Göngumenn taldir af í stormi í Himalæjafjöllum Kjartan Kjartansson skrifar 13. október 2018 09:11 Frá Himalæjafjöllum. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/EPA
Óttast er að níu fjallgöngumenn hafi látið lífið þegar stormur gekk yfir tjaldbúðir þeirra á fjalli í Himalæjafjöllum í vestanverðu Nepal. Áhöfn björgunarþyrlu kom auga á átta lík í leifum búðanna en gat ekki lent þyrlunni vegna veðurs. Fimm suður-kóreskir fjallgöngumenn og fjórir sjerpar héldu til í tjöldum í grunnbúðum í Gurja-fjalli þegar mikill stormur og hríð gekk þar yfir, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Kim Chang-ho, sem á hraðametið í að ganga á fjórtán hæstu fjöll heims án súrefnisgrímu, er sagður á meðal þeirra sem fórust. Yfirvöld í Nepal segjast gera ráð fyrir að mennirnir hafi farist af völdum stormsins þar sem tré séu brotin og tjöldin fokin. Þá hafi lík mannanna dreifst um svæðið. Níundi maðurinn hefur enn ekki fundist. Lögreglulið er sagt á leiðinni að tjaldbúðunum fótgangandi. Ætlunin er þó að senda björgunarþyrlu á staðinn á morgun ef veðrinu hefur slotað þá.
Nepal Mest lesið Skammaður af nefndinni og kærður til lögreglu Innlent Öllum starfsmönnum sagt upp og verkefnum úthýst til einkafyrirtækis Innlent Grunaður um að skera mann á háls á gistiheimili í Kópavogi Innlent Staðfesta dóm manns sem nauðgaði konu þremur dögum eftir afplánun Innlent Lögreglan lýsir eftir Áslaugu Innlent Upplifði djúpa sorg þegar Vinstri græn duttu af þingi Innlent Tveir fréttamenn RÚV söðla um Innlent Mannleg mistök hafi valdið því að beiðni til borgarinnar týndist Innlent Réttað yfir manni sem er ákærður fyrir að brjóta gegn fatlaðri konu og syni hennar Innlent Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa undirbúa langvarandi átök við NATO „Við erum að erfa útblásið bákn, þjakað af spillingu“ Webb sér alheiminn einnig þenjast út á vaxandi hraða Trump valinn manneskja ársins: „Pólitísk endurfæðing“ sem á sér enga hliðstæðu Búlgarar og Rúmenar fá inngöngu í Schengen Zuckerberg gefur milljón dala í embættistökusjóð Trumps Ætlar að berjast gegn ásökunum um landráð Neita fullyrðingum þingmanns um dróna frá „móðurskipi“ Íran Engin grið gefin þeim sem stóðu að pyntingum og morðum Forstjóri FBI hyggst stíga til hliðar Sífellt fleiri hoppa fyrir bíla í Afríku Uppreisnarleiðtogar funduðu í fyrsta sinn Skrifaði um að drepa „baunateljara“ Daníel fær 24 ára dóm til viðbótar fyrir barnaníð Eldsprengjur GRU hefðu getað grandað flugvélum DHL Ikea sakað um grænþvott: „Slökkvið á myndavélunum“ Áratugi í fangelsi fyrir að ráðast á dómara Spá veikri og skammlífri „stelpu“ í Kyrrahafi Þingmaður myrtur í Mexíkó Reyndi að svipta sig lífi í varðhaldi Dómari stöðvar sölu Infowars til The Onion Eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hylja ekki hár sitt Boða tíma „stöðugleika og friðar“ Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Féll í gólfið í hádegispásu í þinghúsinu „Síðasta manneskjan sem mann myndi nokkurn tímann gruna“ Fórnarlömb „TikTok-mannsins“ skáluðu í kampavíni Varar Repúblikana við að standa í vegi hans og Trumps Draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands Öngþveiti við „sláturhús“ Assads Sjá meira