Skoðun

Hugmyndahatturinn: Skapandi samstarf grunnskóla og safna

Jóhanna Bergmann skrifar

Kæri grunnskólakennari; hefur þig ekki lengi langað til að nýta söfnin betur i kennslu nemenda þinna?

Út er komin á rafrænu formi handbókin Hugmyndahatturinn sem er aðgengilegt uppflettirit fyrir grunnskólakennara um mögulegar fræðsluleiðir í samstarfi við söfn, þar sem sköpunarkraftur nemenda fær að njóta sín og safnið verður að vettvangi þeirra til að rannsaka, uppgötva og gera nýjar tengingar í huga sér. Í handbókinni eru 28 dæmi um skapandi samstarf við grunnskóla frá söfnum víðs vegar á landinu. Öll lýsa þau námsferli með áherslu á virkni nemenda og skapandi úrvinnslu. Þannig eru þau grunnskólakennurum hvatning til að líta til safna um samstarf um gefandi námsupplifun fyrir nemendur. Grunnskólakennari sem flettir í gegnum Hugmyndahattinn sér hvað hægt er gera í samvinnu við söfn og er þá vonandi tilbúnari í samtal við safnafólkið í sínu nærumhverfi um verkefni sem myndi henta hans nemendum og lyfta þeirra námi. Það er von höfundar að kennarinn valdeflist gagnvart safninu og finni að hann geti haft áhrif á safnheimsóknina og látið hana þjóna sinni námsyfirferð með nemendum. Með því móti eru nemendur einbeittari í safnheimsókninni vegna þess að markmiðin með henni eru þeim ljósari.

Þjóðsagna StopMotion smiðja.Minjasafn Austurlands

Verkefnin í bókinni eiga það sameiginlegt að fara á einhvern hátt út fyrir ramma hefðbundinnar safnheimsóknar (leiðsögn og e.t.v. verkefni leyst). Þau eru ólík innbyrðis, t.d. að því leyti að mismunandi er hvaðan frumkvæðið kemur, hver mótaði verkefnið, hvað nemendur gera og hvort afrakstri er fylgt eftir og gerður sýnilegur út fyrir bekkinn. Nokkur verkefnanna snúast um stafræna miðlun enda hafa á undanförnum árum orðið til á söfnum þó nokkur skemmtileg, fjölbreytt, skapandi og fræðandi dæmi um hvernig nýta má þennan miðlunarmáta til að ná inn til skólanna.

Handbókin er lóð á vogarskálar vitundarvakningar innan grunnskólanna um að söfnin standi þeim opin, að kennarar og nemendur geti haft áhrif á hvað gerist í safninu, eða í samvinnu við safnið, en þurfi ekki að vera aðeins óvirkir þiggjendur safnfræðsludagskrár sem starfsfólk safnsins hefur mótað einhliða.

Hugmyndahattinn má nálgast í pdf formi á heimasíðu Þjóðminjasafns Íslands eða í flettiforriti hjá List fyrir alla.

Höfundur er safnkennari við Þjóðminjasafn Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×