Íslandsbanki Frosti Sigurjónsson býður sig fram í stjórn Íslandsbanka Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi alþingismaður, býður sig fram til setu í stjórn Íslandsbanka. Hann er ekki á lista yfir þá sem tilnefningarnefnd mælir með að sitji í stjórn bankans. Frosti segir að þegar honum bárust þau tíðindi hafi hann upplýst nefndina að hann vilji engu að síður vera í framboði enda séu það hluthafar sem velji stjórn en tilnefningarnefnd komi með tillögur. Hann hefur vakið athygli stjórnenda lífeyrissjóða á framboði sínu. „Lokaákvörðun er hjá hluthöfum.“ Innherji 25.7.2023 13:39 Efsta stéttin sé með vanstilltan siðferðiskompás Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, furðar sig á því að bankastjóri Íslandsbanka hafi verið með tæpar 57 milljónir í starfslokasamning. Það komi honum hins vegar ekki á óvart, efsta stéttin hér á landi sé með vanstilltan siðferðiskompás. Innlent 24.7.2023 13:19 Birna með 56,6 milljónir króna í starfslokasamning Ráðningarsamningur Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, kvað á um tólf mánaða uppsagnarfrest og er gjaldfærsla vegna launa og hlunninda 56,6 milljónir króna. Þetta kemur fram í svörum stjórnar bankans til hluthafa vegna fyrirhugaðs hluthafafundar sem fer fram þann 28. júlí næstkomandi. Viðskipti innlent 21.7.2023 18:12 Stækkað stöðu sína í Íslandsbanka um nærri milljarð eftir sátt bankans við FME Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) hefur verið umsvifamestur meðal stærri hluthafa Íslandsbanka að auka við hlutabréfastöðu sína dagana eftir að bankinn tilkynnti í lok júní um sátt við fjármálaeftirlitið, sem fól í sér hæstu sektargreiðslu fjármálafyrirtækis í Íslandssögunni, vegna brota á lögum og innri reglum við sölu á hlutum í sjálfum sér í fyrra. Lífeyrissjóðurinn stækkaði eignarhlut sinn samhliða því að hlutabréfaverð Íslandsbanka fór lækkandi. Innherji 20.7.2023 11:47 Formaður og varaformaður hætta í stjórn Íslandsbanka Finnur Árnason, Guðrún Þorgeirsdóttir og Ari Daníelsson gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Íslandsbanka. Finnur er núverandi stjórnarformaður bankans og Guðrún varaformaður. Tilnefningarnefnd bankans leggur til að Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel, verði kjörin nýr formaður stjórnar. Viðskipti innlent 18.7.2023 14:41 Íslandsbanki frestar birtingu tilnefninga til stjórnar Tilnefninganefnd Íslandsbanka hefur frestað birtingu tilnefninga til stjórnar bankans um eina viku. Viðskipti innlent 15.7.2023 09:46 Hagnaður Arion banka ætti að tvöfaldast á grunni sterkra vaxtatekna Væntingar eru um að afkoma stóru viðskiptabankanna í Kauphöllinni verði umfram arðsemismarkmið þeirra á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum hafi enn neikvæð áhrif á fjármunartekjurnar. Þar munar mestu um kröftugan vöxt í vaxtatekjum, stærsti tekjupóstur Arion banka og Íslandsbanka, en útlit er fyrir að hagnaður Arion af reglulegri starfsemi muni meira en tvöfaldast frá fyrra ári, samkvæmt spám hlutabréfagreinenda. Innherji 13.7.2023 13:19 Yfirtók gagnaverið af Íslandsbanka fyrir nærri milljarð Borealis Data Center keypti félagið Reykjavík DC, sem starfrækir gagnaver á Korputorgi, fyrir tæplega 900 milljónir íslenskra króna síðastliðið haust af Íslandsbanka. Vegna fjárhagsvandræða hafði gagnaverið verið yfirtekið af bankanum, stærsta lánadrottni sínum, í árslok 2021 og í kjölfarið voru meðal annars um 400 milljónir af skuldum félagsins afskrifaðar samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu. Innherji 13.7.2023 07:44 „Meirihlutanum finnst þetta ekki nógu mikilvægt“ Þrír nefndarmenn fjárlaganefndar þingsins hafa kallað eftir því að nefndin komi saman til að ræða bæði Lindarhvolsmálið og Íslandsbankasöluna. Einn þeirra telur ólíklegt að nefndin verði kölluð saman. Engin viðbrögð hafi