnum. Dögg telur gott að eiga fljótlega rétti í pokahorninu á haustin þar sem grilltíminn er liðinn og gefur hér góða uppskrift að pastarétti.

Hráefni fyrir fjóra.

500 g ferskt pasta

1 krukka grænt pestó

1 poki ristaðar furuhnetur

300 g hráskinka, frekar meira en minna

Rifinn parmesanostur

1 poki klettasalat

Hrein ólífuolía 

Salt og pipar

Aðferð

Steikið furuhnetur, rífið ostinn og skerið hráskinku í tvennt. Pastað er soðið eftir leiðbeiningum; varist ofsuðu. Eftir á er gott að láta kalt vatn renna yfir þegar það er sigtað.

Pestói blandað saman við pastað og hrært varlega (gott að nota eldfast mót eða stóran disk). Ristaðar furuhnetur, hráskinka, parmesan og klettasalat er lagt ofan á pastað. Hellið varlega ólífuolíu yfir réttinn, saltið og piprið eftir smekk.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.