Sport

Sau­tján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Carvana Mesa Arizona Cup MESA, ARIZONA - FEBRUARY 25: Mary Brascia mentally focuses during a timeout against Anna Leigh Waters in the 2024 PPA Carvana Mesa Arizona Cup championships match of the Pro Women's Singles Division at Bell Bank Park on February 25, 2024 in Mesa, Arizona. (Photo by Bruce Yeung/Getty Images)
Carvana Mesa Arizona Cup MESA, ARIZONA - FEBRUARY 25: Mary Brascia mentally focuses during a timeout against Anna Leigh Waters in the 2024 PPA Carvana Mesa Arizona Cup championships match of the Pro Women's Singles Division at Bell Bank Park on February 25, 2024 in Mesa, Arizona. (Photo by Bruce Yeung/Getty Images)

Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í áhugaverðri íþrótt sem hefur vaxið mikið í vinsældum undanfarin ár. Pickleball, eða súrknattleikur, er blanda af badminton, tennis og borðtennis. 

Anna Leigh Waters kemur úr fjölskyldu sem elskar íþróttina og fylgdi í fótspor móður sinnar, Anna hefur verið atvinnumaður síðan hún var ellefu ára gömul og er í dag efst á heimslistanum í súrknattleiks, stærsta stjarnan og sú launahæsta.

„Hún mun þéna meira en þrjár milljónir dollara á þessu ári [um 418 milljónir ísl. króna],“ sagði umboðsmaður hennar, Kelly Wolf, í viðtali við Forbes.

Efsti maðurinn á heimslista karla, Ben Johns, mun til samanburðar þéna hálfri milljón dollara minna. Tekjurnar eru einnig byggðar á samstarfssamningum við fyrirtæki, sem auglýsa íþróttina eða vilja hafa önnur áhrif.

Hvað er pickleball?

Íþróttin var upphaflega leikur barna en hefur vaxið verulega í umfangi og vinsældum.

Skemmtileg blanda sem spiluð er á badminton velli, með bandí bolta, tennis neti og risavöxnum borðtennis spaða.

Nokkuð einföld í framkvæmd, og flestar reglurnar snúast aðeins um upphaf leiksins, uppgjöfina, en aðeins má gefa upp með undirhandarskoti og inn á ákveðið svæði.

Fyrir forvitna sem vilja betur kynna sér pickleball, og innreið íþróttarinnar á Íslandi, má finna ítarlegri umfjöllun Vísis og Stöðvar 2 hér.

Anna Leigh spilar í einni af Major League Picleball deildunum, þar sem LeBron James og Tom Brady meðal annara eiga félög.

Fyrrum tennisstjörnur á borð við Novak Djokovic og Maria Sharapova hafa tekið þátt í kynningarleikjum á mótum þar sem Anna Leigh hefur leikið.

Nýlega var einnig haldinn kynningarleikur í Central Park í New York þar sem hún vann alla tíu leikina fyrir framan þúsundir áhorfenda.

„Þetta er mjög gott fyrir íþróttina. Það eru einhverjar átta milljónir sem búa í New York, þannig að bara sú staðreynd að við spiluðum þarna, meira að segja fólk sem var ekki þarna mun heyra af þessu, sjá þetta og kynnast háklassa súrknattleik,“ sagði framkvæmdastjóri deildarinnar, Ryan Harwood.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×