borist frá meirihluta nefndarinnar. Innlent 10.7.2023 13:00 Brot bankans mögulega rakin til brotalama hjá Bankasýslunni Ríkisendurskoðandi segir að ef Bankasýsla ríkisins hefði lagt betri grunn að söluferlinu á Íslandsbanka hefði mátt komast hjá fjölda brota sem sátt Fjármálaeftirlitsins við bankann tekur til. Ekki megi gleyma að Bankasýslan hafi verið framkvæmdaraðili sölunnar og beri því víðtæka ábyrgð. Viðskipti innlent 5.7.2023 12:10 Bankasýslan ekki dregið neinn lærdóm og hyggist ekki axla ábyrgð Ríkisendurskoðun getur ekki dregið aðra ályktun en að Bankasýsla ríkisins hafi fyrir sitt leyti engan lærdóm dregið af skýrslu embættisins um sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Jafnframt standi ekki til af hálfu Bankasýslunnar að axla neina þá ábyrgð sem henni beri sem framkvæmdaraðila útboðsins og fjallað er um í skýrslunni. Viðskipti innlent 4.7.2023 18:51 Fær 47 milljónir vegna starfslokanna Bankastjóri Íslandsbanka segir stemningu meðal starfsmanna bankans þunga og mikla sorg ríkja eftir erfiða viku. Hann fundar með formanni VR í vikunni og mun gera sitt besta til að endurvinna traust hans. Viðskipti innlent 3.7.2023 18:31 Ákveða framhald viðskipta eftir hluthafafund bankans Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að stjórn félagsins muni ákveða framhald viðskipta við Íslandsbanka að loknum hluthafafundi 28. júlí. Á fundinum verður ný stjórn kjörin. Viðskipti innlent 3.7.2023 16:55 Hvenær fór ríkisstjórnin að treysta Bankasýslunni aftur? Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna í fjárlaganefnd segja nauðsynlegt að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur verði birtur. Það er sanngjörn krafa. Bryndís Haraldsdóttir segir að það þurfi auðvitað að birta allt í kringum þessa sölu. Það er rétt. Og ef það er ætlunin að að endurheimta traust þarf að birta allt, en ekki bara sumt. Það þarf að segja söguna alla en ekki bara að birta valda kafla. Skoðun 3.7.2023 12:49 Starfsmannabreytingum hjá Íslandsbanka vegna útboðsins lokið Þrír yfirmenn hjá Íslandsbanka hafa látið af störfum undanfarna viku, síðast í gær. Bankastjóri segir starfsmannabreytingum með þessu lokið. Greint verði frá frekari úrbótum á starfsemi bankans á hluthafafundi í lok mánaðar. Viðskipti innlent 3.7.2023 11:50 Yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka lætur af störfum Atli Rafn Björnsson, sem hefur stýrt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka frá árinu 2019, hefur látið af störfum en hann er þriðji stjórnandinn sem hættir eftir að félagið samþykkti að greiða tæplega 1,2 milljarða sektargreiðslu vegna brota á lögum og innri reglum sínum við sölu á hlutum í sjálfum sér í útboði bankans í fyrra. Innherji 2.7.2023 23:34 „Mér finnst þetta bara skelfilegt og ekki til fyrirmyndar“ Háværar kröfur eru um að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans segir stjórnina ekki hafa tekið afstöðu til málsins en búið er að boða til hluthafafundar. Landsmenn segja málið hneyksli. Innlent 2.7.2023 20:03 Ný stjórn kosin á hluthafafundi Stjórn Íslandsbanka hefur boðað til hluthafafundar í lok mánaðar þar sem kosið verður í stjórn, varastjórn og embætti formanns stjórnar auk þess sem fjallað verður um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 2.7.2023 14:01 Stjórn hefur ekki tekið afstöðu til birtingar starfslokasamnings Nefndarmenn fjárlaganefndar Alþingis krefjast þess að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans segir stjórn bankans ekki hafa tekið afstöðu til málsins. Innlent 2.7.2023 12:27 Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað. Viðskipti innlent 1.7.2023 18:59 Þungur baggi Íslandsbanka fælir Kviku frá samruna Hartnær fimm mánuðum eftir að samrunaviðræður hófust milli Kviku banka og Íslandsbanka ákvað stjórn Kviku að slíta viðræðunum. Stjórnin