Erlent Sýnt frá réttarhöldunum í beinni í sjónvarpi og á YouTube Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að sýnt verður beint frá réttarhöldunum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og þeim átján til viðbótar sem hafa verið ákærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Georgíu árið 2020. Erlent 1.9.2023 06:58 Einn leiðtoga Proud Boys fær sautján ára fangelsisdóm Dómstóll í Bandaríkjunum hefur dæmt einn leiðtoga bandaríska hægriöfgahópsins Proud Boys í sautján ára fangelsi fyrir hlut hans í árásinni á bandaríska þinghúsið í ársbyrjun 2021. Þetta er einn lengsti dómurinn sem fallið hefur vegna árásarinnar. Erlent 1.9.2023 06:40 Fyrsta rafskútuborg Evrópu bannar þær Rafhlaupahjól verða bönnuð á götum Parísarborgar frá og með morgundeginum. Hafa starfsmenn rafhlaupahjólaleiga unnið að því síðustu daga að ná í síðustu hjólin á götum borgarinnar og ferja þau á brott. Erlent 31.8.2023 23:39 Beðnir um að loka gluggum vegna býflugna í milljónatali Fimm milljónir býflugna sluppu úr búrum sínum í gær þegar bíll sem var að flytja þær rann til á veginum í kanadísku borginni Burlington. Bílstjórar voru beðnir um að loka gluggum sínum og gangandi vegfarendur voru varaðir við. Erlent 31.8.2023 22:14 Kenndu öðrum að tæla konur í „Stríðsherbergi“ Samskipti milli Andrew Tate og samstarfsmanna hans benda til þess að þeir og menn þeim tengdir hafi tælt tugi kvenna til þess að taka upp klámefni sem þeir birtu á netinu. Afrit af samskiptum þeirra var lekið til BBC en miðillinn segist hafa fundið minnst 45 möguleg fórnarlömb Tate og félaga hans. Erlent 31.8.2023 16:19 „Þessi yfirlýsing er virðislaus“ Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur beðið dómara um að kanna hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi ofmetið háhýsi sín, golfvelli og aðra eignir í ríkinu um meira en tvo milljarða dala. James hefur sakað Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik. Erlent 31.8.2023 15:13 Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans. Erlent 31.8.2023 13:49 Facebook bannar ekki forseta sem hótaði andstæðingum ofbeldi Meta, móðurfélag Facebook, ákvað að hafna áliti eigin ráðgjafanefndar um að banna fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu sem notaði miðillinn til þess að hóta andstæðingum sínum ofbeldi. Ráðherrann hótaði að banna Facebook í landinu ef hann yrði sjálfur settur í straff. Erlent 31.8.2023 11:42 „Það er allt í lagi“ Myndband, sem talið er eitt það síðasta sem tekið var af rússneska auðjöfrinum Jevgení Prígóshín var birt í gær. Það mun hafa verið tekið upp í Afríku nokkrum dögum áður en hann dó og ræddi hann meðal annars það að fólk hefði áhyggjur af honum og öryggi hans. Erlent 31.8.2023 11:05 Stöðvaður með stærðarinnar naut í farþegasætinu Lögreglunni í Norfolk í Nebrasaka barst í gær tilkynning um mann sem var að keyra niður þjóðveg með „kú í bílnum,“ eins og það var orðað. Þegar umræddur maður var stöðvaður kom í ljós að hann var með stórt Watusi naut í farþegasætinu. Erlent 31.8.2023 10:18 Fimm viðgerðarmenn látnir eftir að hafa orðið fyrir lest á Ítalíu Fimm verkamenn, sem unnu að viðgerð á lestarteinum á lestarstöðinni í bænum Brandizzo, létust þegar þeir urðu fyrir flutningalest í nótt. Erlent 31.8.2023 08:44 Fordæmir spillingu í tengslum við undanþágur frá herþjónustu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur fordæmt spillingu í tengslum við heilsufarslegar undanþágur frá herþjónustu en hann segir að á sumum svæðum hafi fjöldi þeirra tífaldast frá því í fyrra. Erlent 31.8.2023 06:56 Að minnsta kosti 64 látnir eftir eldsvoða í Jóhannesarborg Að minnsta kosti 64 eru látnir og 43 særðir eftir að eldur braust út í marghæða byggingu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í morgun. Yfirvöld segja líklegt að fleiri séu látnir. Erlent 31.8.2023 06:40 Fraus aftur í miðri