Innlent

Þungar vikur fram­undan

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Þrjátíu og sjö eru í einangrun á Landspítalanum með inflúensu eða aðrar öndunarfærasýkingar.
Þrjátíu og sjö eru í einangrun á Landspítalanum með inflúensu eða aðrar öndunarfærasýkingar. Vísir/Vilhelm

Stjórnendur Landspítalans búast við að næsta vikur verði þungar eftir að inflúensan tók að breiðast út. Nokkrir sjúklingar liggja á gjörgæslu og bráðamóttöku með inflúensu og hefur grímuskylda verið tekin upp á spítalanum.

Í hádeginu á aðfangadag var grímuskylda tekin upp á Landspítalanum en Hildur Helgadóttir, formaður farsóttanefndar Landspítalans, segir það gert þar sem inflúensan sé að sækja í sig veðrið ofan í aðrar öndunarfærasýkingar sem hafa verið að ganga í samfélaginu.

„Inflúensan er komin og spítalinn er alltaf svona viku tíu dögum á eftir samfélaginu og við vissum það að það voru búin að vera mikil veikindi í samfélaginu fyrir jólin. Þannig við skoðuðum hjá okkur og sáum það að það var að sigla í þetta sama ástand þar sem það voru margir að koma inn með inflúensu og svo sem aðrar öndunarfæraveirur. Þannig við brugðum á það ráð sem að við þekkjum vel og gagnast vel og er lítið íþyngjandi að setja á grímuskyldu.“

Hildur Helgadóttir er formaður farsóttanefndar Landspítalans.Vísir/Egill

Hún segir nokkra sjúklinga liggja inni á bráðamóttökunni með inflúensu og á gjörgæslu.

„Það eru þrjátíu og sjö manns í einangrun á spítalanum út af öndunarfæraveirum. Sem er þá ýmislegt. Það er inflúensan þar á meðal og líka fleiri veirur.“

Þá sé RS vírusinn enn að hafa töluverð áhrif á börn en átta börn liggi inni á Barnaspítalanum með RS. Hildur hvetur fólk til að bólusetja sig gegn flensunni en það er gert hjá heilsugæslustöðvum.

„Það er ekkert orðið of seint. Endilega að gera það því að bólusetningin dregur úr veikindunum. Hún kannski hindrar smit í einhverju tilvikum en allavega verða veikindin minni.“

Þá býst Hildur við að næstu vikur verði snúnar á spítalanum.

„Við bara búumst við fleiri tilvikum og faraldurinn er greinilega að sækja í sig veðrið. Þá fáum við þá sem verða veikastir og þurfa innlögn. Þannig það má alveg búast við að næstu vikur verða þungar.“


Tengdar fréttir

Grímuskylda á Landspítalanum

Grímuskylda hefur verið sett á Landspítalanum yfir hátíðarnar í ljósi þess að inflúensan sé byrjuð að herja á landsmenn í meiri mæli ofan í aðrar öndunarfæraveirur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×