vísaði til „atburða síðustu daga“ en fór ekki í saumana á því hvers vegna ákveðið var að slíta viðræðum þegar ljóst var að ávinningurinn af samruna gæti orðið verulegur. Að baki ákvörðuninni liggur sú staðreynd að sátt Íslandsbanka við fjármálaeftirlitið, sem var áfellisdómur yfir vinnubrögðum bankans við útboð á eigin hlutum, getur haft svo víðtækar afleiðingar, bæði í pólitískum og viðskiptalegum skilningi, að stórar forsendur bresta. Klinkið 30.6.2023 12:41 Viðræðum Kviku og Íslandsbanka slitið: „Það kom mér á óvart hvernig þessar niðurstöður voru“ Forstjóri Kviku banka segir Íslandsbanka eftir sem áður gott fyrirtæki og að hann sjái vel fyrir sér að hægt verði að taka upp þráðinn í viðræðum um sameiningu félaganna tveggja, að loknum hluthafafundi Íslandsbanka. Viðskipti innlent 29.6.2023 20:10 Segist maðurinn til að leiða bankann áfram og tekur varnaðarorðum VR alvarlega Formaður VR segir félagið hætta milljarða viðskiptum sínum við Íslandsbanka ef bankinn telji það eitt duga að bankastjórinn hætti störfum vegna fjölmargra brota við útboð bankans á hlut ríkisins í fyrra. Nýr bankastjóri leggur áherslu á að bankinn bregðist við umbótakröfum Fjármálaeftirlitsins og segir sjálfsagt að biðjast afsökunar á því sem fór úrskeiðis. Viðskipti innlent 29.6.2023 18:47 Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka „í ljósi atburða síðustu daga“ Stjórn Kviku banka telur ekki forsendur til þess að halda áfram viðræðum um mögulegan samruna við Íslandsbanka, sem hafa staðið yfir síðustu mánuði, og hefur því slitið þeim. Ekki var búið að komast að sameiginlegri niðurstöðu um skiptihlutföll. Innherji 29.6.2023 16:45 Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka Kvika banki hefur tilkynnt að bankinn hafi slitið viðræðum um mögulegan samruna bankans við Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar. Íslandsbanki segist sammála þeirri ákvörðun. Viðskipti innlent 29.6.2023 16:14 Einkavædd einkavæðing Fjármálaráðherra hneykslast á þeim sem vilja kalla hann til ábyrgðar vegna alvarlegra og kerfislægra lögbrota sem framin voru við sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka síðastliðið vor. Sama hneykslun birtist í viðbrögðum forstjóra og stjórnarformanns Bankasýslunnar við spurningum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær. Skoðun 29.6.2023 10:33 Sláandi að menn telji enn söluna hafa verið farsæla Þingmenn stjórnarandstöðu telja mörgum spurningum enn ósvarað um mál Íslandsbanka. Bankasýslan segir ábyrgðina liggja hjá bankanum og að útboðið hafi verið eitt það farsælasta í Evrópu. Viðskipti innlent 28.6.2023 22:00 Katastrófísk krísustjórnun Íslandsbanka Þeir sem sinna almannatengslum klóra sér margir hverjir í kolli vegna viðbragða Birnu Einarsdóttur fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka og samskiptadeildar bankans í aðdraganda þess að hún þurfti svo nauðbeygð að segja upp störfum. Innlent 28.6.2023 17:15 Íslandsbankasalan eitt farsælasta útboðið í Evrópu Stjórnarmenn Bankasýslu ríkisins segja það hafa verið mikil vonbrigði að ekki hafi verið farið að lögum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þeir standa við orð sín um að hlutafjárútboðið hafi verið það farsælasta í Íslandssögunni og segja það eitt af farsælli útboðum Evrópu. Viðskipti innlent 28.6.2023 15:58 Ekki hægt að gera starfsmenn persónulega ábyrga fyrir sektargreiðslum Hægt er að hafa fullt traust á íslensku fjármálakerfi þrátt fyrir þá atvikalýsingu sem lesa má um í sátt Fjármálaeftirlitsins við Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Betra væri að ræða um játningu en sátt. Þetta er meðal þess sem fram kom á opnum fundi í efnahags-og viðskiptanefnd fyrir skemmstu. Fulltrúar frá Seðlabankanum voru gestir á fyrri hluta fundarins. Viðskipti innlent 28.6.2023 14:34 « ‹ 3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 13 ›