setningu Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í Kentucky ríki í dag. Um mánuður er liðinn síðan McConnell gerði slíkt hið sama á öðrum blaðamannafundi. Erlent 30.8.2023 21:38 Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna. Erlent 30.8.2023 16:24 Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. Erlent 30.8.2023 15:49 Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit. Erlent 30.8.2023 14:04 Hermenn handtóku forseta Gabon Hópur hermanna í Gabon segist hafa handsamað Ali Bongo, forseta landsins. Þrátt fyrir að Bongo hafi kallað eftir mótmælum vegna handtöku hans virðist sem íbúar landsins hafi tekið handtökunni fagnandi. Erlent 30.8.2023 12:14 Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. Erlent 30.8.2023 12:07 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Harðir bardagar í suðri Úkraínskir hermenn hafa náð tiltölulega miklum árangri í Sapórisjíahéraði í suðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum og vikum. Svo virðist sem aukinn hraði hafi færst í framsókn Úkraínumanna nærri bænum Robotyne en Rússar hafa sent sínar bestu hersveitir á svæðið til að stöðva sóknina. Erlent 30.8.2023 10:56 Ætla ekki að rannsaka flugvélarhrap Prigozhin eftir alþjóðareglum Rússnesk yfirvöld synjuðu ósk brasilískra flugmálayfirvalda um sameiginlega rannsókn eftir alþjóðlegum reglum á því hvað grandaði flugvél Jevgeníj Prigozhin, rússneska málaliðaforingjans, að svo stöddu. Rússar eru ekki skyldugir til þess þó að alþjóðleg flugmálayfirvöld mæli með því. Erlent 30.8.2023 08:57 Kanada gefur út viðvörun vegna ferða hinsegin fólks til Bandaríkjanna Stjórnvöld í Kanada hafa gefið út ferðaviðvörun til hinsegin fólks sem hyggst ferðast til Bandaríkjanna. Ástæðan eru ný lög og reglur í sumum ríkjum Bandaríkjanna, sem gætu mögulega haft áhrif á hinsegin ferðalanga. Erlent 30.8.2023 08:09 Fellibylurinn Idalia ógnar íbúum Flórída Íbúar Flórída í Bandaríkjunum búa sig nú undir að fellibylurinn Idalia nái að strönd ríkisins. Erlent 30.8.2023 07:30 Umfangsmiklar árásir í nótt á báða bóga Úkraínumenn gerðu í nótt víðtækar drónaárásir á svæði í Rússlandi. Í einni árásinni voru tvær flutningavélar sprengdar í loft upp á Pskov flugvellinum er í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá víglínunni í Úkraínu. Erlent 30.8.2023 07:24 Stjórnmálaflokkur kjörins forseta bannaður Sigur Bernarndo Arévalo í forsetakosningunum í Gvatemala var staðfestur í gær. Stjórnmálaflokkur hans var hins vegar bannaður tímabundið. Arévalo segir úrskurðinn lögleysu og að flokkurinn ætli að kæra hann. Erlent 29.8.2023 15:36 Rannsókn hætt á meintum brotum Rammstein söngvarans Rannsókn á meintum kynferðisbrotum Till Lindemann, söngvara þýsku hljómsveitarinnar Rammstein, hefur verið hætt af saksóknara í Þýskalandi. Ástæðan er að ekki fundust nægilega mikil sönnunargögn fyrir hinum meintu brotum og þá vildi enginn stíga fram sem vitni. Erlent 29.8.2023 15:07 Reiði beinist að DeSantis Eftir að ungur rasisti myrti þrjár svartar manneskjur í Jacksonville í Flórída um helgina hafa margir reiðst Ron DeSantis, ríkisstjóra. Fyrir árásina hafði hann verið sakaður um að skapa andrúmsloft haturs gegn svörtum Bandaríkjamönnum og öðru þeldökku fólki og reiðin hefur aukist eftir árasina. Erlent 29.8.2023 13:29 DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag. Erlent 29.8.2023 09:02 Þrír hengdir vegna hryðjuverkarárásar í Baghdad árið 2016 Þrír voru hengdir í Írak í gær vegna hryðjuverkaárásar í Baghdad árið 2016. Um 300 létu lífið í árásinni, sem var sú mannskæðasta frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna árið 2003. Erlent 29.8.2023 08:44 Fyrrverandi ritari Verkamannaflokksins lést á Íslandi í gær Lávarðurinn Alan Haworth, fyrrverandi ritari breska Verkamannaflokksins, lést á ferðalagi til Íslands í gær. Hann var 75 ára. Erlent 29.8.2023 08:08 « ‹ 120 121 122 123 124 125 126 127 128 … 334 ›
