Efnahagsmál Skammast sín ekki fyrir að skipta um skoðun Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, segist ekki skammast sín fyrir að hafa dregið umdeilda tekjuskattslækkun til baka en hún hafi tekið ákvörðunina mjög fljótlega þar sem skattalækkunin hafi verið að draga athygli frá öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hún sætir nú gagnrýni úr öllum áttum, þar á meðal innan raða eigin flokks. Erlent 4.10.2022 13:55 Íbúðaverð fer víða lækkandi og hér á landi hafa líkur á „leiðréttingu“ aukist Íbúðaverð í mörgum löndum er farið að lækka nokkuð hratt að raunvirði, meðal annars á hinum Norðurlöndunum, samhliða kólnandi markaði og hækkandi fasteignalánavöxtum. Veruleg hækkun íbúðaverðs á Íslandi umfram ákvarðandi efnahagslega þætti á síðustu mánuðum bendir til „mikils ójafnvægis“ á fasteignamarkaði, að mati Seðlabankans. Innherji 4.10.2022 10:30 Flýja hlutabréf vegna óvissu og lækkana á erlendum mörkuðum Þótt efnahagshorfurnar hér á landi séu um margt betri en í okkar helstu viðskiptalöndum þá hafa verðlækkanir á íslenska hlutabréfamarkaðinum í mörgum tilfellum verið meiri en þekkist erlendis og er Úrvalsvísitalan niður um 15 prósent frá því um miðjan september. Áframhaldandi sala erlendra sjóða, aukin skortsala og hrina veðkalla gagnvart skuldsettum fjárfestum skýrir meðal annars þróunina að undanförnu, að sögn viðmælenda Innherja. Innherji 4.10.2022 07:00 Líkur á innflæði gjaldeyris vegna vaxtamunarviðskipta hafa aukist Vaxtamunur Íslands við útlönd, einkum til skamms tíma, hefur aukist talsvert á árinu samhliða því að Seðlabanki Íslands hefur hækkað vexti sína nokkru meira en í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu. Innherji 3.10.2022 11:00 Helstu hætturnar fyrir Seðlabanka Bandaríkjanna og Kína Seðlabanki Bandaríkjanna hefur nú hækkað vexti um 75 punkta þrjú skipti í röð. Eins og við mátti búast heyrast kröftug mótmæli frá álitsgjöfum og stjórnmálamönnum, varandi við yfirskotum við vaxtahækkanir. Ég er ósammála. Það er löngu orðið tímabært fyrir Seðlabanka Bandaríkjanna að byrja á að grafa sig upp úr þeirri dýpstu holu sem hann hefur nokkurn tíma komið sér í. Umræðan 1.10.2022 10:46 Spá níundu stýrivaxtahækkuninni í röð Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti enn frekar í næstu viku. Viðskipti innlent 29.9.2022 12:01 Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innlent 28.9.2022 19:22 Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. Innlent 28.9.2022 12:23 Verðbólgan komin niður í 9,3 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða heldur áfram að minnka og mældist 9,3 prósent í september. Verð á fötum og skóm og raftækjum til heimilisnota kom helst til hækkunar en verð á flugfargjöldum til lækkunar. Viðskipti innlent 28.9.2022 09:23 Bein útsending: Fjármálastöðugleikanefnd kynnir yfirlýsingu sína Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 28.9.2022 09:04 Líkur á að vaxandi áhætta tengdri fjármálastöðugleika haldi áfram Líkur eru á að áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi muni halda áfram að vaxa vegna versnandi ytri aðstæðna. Viðskipti innlent 28.9.2022 08:35 Fimm aumir ráðherrastólar Sú ríkisstjórn sem nú er við völd hefur fyrst og fremst verið eyðslustjórn frá því hún var mynduð árið 2017 og nú virðist hún ætla að falla á stóra prófi ríkisfjármálanna. Umræðan 27.9.2022 12:31 Peningaprentun fór úr böndunum í heimsfaraldri Erfið staða efnahagsmála í Evrópu er ekki eingöngu vegna orkuskorts heldur einna helst afleiðing mikillar peningaprentunar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum frá vormánuðum 2020. Þetta er mat Lars Christensen, hagfræðings. Innherji 27.9.2022 10:01 „Þetta voru losaraleg tímamörk“ Almenningur