Herferð gegn offitufaraldri barna Til þess að berjast gegn offitufaraldri barna í Bandaríkjunum þarf þjóðin að fara í allsherjar herferð gegn vandanum. Bandaríska vísindaakademían (National Academy og Sciences), sem rannsakað hefur orsakir og afleiðingar offituvandans, kynnti nýlega skýrslu sína um málið. Menning 1. október 2004 00:01
Boltar í stað stóla Æfingaboltar rúlla nú um líkamsræktarstöðvarnar enda nýjasta æðið í heimi heilsuræktar. Krisztina G. Agueda er menntaður íþróttakennari og hefur réttindi til Fit-ball kennslu og þjálfunar, en Fit-ball eru æfingaboltar sem koma frá Ítalíu þar sem heilt æfingakerfi hefur verið smíðað í kringum þá. Menning 28. september 2004 00:01
Lifa í öðrum veruleika Fyrir nokkrum mánuðum hitti ég skólastjóra úti á landi. Ég var að halda tóbaksvarnarfyrirlestra fyrir unglingana í skólanum hans. Hann sagðist ekki hafa svo miklar áhyggjur af reykingum í sínum skóla og það fannst mér ánægjulegt að heyra. Hins vegar sagði hann að upp væri að koma nýr hópur sem væri ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af. Menning 28. september 2004 00:01
Góðir skór og vilji allt sem þarf Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson ætlar að fara alla leið til Minneapolis í Bandaríkjunum til að taka þátt í maraþonhlaupi. Það er þó ekki hvaða maraþonhlaup sem er því Twin City maraþonið er heimsfrægt og hefur verið kjörið fallegasta maraþon Bandaríkjanna. Hann hefur stundað útihlaup undanfarin tvö ár. Menning 28. september 2004 00:01
Best að æfa á morgnanna "Ég reyni að stunda nokkuð reglulega líkamsrækt yfir veturinn og fer þá yfirleitt í stöðvar eins og World Class eða aðrar sem ég get lyft lóðum í og komist á hlaupabretti," segir Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður. Á sumrin segist hún vera óskipulagðari. Menning 28. september 2004 00:01
E-vítamín við heyrnarleysi E-vítamín getur haft áhrif á skyndilegt heyrnarleysi, samkvæmt nýlegri rannsókn sem gerð var í Ísrael. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á ráðstefnu háls-, nef- og eyrnalækna í New York í vikunni. Menning 28. september 2004 00:01
Hundar finna lykt af krabbameini Vísindamenn í Englandi hafa komist að því að hundar finna lykt af krabbameini. Hundar hafa allt að hundrað þúsund sinnum betra lyktarskyn en mannfólkið. Menning 26. september 2004 00:01
Þriðjungur deyr úr hjartakvillum Sautján milljónir manna deyja ár hvert úr hjartasjúkdómum eða hjartaáföllum. Það er um þriðjungur þeirra sem deyja á ári í heiminum. Þetta kom fram á fundi Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnunarinnar sem haldinn var í tilefni alþjóðlega hjartadagsins sem var í gær. Menning 26. september 2004 00:01
Hundar geta greint krabbamein Komið hefur í ljós að hundar geta greint krabbamein í mannfólki. Svo virðist sem sérstök lykt stafi af krabbameini og hundarnir geta greint þessa lykt þótt krabbameinið sé tiltölulega nýkomið af stað. Menning 24. september 2004 00:01
Tóbak má ekki sjást Ástralar ætla að feta í fótspor Íslendinga með löggjöf sem bannar að tóbak sé sjáanlegt á sölustöðum, að því er fram kemur á vef Lýðheilsustöðvar. Lög þessa efnis tóku gildi hér á landi 1. ágúst árið 2001. Menning 23. september 2004 00:01
