Grunnskólar Hugmyndahatturinn: Skapandi samstarf grunnskóla og safna Kæri grunnskólakennari; hefur þig ekki lengi langað til að nýta söfnin betur i kennslu nemenda þinna? Skoðun 11.10.2022 17:01 „Það er ekkert eðlilegt við að kennarar í dag séu öryrkjar út af ofbeldi nemenda“ Líkamlegt ofbeldi grunnskólabarna færist í aukana og verður sífellt grófara. Þetta er þróun sem skólastjórnendur í Reykjavík hafa numið í sínum störfum. Þeir segja algeran skort á stuðningi og miðstýrðum verkferlum. Kennari segir samfélagið verða að vakna til meðvitundar um alvarleika málsins; það sé ekki eðlilegt að missa kennara í örorku vegna ofbeldis nemenda. Innlent 11.10.2022 11:53 Telja að lífið yrði skemmtilegra ef ekki væru til snjallsímar Sérfræðingur hjá Embætti landlæknis telur óhóflega snjallsímanotkun vera þátt í dvínandi hamingju landsmanna. Tólf ára nemendur í Laugalækjarskóla telja að lífið yrði skemmtilegra ef ekki væru til snjallsímar. Fréttastofa ræddi við þá og leitaði ráða hjá hamingjusamasta íbúa Hrafnistu. Innlent 7.10.2022 19:06 Grét næstum af gleði þegar hún frétti af niðurstöðunni „Ég er ennþá að átta mig á þessu. Þvílík gleði. Það er bara þannig að þegar ég frétti af þessu þá fór ég næstum því að gráta. Ég er svo glöð að þessi niðurstaða hafi komið því maður gat alveg eins átt von á öðru,“ segir Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla, um þá niðurstöðu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um að byggja skuli við löngu sprungna grunnskóla í Laugardal. Innlent 7.10.2022 14:32 Hafnarfjarðarbær vinnur að breytingum á skipulagi leikskóla sinna Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur formlega ýtt úr vör vinnu við að endurskilgreina skipulag leikskóla bæjarins. Skoðun 6.10.2022 17:01 Hvernig væri samfélagið án kennara? Í dag, miðvikudaginn 5. október, fögnum við Alþjóðadegi kennara um heim allan og því er full ástæða til að óska kennurum um land allt innilega til hamingju með daginn fullviss um að þeir eigi góðan dag í starfi sínu með nemendum. Í starfi þar sem kennarar gera sitt allra besta á hverjum degi við að mennta og móta hugi framtíðarkynslóða. Skoðun 5.10.2022 11:00 Til hamingju kennarar Kennarar! Til hamingju með daginn okkar. Í dag 5. október er alþjóðadagur kennara. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1994 að frumkvæði UNESCO, UNICEF og EI, alþjóðasamtaka kennara. Markmiðið er að beina sjónum að mikilvægi kennarastarfsins fyrir samfélög heimsins. Skoðun 5.10.2022 09:01 Hver vitleysan rekur aðra Starfsemi grunnskóla og leikskóla í Reykjavík er víða í uppnámi. Áralöng vanræksla innviða og innantóm fyrirheit um hvers kyns endurbætur skilja fjölskyldur eftir í þröngri stöðu. Skoðun 4.10.2022 11:01 Foreldrar í Laugardal fagna ákvörðun skóla- og frístundaráðs Byggt verður við alla þrjá grunnskólana í Laugardal til að mæta fjölgun nemenda í hverfinu ef nýsamþykkt tillaga skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur nær fram að ganga. Þetta ákvað ráðið á fundi í dag. Foreldrar í hverfinu anda léttar eftir margra mánaða baráttu. Innlent 3.10.2022 23:30 Yfirvöld þurfi að bregðast við svo þau verði ekki sanngirnisbótaskyld Talskonur Heimilis og skóla segja úrræðaleysi ríkja í málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi í skólum. Varaformaðurinn vill fá opinbera stefnumótun í málaflokknum. Ella sé hætta á að það þurfi að greiða þolendum ofbeldis sanngirnisbætur í framtíðinni. Innlent 3.10.2022 19:46 Tvítyngi? Væri ekki nær að tala um fjöltyngi eða þvoglutyngi? Í nútímasamfélagi gusast yfir okkur ný orð sem við eigum oft fullt í fangi með að meðtaka. Eintyngi, tvítyngi, fjöltyngi