Frosti Sigurjónsson býður sig fram í stjórn Íslandsbanka Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi alþingismaður, býður sig fram til setu í stjórn Íslandsbanka. Hann er ekki á lista yfir þá sem tilnefningarnefnd mælir með að sitji í stjórn bankans. Frosti segir að þegar honum bárust þau tíðindi hafi hann upplýst nefndina að hann vilji engu að síður vera í framboði enda séu það hluthafar sem velji stjórn en tilnefningarnefnd komi með tillögur. Hann hefur vakið athygli stjórnenda lífeyrissjóða á framboði sínu. „Lokaákvörðun er hjá hluthöfum.“ Innherji 25.7.2023 13:39
Efsta stéttin sé með vanstilltan siðferðiskompás Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, furðar sig á því að bankastjóri Íslandsbanka hafi verið með tæpar 57 milljónir í starfslokasamning. Það komi honum hins vegar ekki á óvart, efsta stéttin hér á landi sé með vanstilltan siðferðiskompás. Innlent 24.7.2023 13:19
Birna með 56,6 milljónir króna í starfslokasamning Ráðningarsamningur Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, kvað á um tólf mánaða uppsagnarfrest og er gjaldfærsla vegna launa og hlunninda 56,6 milljónir króna. Þetta kemur fram í svörum stjórnar bankans til hluthafa vegna fyrirhugaðs hluthafafundar sem fer fram þann 28. júlí næstkomandi. Viðskipti innlent 21.7.2023 18:12
Stækkað stöðu sína í Íslandsbanka um nærri milljarð eftir sátt bankans við FME Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) hefur verið umsvifamestur meðal stærri hluthafa Íslandsbanka að auka við hlutabréfastöðu sína dagana eftir að bankinn tilkynnti í lok júní um sátt við fjármálaeftirlitið, sem fól í sér hæstu sektargreiðslu fjármálafyrirtækis í Íslandssögunni, vegna brota á lögum og innri reglum við sölu á hlutum í sjálfum sér í fyrra. Lífeyrissjóðurinn stækkaði eignarhlut sinn samhliða því að hlutabréfaverð Íslandsbanka fór lækkandi. Innherji 20.7.2023 11:47
Formaður og varaformaður hætta í stjórn Íslandsbanka Finnur Árnason, Guðrún Þorgeirsdóttir og Ari Daníelsson gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Íslandsbanka. Finnur er núverandi stjórnarformaður bankans og Guðrún varaformaður. Tilnefningarnefnd bankans leggur til að Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel, verði kjörin nýr formaður stjórnar. Viðskipti innlent 18.7.2023 14:41
Íslandsbanki frestar birtingu tilnefninga til stjórnar Tilnefninganefnd Íslandsbanka hefur frestað birtingu tilnefninga til stjórnar bankans um eina viku. Viðskipti innlent 15.7.2023 09:46
Hagnaður Arion banka ætti að tvöfaldast á grunni sterkra vaxtatekna Væntingar eru um að afkoma stóru viðskiptabankanna í Kauphöllinni verði umfram arðsemismarkmið þeirra á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum hafi enn neikvæð áhrif á fjármunartekjurnar. Þar munar mestu um kröftugan vöxt í vaxtatekjum, stærsti tekjupóstur Arion banka og Íslandsbanka, en útlit er fyrir að hagnaður Arion af reglulegri starfsemi muni meira en tvöfaldast frá fyrra ári, samkvæmt spám hlutabréfagreinenda. Innherji 13.7.2023 13:19
Yfirtók gagnaverið af Íslandsbanka fyrir nærri milljarð Borealis Data Center keypti félagið Reykjavík DC, sem starfrækir gagnaver á Korputorgi, fyrir tæplega 900 milljónir íslenskra króna síðastliðið haust af Íslandsbanka. Vegna fjárhagsvandræða hafði gagnaverið verið yfirtekið af bankanum, stærsta lánadrottni sínum, í árslok 2021 og í kjölfarið voru meðal annars um 400 milljónir af skuldum félagsins afskrifaðar samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu. Innherji 13.7.2023 07:44
„Meirihlutanum finnst þetta ekki nógu mikilvægt“ Þrír nefndarmenn fjárlaganefndar þingsins hafa kallað eftir því að nefndin komi saman til að ræða bæði Lindarhvolsmálið og Íslandsbankasöluna. Einn þeirra telur ólíklegt að nefndin verði kölluð saman. Engin viðbrögð hafi borist frá meirihluta nefndarinnar. Innlent 10.7.2023 13:00
