Umræða um þingsályktunartillögu Gunnars Braga tekin af dagskrá Alþingis Kjartan Atli Kjartansson skrifar 24. febrúar 2014 13:36 Þingflokksformennirnir gengu af fundi með Einari K. Guðfinnsyni í morgun.
Búið er að taka umræðu um þingsályktunartillögu Gunnars Braga Sveinssonar, sem felur í sér að aðildarumsókn Íslands í Evrópusambandið verði dregin til baka, af dagskrá þingsins í dag. Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna gerðu þá kröfu, á fundi með Einari K. Guðfinnssyni í morgun, að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra yrði tekin af dagskrá í dag. Þingflokksformennirnir voru ósáttir með hvernig tilkynnt var um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar og vildu að málið yrði tekið af dagskrá. Einar vildi ekki verða við þeirri bón og gengu formennirnir því af fundinum ósáttir. Í samtali við Vísi, staðfesti Róbert Marshall, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar að málið hafi verið tekið af dagskrá, að Einar hafi orðið við bón þingflokksformannanna. „Okkur var tilkynnt um að málið hefði formlega verið tekið af dagskrá og fastlega er gert ráð fyrir því að það fari aftur á dagskrá á morgun,“ segir Róbert. Þó að málið hafi verið á dagskrá þingsins í dag var ólíklegt að til umræðu hefði komið. „Það eru gríðarlega margir á mælendaskrá vegna umræðunnar um skýrslu Hagfræðistofnunar og umræðan um þingsályktunartillöguna hefði líklega aldrei orðið. En við tökum viljan fyrir verkið,“ segir Róbert.
Mest lesið Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Innlent Biden náðar son sinn Erlent Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Innlent Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Veður Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Fleiri fréttir „Maður er einhvern veginn í spennufalli“ Beiðni um endurtalningu borist og talningarmenn á tánum Vegir víða á óvissustigi Formenn funda með forseta Lýsir eftir vitnum á Seltjarnarnesi Segir gríðarleg tregðulögmál að verki á þinginu Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti Sjá meira