eru dæmi um slíkt. Hvað þýðir t.d. að vera tvítyngdur? Það þýðir að eiga foreldra/uppalendur sem eru með sitthvort móðurmálið t.d. dönsku og íslensku. En hvað þýðir þá að vera fjöltyngdur? Það hlýtur þá að þýða að einstaklingurinn elst upp við fleiri en tvö tungumál. Skoðun 3.10.2022 12:01 Hrýs hugur við að skólahverfið taki stakkaskiptum Á mánudag verður tekin ákvörðun um framtíðarskipulag skólahverfisins í Laugardal. Íbúum hverfisins er mikið niðri fyrir og hafa sett af stað undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld hlusti á raddir þeirra og geri ekki róttækar breytingar á fyrirkomulagi skólamála og tvístri nemendahópnum með nýjum unglingaskóla. Innlent 30.9.2022 13:13 Börn í Laugardal föst í hamsturhjóli ferlagreininga borgarinnar Íbúar í Laugardal eru langþreyttir að bíða eftir ákvörðun borgaryfirvalda um framkvæmdir á skólahúsnæði við Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtskóla. Skoðun 30.9.2022 07:01 Nemendur Laugarnesskóla hafa veikst vegna myglu Lekaskemmda hefur orðið vart í húsnæði Laugarnesskóla með tilheyrandi myglu. Ráðist var í heildarúttekt á skólanum eftir að nemendur og starfsfólk kenndu sér meins vegna myglunnar. Innlent 29.9.2022 12:07 Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. Innlent 28.9.2022 11:55 Segir leitt að 53 ára skólastarfi að Húnavöllum hafi lokið svona skyndilega Harðar deilur hafa staðið innan sveitarstjórnar hinnar nýju Húnabyggðar um þá ákvörðun hennar að hætta grunnskólastarfi í Húnavallaskóla og sameina skólastarfið Blönduskóla á Blönduósi strax í haust. Innlent 28.9.2022 08:01 Skoða flutning Hagskælinga í Korpuskóla Til skoðunar er að flytja hluta nemenda í áttunda og níunda bekk Hagaskóla tímabundið í Korpuskóla. Þá er einnig möguleiki að húsnæðið sem Hagaskóli hefur haft til umráða í Ármúla verði tvísetið en fulltrúar Reykjavíkurborgar funduðu með fulltrúum skólans í vikunni um næstu skref. Innlent 28.9.2022 06:40 Ekki í anda trúarinnar að tvístra nemendahópum Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur við Laugarneskirkju vísar á bug ásökunum um að kirkjan sé að kynda undir ófriðarbál með því að afþakka kirkjuheimsóknir á vegum grunnskólanna í aðventunni. Ákvörðunin hafi verið tekin sérstaklega til að slökkva ófriðarbál því andstaða hafi við skipulagðar kirkjuheimsóknir hafi farið stigvaxandi. Þá sé það ekki í anda kirkjunnar að skilja börn út undan. Innlent 27.9.2022 17:08 Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. Innlent 24.9.2022 07:38 „Þau hafa ekki fengið þá aðstoð sem þau þurfa“ Vel rúmlega 1100 börn bíða eftir að komast að hjá fagfólki Skólaþjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi segir ástandið stjórnlaust. Það sé hættulegt að láta börn í andlegri vanlíðan bíða eftir sálfræðiþjónustu. Innlent 17.9.2022 12:01 Ekkert barn þarf að sitja eftir Á þeim sex árum sem liðið hafa frá því lesfimipróf Menntamálstofnunar fór fyrst í almenna notkun hafa litlar breytingar orðið á niðurstöðum prófsins á landsvísu og hlutfall nemenda sem útskrifast úr grunnskóla undir lágmarksviðmiði í lesfimi enn um 30%. Skoðun 16.9.2022 13:01 Rúmlega hálfur milljarður í fjárveitingu vegna rakaskemmda Í morgun samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar mörg hundruð milljóna króna fjárveitingu til Myllubakkaskóla til þess að hægt sé að halda viðgerðum vegna rakaskemmda hjá skólanum áfram. Innlent 15.9.2022 23:22 Takið ákvörðunina Manstu þegar gluggarnir heima hjá þér fóru að leka, ofninn bilaði og þú áttir von á einu barni til viðbótar svo það bráðvantaði annað herbergi - en þú beiðst bara í nokkur ár þangað til að málið