Sýnt frá réttarhöldunum í beinni í sjónvarpi og á YouTube Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að sýnt verður beint frá réttarhöldunum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og þeim átján til viðbótar sem hafa verið ákærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Georgíu árið 2020. Erlent 1.9.2023 06:58
Einn leiðtoga Proud Boys fær sautján ára fangelsisdóm Dómstóll í Bandaríkjunum hefur dæmt einn leiðtoga bandaríska hægriöfgahópsins Proud Boys í sautján ára fangelsi fyrir hlut hans í árásinni á bandaríska þinghúsið í ársbyrjun 2021. Þetta er einn lengsti dómurinn sem fallið hefur vegna árásarinnar. Erlent 1.9.2023 06:40
Fyrsta rafskútuborg Evrópu bannar þær Rafhlaupahjól verða bönnuð á götum Parísarborgar frá og með morgundeginum. Hafa starfsmenn rafhlaupahjólaleiga unnið að því síðustu daga að ná í síðustu hjólin á götum borgarinnar og ferja þau á brott. Erlent 31.8.2023 23:39
Beðnir um að loka gluggum vegna býflugna í milljónatali Fimm milljónir býflugna sluppu úr búrum sínum í gær þegar bíll sem var að flytja þær rann til á veginum í kanadísku borginni Burlington. Bílstjórar voru beðnir um að loka gluggum sínum og gangandi vegfarendur voru varaðir við. Erlent 31.8.2023 22:14
Kenndu öðrum að tæla konur í „Stríðsherbergi“ Samskipti milli Andrew Tate og samstarfsmanna hans benda til þess að þeir og menn þeim tengdir hafi tælt tugi kvenna til þess að taka upp klámefni sem þeir birtu á netinu. Afrit af samskiptum þeirra var lekið til BBC en miðillinn segist hafa fundið minnst 45 möguleg fórnarlömb Tate og félaga hans. Erlent 31.8.2023 16:19
„Þessi yfirlýsing er virðislaus“ Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur beðið dómara um að kanna hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi ofmetið háhýsi sín, golfvelli og aðra eignir í ríkinu um meira en tvo milljarða dala. James hefur sakað Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik. Erlent 31.8.2023 15:13
Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans. Erlent 31.8.2023 13:49
Facebook bannar ekki forseta sem hótaði andstæðingum ofbeldi Meta, móðurfélag Facebook, ákvað að hafna áliti eigin ráðgjafanefndar um að banna fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu sem notaði miðillinn til þess að hóta andstæðingum sínum ofbeldi. Ráðherrann hótaði að banna Facebook í landinu ef hann yrði sjálfur settur í straff. Erlent 31.8.2023 11:42
„Það er allt í lagi“ Myndband, sem talið er eitt það síðasta sem tekið var af rússneska auðjöfrinum Jevgení Prígóshín var birt í gær. Það mun hafa verið tekið upp í Afríku nokkrum dögum áður en hann dó og ræddi hann meðal annars það að fólk hefði áhyggjur af honum og öryggi hans. Erlent 31.8.2023 11:05
Stöðvaður með stærðarinnar naut í farþegasætinu Lögreglunni í Norfolk í Nebrasaka barst í gær tilkynning um mann sem var að keyra niður þjóðveg með „kú í bílnum,“ eins og það var orðað. Þegar umræddur maður var stöðvaður kom í ljós að hann var með stórt Watusi naut í farþegasætinu. Erlent 31.8.2023 10:18
Fimm viðgerðarmenn látnir eftir að hafa orðið fyrir lest á Ítalíu Fimm verkamenn, sem unnu að viðgerð á lestarteinum á lestarstöðinni í bænum Brandizzo, létust þegar þeir urðu fyrir flutningalest í nótt. Erlent 31.8.2023 08:44
Fordæmir spillingu í tengslum við undanþágur frá herþjónustu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur fordæmt spillingu í tengslum við heilsufarslegar undanþágur frá herþjónustu en hann segir að á sumum svæðum hafi fjöldi þeirra tífaldast frá því í fyrra. Erlent 31.8.2023 06:56
Að minnsta kosti 64 látnir eftir eldsvoða í Jóhannesarborg Að minnsta kosti 64 eru látnir og 43 særðir eftir að eldur braust út í marghæða byggingu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í morgun. Yfirvöld segja líklegt að fleiri séu látnir. Erlent 31.8.2023 06:40
