Arion banki Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 26.11.2024 13:25 Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01 „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:43 ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22.11.2024 11:27 Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Arion banki hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar lækkunar stýrivaxta. Verðtryggðir vextir hækka og bankinn færir rök fyrir máli sínu samhliða tilkynningunni. Viðskipti innlent 22.11.2024 10:06 Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21.11.2024 12:22 Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20.11.2024 21:31 Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19.11.2024 12:49 Freista þess að sækja þrjátíu milljarða í nýtt hlutafé frá erlendum fjárfestum Landeldisfyrirtækið First Water hóf formlega fyrr í þessum mánuði fjármögnunarferli með erlendum ráðgjafa sínum sem miðar að því að sækja allt að tvö hundruð milljónir evra í nýtt hlutafé frá alþjóðlegum fjárfestum og sjóðum. Félagið, sem stendur að uppbyggingu á eldisstöð með um fimmtíu þúsund tonna framleiðslugetu, hefur fram til þessa alfarið verið fjármagnað af íslenskum fjárfestum og bönkum. Innherji 17.11.2024 13:15 Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið. Innlent 15.11.2024 20:00 Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Arion banki ætlar á næstu mánuðum að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Forstöðumaður segist vona til þess að daggæslan létti líf fleiri en bara starfsmanna. Innlent 15.11.2024 09:13 Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14.11.2024 14:05 Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12.11.2024 11:43 Controlant klárar milljarða fjármögnun með aðkomu lífeyrissjóða og Arion Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur glímt við rekstrarerfiðleika að undanförnu, hefur lokið við samanlagt um 35 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, einkum með nýju hlutafé frá nokkrum lífeyrissjóðum og láni frá Arion. Stjórnarformaður Controlant segir að þótt kaup- og innleiðingaferli alþjóðlegra lyfjarisa á stafrænni tækni og rauntímavöktun hafi tafist þá sé félagið bjartsýnt á framhaldið enda í „einstakri stöðu“ til að umbylta aðfangakeðju lyfja. Innherji 8.11.2024 13:46 Verðtryggingarmisvægi bankanna jókst um nærri hundrað milljarða Verðtryggingarmisvægi stóru viðskiptabankanna jókst um tæplega fimmtung á þriðja ársfjórðungi, langsamlega mest hjá Landsbankanum, samtímis áframhaldandi ásókn heimila í verðtryggð lán. Bankarnir hafa sögulega séð aldrei verið með eins mikla skekkju á verðtryggðum eignum og skuldum en sú staða á meðan verðbólga er að hjaðna hratt gæti sett þrýsting á vaxtatekjur þeirra. Innherji 2.11.2024 12:35 Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02 Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59 Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 30.10.2024 17:05 Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18.10.2024 13:23 Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11.10.2024 12:41 Landeldisfyrirtækið Laxey klárar lánsfjármögnun við Arion banka Eldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 32 þúsund tonn, og Arion banki hafa gengið frá samningi um fjármögnun. Lánsfjármögnunin frá Arion kemur í framhaldi af því að Laxey lauk fyrr á árinu hlutafjáraukningu, sem var í tveimur áföngum, upp á samtals um sjö milljarða frá innlendum og erlendum fjárfestum. Innherji 8.10.2024 19:50 Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7.10.2024 14:37 Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56 Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Óverðtryggðir vextir íbúðalána lækka um allt að 0,6 prósentustig en verðtryggðir vextir standa í stað. Viðskipti innlent 3.10.2024 10:44 Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01 Hætt við að ein „aumingjaleg lækkun“ láti hjól hagkerfisins snúa