Brot bankans mögulega rakin til brotalama hjá Bankasýslunni Ríkisendurskoðandi segir að ef Bankasýsla ríkisins hefði lagt betri grunn að söluferlinu á Íslandsbanka hefði mátt komast hjá fjölda brota sem sátt Fjármálaeftirlitsins við bankann tekur til. Ekki megi gleyma að Bankasýslan hafi verið framkvæmdaraðili sölunnar og beri því víðtæka ábyrgð. Viðskipti innlent 5.7.2023 12:10
Bankasýslan ekki dregið neinn lærdóm og hyggist ekki axla ábyrgð Ríkisendurskoðun getur ekki dregið aðra ályktun en að Bankasýsla ríkisins hafi fyrir sitt leyti engan lærdóm dregið af skýrslu embættisins um sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Jafnframt standi ekki til af hálfu Bankasýslunnar að axla neina þá ábyrgð sem henni beri sem framkvæmdaraðila útboðsins og fjallað er um í skýrslunni. Viðskipti innlent 4.7.2023 18:51
Fær 47 milljónir vegna starfslokanna Bankastjóri Íslandsbanka segir stemningu meðal starfsmanna bankans þunga og mikla sorg ríkja eftir erfiða viku. Hann fundar með formanni VR í vikunni og mun gera sitt besta til að endurvinna traust hans. Viðskipti innlent 3.7.2023 18:31
Ákveða framhald viðskipta eftir hluthafafund bankans Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að stjórn félagsins muni ákveða framhald viðskipta við Íslandsbanka að loknum hluthafafundi 28. júlí. Á fundinum verður ný stjórn kjörin. Viðskipti innlent 3.7.2023 16:55
Hvenær fór ríkisstjórnin að treysta Bankasýslunni aftur? Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna í fjárlaganefnd segja nauðsynlegt að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur verði birtur. Það er sanngjörn krafa. Bryndís Haraldsdóttir segir að það þurfi auðvitað að birta allt í kringum þessa sölu. Það er rétt. Og ef það er ætlunin að að endurheimta traust þarf að birta allt, en ekki bara sumt. Það þarf að segja söguna alla en ekki bara að birta valda kafla. Skoðun 3.7.2023 12:49
Starfsmannabreytingum hjá Íslandsbanka vegna útboðsins lokið Þrír yfirmenn hjá Íslandsbanka hafa látið af störfum undanfarna viku, síðast í gær. Bankastjóri segir starfsmannabreytingum með þessu lokið. Greint verði frá frekari úrbótum á starfsemi bankans á hluthafafundi í lok mánaðar. Viðskipti innlent 3.7.2023 11:50
Yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka lætur af störfum Atli Rafn Björnsson, sem hefur stýrt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka frá árinu 2019, hefur látið af störfum en hann er þriðji stjórnandinn sem hættir eftir að félagið samþykkti að greiða tæplega 1,2 milljarða sektargreiðslu vegna brota á lögum og innri reglum sínum við sölu á hlutum í sjálfum sér í útboði bankans í fyrra. Innherji 2.7.2023 23:34
„Mér finnst þetta bara skelfilegt og ekki til fyrirmyndar“ Háværar kröfur eru um að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans segir stjórnina ekki hafa tekið afstöðu til málsins en búið er að boða til hluthafafundar. Landsmenn segja málið hneyksli. Innlent 2.7.2023 20:03
Ný stjórn kosin á hluthafafundi Stjórn Íslandsbanka hefur boðað til hluthafafundar í lok mánaðar þar sem kosið verður í stjórn, varastjórn og embætti formanns stjórnar auk þess sem fjallað verður um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 2.7.2023 14:01
Stjórn hefur ekki tekið afstöðu til birtingar starfslokasamnings Nefndarmenn fjárlaganefndar Alþingis krefjast þess að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans segir stjórn bankans ekki hafa tekið afstöðu til málsins. Innlent 2.7.2023 12:27
Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað. Viðskipti innlent 1.7.2023 18:59