Fjórar leiðir til lengra lífs Hollt matarræði, hófleg áfengisneysla, regluleg hreyfing og engar reykingar auka lífslíkur eldri borgara um 65%. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar, þar sem 1500 eldri borgurum á aldrinum 70-90 ára, frá ellefu Evrópulöndum var fylgt eftir í 10 ár. Menning 22. september 2004 00:01
Farsímanotkun ekki heilsuspillandi Yfirvöld geislavarna á Norðurlöndum hafa sammælst um að engar vísindalegar vísbendingar séu um að farsímanotkun geti verið skaðleg heilsu fólks, hvorki geislun frá símtækjunum sjálfum né heldur sendum. Enda noti tækin sendistyrk neðan viðmiðunarmarka og grunngilda sem Alþjóða geislavarnaráðið um ójónandi geislun (ICNIRP) hefur mælt með. Menning 21. september 2004 00:01
Árangurinn kemur fljótt í ljós "Fólk þarf ekkert að vera sjúkt til að koma til okkar þótt við bjóðum upp á sjúkraþjálfun. Stöðin er fyrir fólk sem vill byggja sig upp, hvort sem það er með stoðkerfisvandamál eða ekki," segir Emilía Borgþórsdóttir, sjúkraþjálfari hjá heilsuræktarstöðinni Hreyfigreiningu við Höfðabakka í Reykjavík. Menning 20. september 2004 00:01
Blómaolíur gegn kvíða Sjúklingar í Bretlandi, sem bíða eftir niðurstöðum úr krabbameinsrannsóknum, munu í framtíðinni fá blómaolíur til að draga úr kvíðanum sem óhjákvæmilega fylgir rannsóknum af þessu tagi. Menning 20. september 2004 00:01
Hreyfing er hjartanu holl Frá 1980 hefur dregið mjög úr kransæðasjúkdómum á Íslandi og á aukin hreyfing fólks utan vinnu sinn þátt í því. Þetta kemur fram í nýjum bæklingi frá Hjartavernd sem nefnist Hreyfðu þig fyrir hjartað. Menning 20. september 2004 00:01
Hvers virði er heilsan? Hvaða verðmiða myndir þú setja á heilsu þína? Flestum þykir þessi spurning örugglega svívirðileg. Hvernig er hægt að setja verðmiða á heilsuna? Hvernig er hægt að verðleggja líkamshluta, þrek, þol, úthald, styrk og fleiri líkamlega eiginleika? Ég er sammála. Menning 20. september 2004 00:01
Hjólað án lífshættu "Ég hjóla mikið og er búinn að gera það í mörg ár, en það er eitthvað sem maður vandist á í Danmörku, og ég hjóla nánast alltaf til og frá vinnu," segir Guðmundur Ólafsson leikari aðspurður hvernig hann haldi sér í formi. "Maður er ótrúlega fljótur að hjóla á milli staða og aðstæður hafa breyst mikið hér þannig að hægt er að hjóla um án þess að vera í mikilli lífshættu," </font /> Menning 20. september 2004 00:01
Kraftlyftingar og sjúkraþjálfun "Orkuverið er eina stöðin á Íslandi sem getur tekið á móti öllum, frá sjúklingi upp í kraftlyftingamann," segir Georg Ögmundsson, sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Orkuversins sem er ný líkamsræktarstöð í Egilshöllinni þar sem boðið verður upp sjúkraþjálfun og almenna líkamsrækt. Menning 20. september 2004 00:01
Segir starfsemina hættulega Landlæknir hefur nú til umfjöllunar kvartanir sem borist hafa vegna bandarískra hjóna sem segjast lækna sjúkdóma og kenna Íslendingum að koma í veg fyrir orkuleka í sjálfum sér með því að bera á sér steina. Landlæknir segir starfsemina hættulega og varar sterklega við henni. Menning 20. september 2004 00:01
Námskeið í notkun hjólastóla Hvernig kemst maður upp og niður stiga, yfir kanta og áfram í þrengslum þegar maður er í hjólastól? Og hvað gerir maður ef maður dettur um koll? Þetta og margt annað í sama dúr var kennt á námskeiði á Reykjalundi í lok síðustu viku. Menning 14. september 2004 00:01