þarf enn að bíða eftir Íslandsbankaskýrslunni. Nú er gert ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber í október en í upphafi var stefnt að því að skýrslan fengi að líta dagsins ljós í júní. Yfirferð Ríkisendurskoðunar hefur tekið töluvert meiri tíma en áætlað var í upphafii en íkisendurskoðandi segir að töfin eigi sér málefnalegar skýringar. Innlent 26.9.2022 18:51 Innlán fyrirtækja bólgnað út um nærri 50 prósent á rúmlega einu ári Ekkert lát er á miklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja en frá því um vorið 2021 hafa þau aukist að umfangi í bankakerfinu um nærri fimmtíu prósent. Á sama tíma hefur verið afar lítil aukning í innlánum heimilanna sem hafa skroppið saman að raunvirði á síðustu mánuðum og misserum. Innherji 26.9.2022 17:49 Spá mesta hagvexti síðustu fimmtán ára Hagvöxtur á Íslandi verður 7,3 prósent á árinu 2022 ef marka má spá greiningardeildar Íslandsbanka sem kynnt verður síðar í dag. Svo mikill hagvöxtur hefur ekki verið hér á landi í fimmtán ár. Innherji 26.9.2022 05:01 Stýrivextir ekki hærri í Bretlandi frá 2008 Seðlabanki Bretlands hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósent og standa vextirnir nú í 2,5 prósentum og hafa ekki verið hærri síðan árið 2008. Um er að ræða sjöundu stýrivaxtahækkun bankans í röð en sérfræðingar höfðu spáð allt að 0,75 prósenta hækkun. Viðskipti erlent 22.9.2022 11:45 Merki um „hraðan viðsnúning íbúðaverðs“ að mati SA Nýjustu mælingar Þjóðskrár á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu má að mati Samtaka atvinnulífsins túlka sem „hraðan viðsnúning íbúðaverðs“, einkum í ljósi þess að áhrif aðgerða Seðlabanka Íslands eru ekki komin fram nema að hluta til. Innherji 21.9.2022 14:26 Auknar líkur á efnahagssamdrætti á næsta ári, segir Analytica Minnkandi kortavelta innanlands og samdráttur í aflamagni er á meðal þeirra þátta sem valda því að leiðandi hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum, lækkar núna í fyrsta sinn frá árinu 2018. Innherji 18.9.2022 16:01 Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. Innlent 16.9.2022 19:21 Ríkisstjórnin bregst við mikilli þenslu með aðhaldi Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði álíka miklar og öll útgjöld ríkisins á næsta ári. Fjármálaráðherra segir fjárlög næsta árs miða að því að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins og vinna bug á verðbólgunni. Innlent 15.9.2022 19:31 Bjarni segir markmið fjárlaga að styðja heimilin og vinna gegn verðbólgu Fjármálaráðherra segir markmið fjárlagafrumvarps næsta árs að styðja við heimilin í landinu, vinna gegn verðbólgu og byggja upp styrk ríkissjóðs. Fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd segir aukna flata skattheimtu fyrst og fremst bitna á þeim tekjulægstu og halda aftur að nauðsynlegri innviðauppbyggingu. Innlent 15.9.2022 11:58 „Miðað við efnahagsþróunina hefði verið æskilegt að ganga lengra“ Minnkandi hallarekstur ríkissjóðs ber þess merki að ríkisstjórnin og Seðlabanki Íslands gangi í takt en í ljósi verðbólguþróunar og þenslu í hagkerfinu hefði verið æskilegt að stíga stærri skref í átt að því að eyða hallanum. Þetta kemur fram í umsögnum viðmælenda Innherja um fjárlagafrumvarpið fyrir ári 2023 sem var kynnt í gær. Innherji 13.9.2022 14:24 Ætla að sækja allar hækkanir í fjárlagafrumvarpinu aftur í kjarasamningum Formaður VR segir fyrirhugaðar skattahækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi koma til með að hafa bein áhrif á kröfur félagsins við komandi kjarasamningsgerð. Hann hefði viljað sjá stórar aðgerðir eins og leiguþak í frumvarpinu til að sporna gegn verðbólgunni. Innlent 13.9.2022 13:05 Ríkisstjórnin rifar seglin í fjárlagafrumvarpi vegna verðbólgu Forsætisráðherra segir fjárlagafrumvarpið taka mið af því að nú séu snúir tímar með verðbólguþróun sem verði að takast á við. Aukning framlaga til einstakra málaflokka sé því minni en áður. Alþingi verður sett með hefðbundnum hætti klukkan hálf tvö í dag. Innlent 13.9.2022 12:56 ÍL-sjóður „stór óvissuþáttur“ í efnahag ríkissjóðs Þróun efnahags ÍL-sjóðs, sem áður hét Íbúðalánasjóður, er „stór óvissuþáttur“ í langtímaþróun skulda ríkissjóðs í ljósi þess að efnahagur sjóðsins er bæði umfangsmikill og næmur fyrir breytingum á markaðsaðstæðum. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2023 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag. Innherji 12.9.2022 15:11 Útgjaldaaukning mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála Útgjaldaaukning til velferðarmála er mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála að sögn fjármálaráðherra sem kynnti fjárlög ársins 2023 í dag. Ráðherra kom það að sögn á óvart hve góðar og langt umfram spár efnahagshorfurnar eru á þessari stundu. Innlent 12.9.2022 11:09 Gert ráð fyrir 89 milljarða króna halla Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 89 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætluð um 1.296,5 milljarðar á árinu 2023, sem er hækkun um 78,5 milljarða frá fjárlögum fyrra árs. Innlent 12.9.2022 09:21 Bjarni kynnir fjárlagafrumvarp fyrir árið 2023 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023 á blaðamannafundi í ráðuneyti sínu við Arnarhvol. Innlent 12.9.2022 08:01 Boðar til aðhaldsaðgerða í fjárlagafrumvarpi næsta árs Fjármálaráðherra hefur ákveðið að draga úr stuðningi við stjórnmálaflokka um fimm prósent á næsta ári og grípa til annarra viðlíka aðhaldsaðgerða til að vinna bug á verðbólgunni. Ráðherrann mun kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á mánudaginn. Innlent 10.9.2022 13:55 « ‹ 27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 70 ›
Skammast sín ekki fyrir að skipta um skoðun Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, segist ekki skammast sín fyrir að hafa dregið umdeilda tekjuskattslækkun til baka en hún hafi tekið ákvörðunina mjög fljótlega þar sem skattalækkunin hafi verið að draga athygli frá öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hún sætir nú gagnrýni úr öllum áttum, þar á meðal innan raða eigin flokks. Erlent 4.10.2022 13:55
Íbúðaverð fer víða lækkandi og hér á landi hafa líkur á „leiðréttingu“ aukist Íbúðaverð í mörgum löndum er farið að lækka nokkuð hratt að raunvirði, meðal annars á hinum Norðurlöndunum, samhliða kólnandi markaði og hækkandi fasteignalánavöxtum. Veruleg hækkun íbúðaverðs á Íslandi umfram ákvarðandi efnahagslega þætti á síðustu mánuðum bendir til „mikils ójafnvægis“ á fasteignamarkaði, að mati Seðlabankans. Innherji 4.10.2022 10:30
Flýja hlutabréf vegna óvissu og lækkana á erlendum mörkuðum Þótt efnahagshorfurnar hér á landi séu um margt betri en í okkar helstu viðskiptalöndum þá hafa verðlækkanir á íslenska hlutabréfamarkaðinum í mörgum tilfellum verið meiri en þekkist erlendis og er Úrvalsvísitalan niður um 15 prósent frá því um miðjan september. Áframhaldandi sala erlendra sjóða, aukin skortsala og hrina veðkalla gagnvart skuldsettum fjárfestum skýrir meðal annars þróunina að undanförnu, að sögn viðmælenda Innherja. Innherji 4.10.2022 07:00
Líkur á innflæði gjaldeyris vegna vaxtamunarviðskipta hafa aukist Vaxtamunur Íslands við útlönd, einkum til skamms tíma, hefur aukist talsvert á árinu samhliða því að Seðlabanki Íslands hefur hækkað vexti sína nokkru meira en í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu. Innherji 3.10.2022 11:00
