Veður

Vaxandi lægð og gular við­varanir víða um land

Atli Ísleifsson skrifar
Gular viðvarnir taka gildi vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Suðurlandi, Breiðafirði, Vestfjörðun, Suðausturlandi og Miðhálendi í dag.
Gular viðvarnir taka gildi vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Suðurlandi, Breiðafirði, Vestfjörðun, Suðausturlandi og Miðhálendi í dag. Veðurstofan

Það var mjög kalt á landinu í nótt, frost fór til dæmis niður fyrir tuttugu stig á nokkrum stöðvum á Norðausturlandi.

Austur af Hvarfi er nú vaxandi lægð og nálgast skil hennar landið. Það fer að snjóa frá þeim suðvestantil seinni partinn og í kvöld er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi með snjókomu, slyddu eða rigningu á Suður- og Vesturlandi.

Veðurstofan hefur sett Mosfellsheiði, Þrengslin og Hellisheiðina á óvissustig vegna veðurs milli klukkan 15 í dag og 23 í kvöld. Vegurinn gæti þannig lokað með stuttum fyrirvara.

Gular viðvaranir vegna hríðar hafa verið gefnar út. Vegfarendum er bent á að fylgjast með veðurspám og fréttum af færð. Mun hægari vindur norðan- og austanlands, þurrt og kalt veður.

Á höfuðborgarsvæðinu verður gul viðvörun í gildi milli 18 og miðnættis í kvöldþar sem búast má við skafrenningi og lélegum aksturskilyrðum, einkum í efri byggðum. Færð gæti spillst.

Gular viðvarnir taka einnig gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Suðurlandi, Breiðafirði, Vestfjörðun, Suðausturlandi og Miðhálendi í dag.

Í nótt og á morgun hreyfast skilin austur yfir land og það lægir í kjölfar þeirra. Skúrir eða él á víð og dreif á morgun, en rigning eða slydda fyrir austan fram eftir degi.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðlæg átt 5-13 m/s og skúrir eða él, en rigning eða slydda fram eftir degi austanlands. Hiti kringum frostmark. Þurrt að kalla á Norðurlandi og frost 0 til 7 stig.

Á miðvikudag: Sunnan 3-10 og stöku él suðvestan- og vestanlands, annars bjart með köflum. Frost 0 til 10 stig. Vaxandi norðaustanátt síðdegis og slydda eða rigning suðaustantil um kvöldið.

Á fimmtudag: Norðanátt með slyddu eða rigningu, einkum norðaustan- og austanlands, en snjókomu og vægu frosti um landið norðvestanvert.

Á föstudag: Norðanátt og snjókoma eða él, en úrkomulítið á Suðurlandi. Kólnandi veður.

Á laugardag: Norðanátt og él norðaustantil, annars þurrt. Kalt í veðri.

Á sunnudag: Útlit fyrir bjart og kalt veður á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×