Fraus aftur í miðri setningu Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í Kentucky ríki í dag. Um mánuður er liðinn síðan McConnell gerði slíkt hið sama á öðrum blaðamannafundi. Erlent 30.8.2023 21:38
Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna. Erlent 30.8.2023 16:24
Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. Erlent 30.8.2023 15:49
Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit. Erlent 30.8.2023 14:04
Hermenn handtóku forseta Gabon Hópur hermanna í Gabon segist hafa handsamað Ali Bongo, forseta landsins. Þrátt fyrir að Bongo hafi kallað eftir mótmælum vegna handtöku hans virðist sem íbúar landsins hafi tekið handtökunni fagnandi. Erlent 30.8.2023 12:14
Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. Erlent 30.8.2023 12:07
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Harðir bardagar í suðri Úkraínskir hermenn hafa náð tiltölulega miklum árangri í Sapórisjíahéraði í suðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum og vikum. Svo virðist sem aukinn hraði hafi færst í framsókn Úkraínumanna nærri bænum Robotyne en Rússar hafa sent sínar bestu hersveitir á svæðið til að stöðva sóknina. Erlent 30.8.2023 10:56
Ætla ekki að rannsaka flugvélarhrap Prigozhin eftir alþjóðareglum Rússnesk yfirvöld synjuðu ósk brasilískra flugmálayfirvalda um sameiginlega rannsókn eftir alþjóðlegum reglum á því hvað grandaði flugvél Jevgeníj Prigozhin, rússneska málaliðaforingjans, að svo stöddu. Rússar eru ekki skyldugir til þess þó að alþjóðleg flugmálayfirvöld mæli með því. Erlent 30.8.2023 08:57
Kanada gefur út viðvörun vegna ferða hinsegin fólks til Bandaríkjanna Stjórnvöld í Kanada hafa gefið út ferðaviðvörun til hinsegin fólks sem hyggst ferðast til Bandaríkjanna. Ástæðan eru ný lög og reglur í sumum ríkjum Bandaríkjanna, sem gætu mögulega haft áhrif á hinsegin ferðalanga. Erlent 30.8.2023 08:09
Fellibylurinn Idalia ógnar íbúum Flórída Íbúar Flórída í Bandaríkjunum búa sig nú undir að fellibylurinn Idalia nái að strönd ríkisins. Erlent 30.8.2023 07:30
Umfangsmiklar árásir í nótt á báða bóga Úkraínumenn gerðu í nótt víðtækar drónaárásir á svæði í Rússlandi. Í einni árásinni voru tvær flutningavélar sprengdar í loft upp á Pskov flugvellinum er í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá víglínunni í Úkraínu. Erlent 30.8.2023 07:24
Stjórnmálaflokkur kjörins forseta bannaður Sigur Bernarndo Arévalo í forsetakosningunum í Gvatemala var staðfestur í gær. Stjórnmálaflokkur hans var hins vegar bannaður tímabundið. Arévalo segir úrskurðinn lögleysu og að flokkurinn ætli að kæra hann. Erlent 29.8.2023 15:36
Rannsókn hætt á meintum brotum Rammstein söngvarans Rannsókn á meintum kynferðisbrotum Till Lindemann, söngvara þýsku hljómsveitarinnar Rammstein, hefur verið hætt af saksóknara í Þýskalandi. Ástæðan er að ekki fundust nægilega mikil sönnunargögn fyrir hinum meintu brotum og þá vildi enginn stíga fram sem vitni. Erlent 29.8.2023 15:07
Reiði beinist að DeSantis Eftir að ungur rasisti myrti þrjár svartar manneskjur í Jacksonville í Flórída um helgina hafa margir reiðst Ron DeSantis, ríkisstjóra. Fyrir árásina hafði hann verið sakaður um að skapa andrúmsloft haturs gegn svörtum Bandaríkjamönnum og öðru þeldökku fólki og reiðin hefur aukist eftir árasina. Erlent 29.8.2023 13:29
DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag. Erlent 29.8.2023 09:02
Þrír hengdir vegna hryðjuverkarárásar í Baghdad árið 2016 Þrír voru hengdir í Írak í gær vegna hryðjuverkaárásar í Baghdad árið 2016. Um 300 létu lífið í árásinni, sem var sú mannskæðasta frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna árið 2003. Erlent 29.8.2023 08:44
Fyrrverandi ritari Verkamannaflokksins lést á Íslandi í gær Lávarðurinn Alan Haworth, fyrrverandi ritari breska Verkamannaflokksins, lést á ferðalagi til Íslands í gær. Hann var 75 ára. Erlent 29.8.2023 08:08