leystist af sjálfu sér? Nei ekki ég heldur. Það er vegna þess að heimurinn virkar ekki þannig. Þvert á móti stækka vandamálin því lengur sem kosið er að vanrækja þau. Skoðun 15.9.2022 08:00 Kaup hlutafjár eina leiðin í þröngri stöðu Höfundi Hjallastefnunnar þykir afskaplega miður að félagið, sem rekur leik- og grunnskóla, hafi þurft að kaupa hlutafé fráfarandi framkvæmdastjóra félagsins með töluverðum hagnaði fyrir framkvæmdastjórann. Innlent 12.9.2022 23:32 Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. Innlent 10.9.2022 23:19 Fjarlægðu bækur og húsgögn úr Fossvogsskóla Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, hefur óskað eftir að betur sé farið yfir þau viðmið sem voru notuð við flutning á gögnum, búnaði og húsgögnum úr Korpuskóla. Hún gerir það í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum tveggja barna í skólanum. Innlent 9.9.2022 14:11 Umferðaröryggi skólabarna Árlega slasast 56 börn á aldrinum 0-14 ára sem gangandi eða hjólandi vegfarendur í umferðinni. Til viðbótar slasast árlega 53 börn í bifreiðum og tvö til þrjú í hópbifreiðum í þessum sama aldurshópi en þessar upplýsingar má lesa úr slysaskýrslu Samgöngustofu. Skoðun 8.9.2022 10:30 Er íslenska óvinsæl? Seinustu áratugi hafa rannsóknir sýnt að íslenska sé orðin óvinsæl námsgrein á flestum skólastigum og í kjölfarið er spurt hvort óvinsældirnar nái til tungumálsins sjálfs. Ef til vill er það ansi stórt stökk í rökfærslunni í ljósi þess að íslenska er grundvallarþáttur í lífi allra íslenskra málhafa, svo ríkur þáttur að allt eins mætti spyrja hvort hendur okkar eða fætur séu óvinsælar. Skoðun 7.9.2022 09:00 Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. Innlent 2.9.2022 10:11 1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar. Innlent 2.9.2022 08:58 « ‹ 18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 36 ›
Hugmyndahatturinn: Skapandi samstarf grunnskóla og safna Kæri grunnskólakennari; hefur þig ekki lengi langað til að nýta söfnin betur i kennslu nemenda þinna? Skoðun 11.10.2022 17:01
„Það er ekkert eðlilegt við að kennarar í dag séu öryrkjar út af ofbeldi nemenda“ Líkamlegt ofbeldi grunnskólabarna færist í aukana og verður sífellt grófara. Þetta er þróun sem skólastjórnendur í Reykjavík hafa numið í sínum störfum. Þeir segja algeran skort á stuðningi og miðstýrðum verkferlum. Kennari segir samfélagið verða að vakna til meðvitundar um alvarleika málsins; það sé ekki eðlilegt að missa kennara í örorku vegna ofbeldis nemenda. Innlent 11.10.2022 11:53
Telja að lífið yrði skemmtilegra ef ekki væru til snjallsímar Sérfræðingur hjá Embætti landlæknis telur óhóflega snjallsímanotkun vera þátt í dvínandi hamingju landsmanna. Tólf ára nemendur í Laugalækjarskóla telja að lífið yrði skemmtilegra ef ekki væru til snjallsímar. Fréttastofa ræddi við þá og leitaði ráða hjá hamingjusamasta íbúa Hrafnistu. Innlent 7.10.2022 19:06
Grét næstum af gleði þegar hún frétti af niðurstöðunni „Ég er ennþá að átta mig á þessu. Þvílík gleði. Það er bara þannig að þegar ég frétti af þessu þá fór ég næstum því að gráta. Ég er svo glöð að þessi niðurstaða hafi komið því maður gat alveg eins átt von á öðru,“ segir Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla, um þá niðurstöðu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um að byggja skuli við löngu sprungna grunnskóla í Laugardal. Innlent 7.10.2022 14:32
Hafnarfjarðarbær vinnur að breytingum á skipulagi leikskóla sinna Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur formlega ýtt úr vör vinnu við að endurskilgreina skipulag leikskóla bæjarins. Skoðun 6.10.2022 17:01