Helstu hætturnar fyrir Seðlabanka Bandaríkjanna og Kína Seðlabanki Bandaríkjanna hefur nú hækkað vexti um 75 punkta þrjú skipti í röð. Eins og við mátti búast heyrast kröftug mótmæli frá álitsgjöfum og stjórnmálamönnum, varandi við yfirskotum við vaxtahækkanir. Ég er ósammála. Það er löngu orðið tímabært fyrir Seðlabanka Bandaríkjanna að byrja á að grafa sig upp úr þeirri dýpstu holu sem hann hefur nokkurn tíma komið sér í. Umræðan 1.10.2022 10:46
Spá níundu stýrivaxtahækkuninni í röð Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti enn frekar í næstu viku. Viðskipti innlent 29.9.2022 12:01
Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innlent 28.9.2022 19:22
Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. Innlent 28.9.2022 12:23
Verðbólgan komin niður í 9,3 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða heldur áfram að minnka og mældist 9,3 prósent í september. Verð á fötum og skóm og raftækjum til heimilisnota kom helst til hækkunar en verð á flugfargjöldum til lækkunar. Viðskipti innlent 28.9.2022 09:23
Bein útsending: Fjármálastöðugleikanefnd kynnir yfirlýsingu sína Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 28.9.2022 09:04
Líkur á að vaxandi áhætta tengdri fjármálastöðugleika haldi áfram Líkur eru á að áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi muni halda áfram að vaxa vegna versnandi ytri aðstæðna. Viðskipti innlent 28.9.2022 08:35
Fimm aumir ráðherrastólar Sú ríkisstjórn sem nú er við völd hefur fyrst og fremst verið eyðslustjórn frá því hún var mynduð árið 2017 og nú virðist hún ætla að falla á stóra prófi ríkisfjármálanna. Umræðan 27.9.2022 12:31
Peningaprentun fór úr böndunum í heimsfaraldri Erfið staða efnahagsmála í Evrópu er ekki eingöngu vegna orkuskorts heldur einna helst afleiðing mikillar peningaprentunar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum frá vormánuðum 2020. Þetta er mat Lars Christensen, hagfræðings. Innherji 27.9.2022 10:01
„Þetta voru losaraleg tímamörk“ Almenningur þarf enn að bíða eftir Íslandsbankaskýrslunni. Nú er gert ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber í október en í upphafi var stefnt að því að skýrslan fengi að líta dagsins ljós í júní. Yfirferð Ríkisendurskoðunar hefur tekið töluvert meiri tíma en áætlað var í upphafii en íkisendurskoðandi segir að töfin eigi sér málefnalegar skýringar. Innlent 26.9.2022 18:51
Innlán fyrirtækja bólgnað út um nærri 50 prósent á rúmlega einu ári Ekkert lát er á miklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja en frá því um vorið 2021 hafa þau aukist að umfangi í bankakerfinu um nærri fimmtíu prósent. Á sama tíma hefur verið afar lítil aukning í innlánum heimilanna sem hafa skroppið saman að raunvirði á síðustu mánuðum og misserum. Innherji 26.9.2022 17:49
Spá mesta hagvexti síðustu fimmtán ára Hagvöxtur á Íslandi verður 7,3 prósent á árinu 2022 ef marka má spá greiningardeildar Íslandsbanka sem kynnt verður síðar í dag. Svo mikill hagvöxtur hefur ekki verið hér á landi í fimmtán ár. Innherji 26.9.2022 05:01
Stýrivextir ekki hærri í Bretlandi frá 2008 Seðlabanki Bretlands hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósent og standa vextirnir nú í 2,5 prósentum og hafa ekki verið hærri síðan árið 2008. Um er að ræða sjöundu stýrivaxtahækkun bankans í röð en sérfræðingar höfðu spáð allt að 0,75 prósenta hækkun. Viðskipti erlent 22.9.2022 11:45
Merki um „hraðan viðsnúning íbúðaverðs“ að mati SA Nýjustu mælingar Þjóðskrár á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu má að mati Samtaka atvinnulífsins túlka sem „hraðan viðsnúning íbúðaverðs“, einkum í ljósi þess að áhrif aðgerða Seðlabanka Íslands eru ekki komin fram nema að hluta til. Innherji 21.9.2022 14:26