hraðar á ný Yfirlýsing peningastefnunefndar til að réttlæta óvænta vaxtalækkun var lítið annað en „kirsuberjatínsla“, gögn sérstaklega dregin fram til að styðja við lækkun, en lítið gert með fyrri orð og gjörðir sem gæti komið niður á trúverðugleika Seðlabankans, að mati greiningar Arion, en ljóst sé að nefndarmenn hafi ekki verið samstíga. Hagfræðingar bankans fara nokkuð hörðum orðum um þá ákvörðun að lækka vexti, sem þeir eru ekki sannfærðir um að sé tekin á réttum tímapunkti, og búið sé að skapa væntingar um frekari vaxtalækkanir sem kunni að ýta undir þenslu og verðbólguþrýsting. Innherji 2.10.2024 20:39 Kjörin bötnuðu mikið þegar Landsbankinn gaf út fimm ára evrubréf Útgáfa Landsbankans á grænum skuldabréfum til fimm ára upp á 300 milljónir evra er sú lengsta á meðal útistandandi ótryggðra evrubréfa viðskiptabankanna en talsverður áhugi fjárfesta þýddi að vaxtaálagið lækkað nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst. Aðgengi íslensku bankanna að erlendum fjármagnsmörkuðum hefur farið mjög batnandi að undanförnu og Seðlabankinn hvatt þá til að viðhalda sterkri lausafjárstöðu komi til þess að sú staða breytist. Innherji 1.10.2024 15:08 Átta sagt upp hjá Arion banka Átta manns var sagt upp hjá Arion banka í gær. Upplýsingafulltrúi bankans segir uppsagnirnar lið í breytingum innan einstakra sviða. Þær séu ekki liður í stórum skipulagsbreytingum. Viðskipti innlent 26.9.2024 13:35 Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Greiningadeild Arion banka spáir því að verðbólga verði 3,6 prósent í lok næsta árs og aðeins 3,1 prósent í lok spátíma árið 2027. Spáin gerir ráð fyrir því að Hagstofan taki nýtt kílómetragjald ekki inn í vísitölu neysluverðs, sem muni minnka verðbólgu um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 26.9.2024 10:15 Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Evrópski fjárfestingasjóðurinn, EIF, og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi. Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella. Viðskipti innlent 25.9.2024 13:20 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 26.11.2024 13:25
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:43
ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22.11.2024 11:27
Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Arion banki hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar lækkunar stýrivaxta. Verðtryggðir vextir hækka og bankinn færir rök fyrir máli sínu samhliða tilkynningunni. Viðskipti innlent 22.11.2024 10:06
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21.11.2024 12:22
Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20.11.2024 21:31
Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19.11.2024 12:49
Freista þess að sækja þrjátíu milljarða í nýtt hlutafé frá erlendum fjárfestum Landeldisfyrirtækið First Water hóf formlega fyrr í þessum mánuði fjármögnunarferli með erlendum ráðgjafa sínum sem miðar að því að sækja allt að tvö hundruð milljónir evra í nýtt hlutafé frá alþjóðlegum fjárfestum og sjóðum. Félagið, sem stendur að uppbyggingu á eldisstöð með um fimmtíu þúsund tonna framleiðslugetu, hefur fram til þessa alfarið verið fjármagnað af íslenskum fjárfestum og bönkum. Innherji 17.11.2024 13:15
Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið. Innlent 15.11.2024 20:00
Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Arion banki ætlar á næstu mánuðum að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Forstöðumaður segist vona til þess að daggæslan létti líf fleiri en bara starfsmanna. Innlent 15.11.2024 09:13
Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14.11.2024 14:05
Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12.11.2024 11:43