Hvernig væri samfélagið án kennara? Í dag, miðvikudaginn 5. október, fögnum við Alþjóðadegi kennara um heim allan og því er full ástæða til að óska kennurum um land allt innilega til hamingju með daginn fullviss um að þeir eigi góðan dag í starfi sínu með nemendum. Í starfi þar sem kennarar gera sitt allra besta á hverjum degi við að mennta og móta hugi framtíðarkynslóða. Skoðun 5.10.2022 11:00
Til hamingju kennarar Kennarar! Til hamingju með daginn okkar. Í dag 5. október er alþjóðadagur kennara. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1994 að frumkvæði UNESCO, UNICEF og EI, alþjóðasamtaka kennara. Markmiðið er að beina sjónum að mikilvægi kennarastarfsins fyrir samfélög heimsins. Skoðun 5.10.2022 09:01
Hver vitleysan rekur aðra Starfsemi grunnskóla og leikskóla í Reykjavík er víða í uppnámi. Áralöng vanræksla innviða og innantóm fyrirheit um hvers kyns endurbætur skilja fjölskyldur eftir í þröngri stöðu. Skoðun 4.10.2022 11:01
Foreldrar í Laugardal fagna ákvörðun skóla- og frístundaráðs Byggt verður við alla þrjá grunnskólana í Laugardal til að mæta fjölgun nemenda í hverfinu ef nýsamþykkt tillaga skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur nær fram að ganga. Þetta ákvað ráðið á fundi í dag. Foreldrar í hverfinu anda léttar eftir margra mánaða baráttu. Innlent 3.10.2022 23:30
Yfirvöld þurfi að bregðast við svo þau verði ekki sanngirnisbótaskyld Talskonur Heimilis og skóla segja úrræðaleysi ríkja í málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi í skólum. Varaformaðurinn vill fá opinbera stefnumótun í málaflokknum. Ella sé hætta á að það þurfi að greiða þolendum ofbeldis sanngirnisbætur í framtíðinni. Innlent 3.10.2022 19:46
Tvítyngi? Væri ekki nær að tala um fjöltyngi eða þvoglutyngi? Í nútímasamfélagi gusast yfir okkur ný orð sem við eigum oft fullt í fangi með að meðtaka. Eintyngi, tvítyngi, fjöltyngi eru dæmi um slíkt. Hvað þýðir t.d. að vera tvítyngdur? Það þýðir að eiga foreldra/uppalendur sem eru með sitthvort móðurmálið t.d. dönsku og íslensku. En hvað þýðir þá að vera fjöltyngdur? Það hlýtur þá að þýða að einstaklingurinn elst upp við fleiri en tvö tungumál. Skoðun 3.10.2022 12:01
Hrýs hugur við að skólahverfið taki stakkaskiptum Á mánudag verður tekin ákvörðun um framtíðarskipulag skólahverfisins í Laugardal. Íbúum hverfisins er mikið niðri fyrir og hafa sett af stað undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld hlusti á raddir þeirra og geri ekki róttækar breytingar á fyrirkomulagi skólamála og tvístri nemendahópnum með nýjum unglingaskóla. Innlent 30.9.2022 13:13
Börn í Laugardal föst í hamsturhjóli ferlagreininga borgarinnar Íbúar í Laugardal eru langþreyttir að bíða eftir ákvörðun borgaryfirvalda um framkvæmdir á skólahúsnæði við Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtskóla. Skoðun 30.9.2022 07:01
Nemendur Laugarnesskóla hafa veikst vegna myglu Lekaskemmda hefur orðið vart í húsnæði Laugarnesskóla með tilheyrandi myglu. Ráðist var í heildarúttekt á skólanum eftir að nemendur og starfsfólk kenndu sér meins vegna myglunnar. Innlent 29.9.2022 12:07
Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. Innlent 28.9.2022 11:55
Segir leitt að 53 ára skólastarfi að Húnavöllum hafi lokið svona skyndilega Harðar deilur hafa staðið innan sveitarstjórnar hinnar nýju Húnabyggðar um þá ákvörðun hennar að hætta grunnskólastarfi í Húnavallaskóla og sameina skólastarfið Blönduskóla á Blönduósi strax í haust. Innlent 28.9.2022 08:01
Skoða flutning Hagskælinga í Korpuskóla Til skoðunar er að flytja hluta nemenda í áttunda og níunda bekk Hagaskóla tímabundið í Korpuskóla. Þá er einnig möguleiki að húsnæðið sem Hagaskóli hefur haft til umráða í Ármúla verði tvísetið en fulltrúar Reykjavíkurborgar funduðu með fulltrúum skólans í vikunni um næstu skref. Innlent 28.9.2022 06:40