Auknar líkur á efnahagssamdrætti á næsta ári, segir Analytica Minnkandi kortavelta innanlands og samdráttur í aflamagni er á meðal þeirra þátta sem valda því að leiðandi hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum, lækkar núna í fyrsta sinn frá árinu 2018. Innherji 18.9.2022 16:01
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. Innlent 16.9.2022 19:21
Ríkisstjórnin bregst við mikilli þenslu með aðhaldi Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði álíka miklar og öll útgjöld ríkisins á næsta ári. Fjármálaráðherra segir fjárlög næsta árs miða að því að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins og vinna bug á verðbólgunni. Innlent 15.9.2022 19:31
Bjarni segir markmið fjárlaga að styðja heimilin og vinna gegn verðbólgu Fjármálaráðherra segir markmið fjárlagafrumvarps næsta árs að styðja við heimilin í landinu, vinna gegn verðbólgu og byggja upp styrk ríkissjóðs. Fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd segir aukna flata skattheimtu fyrst og fremst bitna á þeim tekjulægstu og halda aftur að nauðsynlegri innviðauppbyggingu. Innlent 15.9.2022 11:58
„Miðað við efnahagsþróunina hefði verið æskilegt að ganga lengra“ Minnkandi hallarekstur ríkissjóðs ber þess merki að ríkisstjórnin og Seðlabanki Íslands gangi í takt en í ljósi verðbólguþróunar og þenslu í hagkerfinu hefði verið æskilegt að stíga stærri skref í átt að því að eyða hallanum. Þetta kemur fram í umsögnum viðmælenda Innherja um fjárlagafrumvarpið fyrir ári 2023 sem var kynnt í gær. Innherji 13.9.2022 14:24
Ætla að sækja allar hækkanir í fjárlagafrumvarpinu aftur í kjarasamningum Formaður VR segir fyrirhugaðar skattahækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi koma til með að hafa bein áhrif á kröfur félagsins við komandi kjarasamningsgerð. Hann hefði viljað sjá stórar aðgerðir eins og leiguþak í frumvarpinu til að sporna gegn verðbólgunni. Innlent 13.9.2022 13:05
Ríkisstjórnin rifar seglin í fjárlagafrumvarpi vegna verðbólgu Forsætisráðherra segir fjárlagafrumvarpið taka mið af því að nú séu snúir tímar með verðbólguþróun sem verði að takast á við. Aukning framlaga til einstakra málaflokka sé því minni en áður. Alþingi verður sett með hefðbundnum hætti klukkan hálf tvö í dag. Innlent 13.9.2022 12:56
ÍL-sjóður „stór óvissuþáttur“ í efnahag ríkissjóðs Þróun efnahags ÍL-sjóðs, sem áður hét Íbúðalánasjóður, er „stór óvissuþáttur“ í langtímaþróun skulda ríkissjóðs í ljósi þess að efnahagur sjóðsins er bæði umfangsmikill og næmur fyrir breytingum á markaðsaðstæðum. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2023 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag. Innherji 12.9.2022 15:11
Útgjaldaaukning mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála Útgjaldaaukning til velferðarmála er mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála að sögn fjármálaráðherra sem kynnti fjárlög ársins 2023 í dag. Ráðherra kom það að sögn á óvart hve góðar og langt umfram spár efnahagshorfurnar eru á þessari stundu. Innlent 12.9.2022 11:09
Gert ráð fyrir 89 milljarða króna halla Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 89 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætluð um 1.296,5 milljarðar á árinu 2023, sem er hækkun um 78,5 milljarða frá fjárlögum fyrra árs. Innlent 12.9.2022 09:21
Bjarni kynnir fjárlagafrumvarp fyrir árið 2023 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023 á blaðamannafundi í ráðuneyti sínu við Arnarhvol. Innlent 12.9.2022 08:01
Boðar til aðhaldsaðgerða í fjárlagafrumvarpi næsta árs Fjármálaráðherra hefur ákveðið að draga úr stuðningi við stjórnmálaflokka um fimm prósent á næsta ári og grípa til annarra viðlíka aðhaldsaðgerða til að vinna bug á verðbólgunni. Ráðherrann mun kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á mánudaginn. Innlent 10.9.2022 13:55