Controlant klárar milljarða fjármögnun með aðkomu lífeyrissjóða og Arion Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur glímt við rekstrarerfiðleika að undanförnu, hefur lokið við samanlagt um 35 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, einkum með nýju hlutafé frá nokkrum lífeyrissjóðum og láni frá Arion. Stjórnarformaður Controlant segir að þótt kaup- og innleiðingaferli alþjóðlegra lyfjarisa á stafrænni tækni og rauntímavöktun hafi tafist þá sé félagið bjartsýnt á framhaldið enda í „einstakri stöðu“ til að umbylta aðfangakeðju lyfja. Innherji 8.11.2024 13:46
Verðtryggingarmisvægi bankanna jókst um nærri hundrað milljarða Verðtryggingarmisvægi stóru viðskiptabankanna jókst um tæplega fimmtung á þriðja ársfjórðungi, langsamlega mest hjá Landsbankanum, samtímis áframhaldandi ásókn heimila í verðtryggð lán. Bankarnir hafa sögulega séð aldrei verið með eins mikla skekkju á verðtryggðum eignum og skuldum en sú staða á meðan verðbólga er að hjaðna hratt gæti sett þrýsting á vaxtatekjur þeirra. Innherji 2.11.2024 12:35
Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59
Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 30.10.2024 17:05
Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18.10.2024 13:23
Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11.10.2024 12:41
Landeldisfyrirtækið Laxey klárar lánsfjármögnun við Arion banka Eldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 32 þúsund tonn, og Arion banki hafa gengið frá samningi um fjármögnun. Lánsfjármögnunin frá Arion kemur í framhaldi af því að Laxey lauk fyrr á árinu hlutafjáraukningu, sem var í tveimur áföngum, upp á samtals um sjö milljarða frá innlendum og erlendum fjárfestum. Innherji 8.10.2024 19:50
Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7.10.2024 14:37
Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56
Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Óverðtryggðir vextir íbúðalána lækka um allt að 0,6 prósentustig en verðtryggðir vextir standa í stað. Viðskipti innlent 3.10.2024 10:44
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01
Hætt við að ein „aumingjaleg lækkun“ láti hjól hagkerfisins snúa hraðar á ný Yfirlýsing peningastefnunefndar til að réttlæta óvænta vaxtalækkun var lítið annað en „kirsuberjatínsla“, gögn sérstaklega dregin fram til að styðja við lækkun, en lítið gert með fyrri orð og gjörðir sem gæti komið niður á trúverðugleika Seðlabankans, að mati greiningar Arion, en ljóst sé að nefndarmenn hafi ekki verið samstíga. Hagfræðingar bankans fara nokkuð hörðum orðum um þá ákvörðun að lækka vexti, sem þeir eru ekki sannfærðir um að sé tekin á réttum tímapunkti, og búið sé að skapa væntingar um frekari vaxtalækkanir sem kunni að ýta undir þenslu og verðbólguþrýsting. Innherji 2.10.2024 20:39
Kjörin bötnuðu mikið þegar Landsbankinn gaf út fimm ára evrubréf Útgáfa Landsbankans á grænum skuldabréfum til fimm ára upp á 300 milljónir evra er sú lengsta á meðal útistandandi ótryggðra evrubréfa viðskiptabankanna en talsverður áhugi fjárfesta þýddi að vaxtaálagið lækkað nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst. Aðgengi íslensku bankanna að erlendum fjármagnsmörkuðum hefur farið mjög batnandi að undanförnu og Seðlabankinn hvatt þá til að viðhalda sterkri lausafjárstöðu komi til þess að sú staða breytist. Innherji 1.10.2024 15:08
Átta sagt upp hjá Arion banka Átta manns var sagt upp hjá Arion banka í gær. Upplýsingafulltrúi bankans segir uppsagnirnar lið í breytingum innan einstakra sviða. Þær séu ekki liður í stórum skipulagsbreytingum. Viðskipti innlent 26.9.2024 13:35
Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Greiningadeild Arion banka spáir því að verðbólga verði 3,6 prósent í lok næsta árs og aðeins 3,1 prósent í lok spátíma árið 2027. Spáin gerir ráð fyrir því að Hagstofan taki nýtt kílómetragjald ekki inn í vísitölu neysluverðs, sem muni minnka verðbólgu um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 26.9.2024 10:15
Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Evrópski fjárfestingasjóðurinn, EIF, og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi. Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella. Viðskipti innlent 25.9.2024 13:20