Ekki í anda trúarinnar að tvístra nemendahópum Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur við Laugarneskirkju vísar á bug ásökunum um að kirkjan sé að kynda undir ófriðarbál með því að afþakka kirkjuheimsóknir á vegum grunnskólanna í aðventunni. Ákvörðunin hafi verið tekin sérstaklega til að slökkva ófriðarbál því andstaða hafi við skipulagðar kirkjuheimsóknir hafi farið stigvaxandi. Þá sé það ekki í anda kirkjunnar að skilja börn út undan. Innlent 27.9.2022 17:08
Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. Innlent 24.9.2022 07:38
„Þau hafa ekki fengið þá aðstoð sem þau þurfa“ Vel rúmlega 1100 börn bíða eftir að komast að hjá fagfólki Skólaþjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi segir ástandið stjórnlaust. Það sé hættulegt að láta börn í andlegri vanlíðan bíða eftir sálfræðiþjónustu. Innlent 17.9.2022 12:01
Ekkert barn þarf að sitja eftir Á þeim sex árum sem liðið hafa frá því lesfimipróf Menntamálstofnunar fór fyrst í almenna notkun hafa litlar breytingar orðið á niðurstöðum prófsins á landsvísu og hlutfall nemenda sem útskrifast úr grunnskóla undir lágmarksviðmiði í lesfimi enn um 30%. Skoðun 16.9.2022 13:01
Rúmlega hálfur milljarður í fjárveitingu vegna rakaskemmda Í morgun samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar mörg hundruð milljóna króna fjárveitingu til Myllubakkaskóla til þess að hægt sé að halda viðgerðum vegna rakaskemmda hjá skólanum áfram. Innlent 15.9.2022 23:22
Takið ákvörðunina Manstu þegar gluggarnir heima hjá þér fóru að leka, ofninn bilaði og þú áttir von á einu barni til viðbótar svo það bráðvantaði annað herbergi - en þú beiðst bara í nokkur ár þangað til að málið leystist af sjálfu sér? Nei ekki ég heldur. Það er vegna þess að heimurinn virkar ekki þannig. Þvert á móti stækka vandamálin því lengur sem kosið er að vanrækja þau. Skoðun 15.9.2022 08:00
Kaup hlutafjár eina leiðin í þröngri stöðu Höfundi Hjallastefnunnar þykir afskaplega miður að félagið, sem rekur leik- og grunnskóla, hafi þurft að kaupa hlutafé fráfarandi framkvæmdastjóra félagsins með töluverðum hagnaði fyrir framkvæmdastjórann. Innlent 12.9.2022 23:32
Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. Innlent 10.9.2022 23:19
Fjarlægðu bækur og húsgögn úr Fossvogsskóla Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, hefur óskað eftir að betur sé farið yfir þau viðmið sem voru notuð við flutning á gögnum, búnaði og húsgögnum úr Korpuskóla. Hún gerir það í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum tveggja barna í skólanum. Innlent 9.9.2022 14:11
Umferðaröryggi skólabarna Árlega slasast 56 börn á aldrinum 0-14 ára sem gangandi eða hjólandi vegfarendur í umferðinni. Til viðbótar slasast árlega 53 börn í bifreiðum og tvö til þrjú í hópbifreiðum í þessum sama aldurshópi en þessar upplýsingar má lesa úr slysaskýrslu Samgöngustofu. Skoðun 8.9.2022 10:30
Er íslenska óvinsæl? Seinustu áratugi hafa rannsóknir sýnt að íslenska sé orðin óvinsæl námsgrein á flestum skólastigum og í kjölfarið er spurt hvort óvinsældirnar nái til tungumálsins sjálfs. Ef til vill er það ansi stórt stökk í rökfærslunni í ljósi þess að íslenska er grundvallarþáttur í lífi allra íslenskra málhafa, svo ríkur þáttur að allt eins mætti spyrja hvort hendur okkar eða fætur séu óvinsælar. Skoðun 7.9.2022 09:00
Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. Innlent 2.9.2022 10:11
1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar. Innlent 2.9.2022 08:58