Þungur baggi Íslandsbanka fælir Kviku frá samruna Hartnær fimm mánuðum eftir að samrunaviðræður hófust milli Kviku banka og Íslandsbanka ákvað stjórn Kviku að slíta viðræðunum. Stjórnin vísaði til „atburða síðustu daga“ en fór ekki í saumana á því hvers vegna ákveðið var að slíta viðræðum þegar ljóst var að ávinningurinn af samruna gæti orðið verulegur. Að baki ákvörðuninni liggur sú staðreynd að sátt Íslandsbanka við fjármálaeftirlitið, sem var áfellisdómur yfir vinnubrögðum bankans við útboð á eigin hlutum, getur haft svo víðtækar afleiðingar, bæði í pólitískum og viðskiptalegum skilningi, að stórar forsendur bresta. Klinkið 30.6.2023 12:41
Viðræðum Kviku og Íslandsbanka slitið: „Það kom mér á óvart hvernig þessar niðurstöður voru“ Forstjóri Kviku banka segir Íslandsbanka eftir sem áður gott fyrirtæki og að hann sjái vel fyrir sér að hægt verði að taka upp þráðinn í viðræðum um sameiningu félaganna tveggja, að loknum hluthafafundi Íslandsbanka. Viðskipti innlent 29.6.2023 20:10
Segist maðurinn til að leiða bankann áfram og tekur varnaðarorðum VR alvarlega Formaður VR segir félagið hætta milljarða viðskiptum sínum við Íslandsbanka ef bankinn telji það eitt duga að bankastjórinn hætti störfum vegna fjölmargra brota við útboð bankans á hlut ríkisins í fyrra. Nýr bankastjóri leggur áherslu á að bankinn bregðist við umbótakröfum Fjármálaeftirlitsins og segir sjálfsagt að biðjast afsökunar á því sem fór úrskeiðis. Viðskipti innlent 29.6.2023 18:47
Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka „í ljósi atburða síðustu daga“ Stjórn Kviku banka telur ekki forsendur til þess að halda áfram viðræðum um mögulegan samruna við Íslandsbanka, sem hafa staðið yfir síðustu mánuði, og hefur því slitið þeim. Ekki var búið að komast að sameiginlegri niðurstöðu um skiptihlutföll. Innherji 29.6.2023 16:45
Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka Kvika banki hefur tilkynnt að bankinn hafi slitið viðræðum um mögulegan samruna bankans við Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar. Íslandsbanki segist sammála þeirri ákvörðun. Viðskipti innlent 29.6.2023 16:14
Einkavædd einkavæðing Fjármálaráðherra hneykslast á þeim sem vilja kalla hann til ábyrgðar vegna alvarlegra og kerfislægra lögbrota sem framin voru við sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka síðastliðið vor. Sama hneykslun birtist í viðbrögðum forstjóra og stjórnarformanns Bankasýslunnar við spurningum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær. Skoðun 29.6.2023 10:33
Sláandi að menn telji enn söluna hafa verið farsæla Þingmenn stjórnarandstöðu telja mörgum spurningum enn ósvarað um mál Íslandsbanka. Bankasýslan segir ábyrgðina liggja hjá bankanum og að útboðið hafi verið eitt það farsælasta í Evrópu. Viðskipti innlent 28.6.2023 22:00
Katastrófísk krísustjórnun Íslandsbanka Þeir sem sinna almannatengslum klóra sér margir hverjir í kolli vegna viðbragða Birnu Einarsdóttur fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka og samskiptadeildar bankans í aðdraganda þess að hún þurfti svo nauðbeygð að segja upp störfum. Innlent 28.6.2023 17:15
Íslandsbankasalan eitt farsælasta útboðið í Evrópu Stjórnarmenn Bankasýslu ríkisins segja það hafa verið mikil vonbrigði að ekki hafi verið farið að lögum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þeir standa við orð sín um að hlutafjárútboðið hafi verið það farsælasta í Íslandssögunni og segja það eitt af farsælli útboðum Evrópu. Viðskipti innlent 28.6.2023 15:58
Ekki hægt að gera starfsmenn persónulega ábyrga fyrir sektargreiðslum Hægt er að hafa fullt traust á íslensku fjármálakerfi þrátt fyrir þá atvikalýsingu sem lesa má um í sátt Fjármálaeftirlitsins við Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Betra væri að ræða um játningu en sátt. Þetta er meðal þess sem fram kom á opnum fundi í efnahags-og viðskiptanefnd fyrir skemmstu. Fulltrúar frá Seðlabankanum voru gestir á fyrri hluta fundarins. Viðskipti innlent 28.6.2023 14:34