Ávaxtabíllinn "Kex eða sælgæti verður oftast fyrir valinu hjá fólki þegar hungurtilfinning vaknar seinni part dags, og þess vegna kviknaði sú hugmynd að koma ávöxtum til fólksins í staðinn. Einnig vildum við gera þetta til styrktar íslensku hugviti, því ef menn eru bensínlausir það sem eftir er dags fá þeir ekki margar hugmyndir," segir Haukur Magnússon, sem rekur Ávaxtabílinn sem selur ávaxtakörfur til fyrirtækja í áskrift Menning 14. september 2004 00:01
Líkamsrækt að spila á orgel "Það er nú ákveðin líkamsrækt að spila á orgel, bæði fingraleikfimi og þó einkum fóta því maður reynir að láta rjúka úr pedalanum," segir Steingrímur Þórhallsson, organisti í Neskirkju, hlæjandi þegar hann er inntur eftir því hvernig hann haldi sér í formi dags daglega. Menning 14. september 2004 00:01
Í nafni jóga <em>Guðjón Bergmann, jógakennari og rithöfundur, skrifar um ofnotkun á hugtakinu jóga.</em> Eðlilegt er að í jóga sé framþróun og upp komi nýjungar. Hins vegar eru jógafræðin of oft útþynnt í gegnum auglýsingar og aðlögun við önnur líkamsræktarkerfi. Því er ekki allt gull sem glóir eða allt jóga sem kennt er við jóga.</font /> Menning 14. september 2004 00:01
Offitusamtök stofnuð á Íslandi Um 200 manns eru á biðlista fyrir offituaðgerðir á Íslandi. Samtök hafa verið stofnuð fyrir offitusjúklinga sem farið hafa í slíka aðgerð. Menning 8. september 2004 00:01
Pilatesæfingakerfið "Pilates þéttir og lengir vöðva líkamans, en æfingarnar felast í að styrkja og teygja líkamann undir algjörri stjórnun, þannig að hugur fylgi hverri æfingu og fólk hvíli líkamann meðan það æfir," segir Jóhann Björgvinsson, löggiltur pilateskennari. "Ég er að kenna þessa hreinu pilates-tækni, en ég lærði hjá konu í New York sem er eini eftirlifandi kennarinn sem lærði hjá Joseph Hubertus Pilates sjálfum. </font /></font /></b /> Menning 7. september 2004 00:01
Kaðlajóga fyrir alla Elín Sigurðardóttir, íþróttafræðingur og fyrrverandi sundkona, er í fínu formi enda stundar hún og kennir kaðlajóga eða rope yoga, sem eru æfingar gerðar með böndum á sérstökum bekkjum. "Þetta eru öflugustu kviðæfingar sem ég hef komist í þó ég hafi æft mikið í gegnum árin," segir Elín Menning 7. september 2004 00:01
Sigrún er húkkuð á skokkinu Ég hef verið að myndast við þetta í ár en byrjaði fyrst að hlaupa reglulega í sumar. Það er eiginlega ekki fyrr en núna að þetta er orðinn lífsstíll," segir Sigrún Andersen, framkvæmdastjóri Arcadia á Íslandi, sem hleypur að minnsta kosti þrisvar í viku til að halda sér í formi. Menning 30. ágúst 2004 00:01
Alexandertækni Harpa Guðmundsdóttir lærði Alexandertækni í London og hefur kennt Íslendingum þessa tækni um nokkurra ára bil. Menning 30. ágúst 2004 00:01
Mýkri línur í tísku Á hverju hausti þegar dagskrá líkamsræktarstöðvanna verður ljós kemur fram hvað það er sem viðskiptavinirnir sækjast helst eftir. Sólrún Birgisdóttir hjá Iceland spa & fitness segir að mýkri línur virðast vera að koma í tímana þar sem æfingarnar séu að mýkjast og má sjá mikla aukningu í jóga og Bodybalance sem samanstendur af jóga, Pilates og Tai chi. Menning 30. ágúst 2004 00:01
Bodyattack "Margir af tímunum okkar eru kenndir eftir Les Mills-kerfinu sem er tilbúið æfingakerfi sem hefur verið prófað og þrautreynt erlendis," segir Linda Hilmarsdóttir hjá líkamsræktarstöðinni Hress. Menning 30. ágúst 2004 00:01