Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Einstakt tækifæri fyrir samfélagið og vonar að skrifað verði undir í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bindur vonir við að sveitarfélögin komi í sameiningu að aðgerðapakka til að greiða fyrir undirritun kjarasamninga. Hún bindur vonir við að gengið verði frá síðustu lausu endum samninganna í dag. Innlent 7.3.2024 11:08 Sveitarfélögin ein komi í veg fyrir undirritun kjarasamninga í dag Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta algjörlega á sveitarfélögunum. Allar deilur við Samtök atvinnulífsins hafi verið leystar en nú bíði stéttarfélögin eftir skýrum skilaboðum frá sveitarfélögunum. Innlent 7.3.2024 10:37 Lokasprettur kjaraviðræðna með forsætisráðherra Forystufólk breiðfylkingarinnar, Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar mæta til fundar við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðshúsinu klukkan 10 í morgun til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar við Samtök atvinnulífsins. Innlent 7.3.2024 09:53 Markmiðin góð í fjölmiðlastefnu en segir fjárhæð styrkja of lága Í drögum að fyrstu opinberu fjölmiðlastefnu landsins er lagt upp með að hefðbundin auglýsingasala hjá RÚV verði óheimil og styrkir til einkarekinna fjölmiðla festir í sessi. Formaður Blaðamannafélags Íslands fagnar markmiðinu en segir fjárhæð styrkja of lága sé miðað við Norðurlöndin. Innlent 6.3.2024 19:17 Samningar breiðfylkingar nánast í höfn en verkfallsboðun hjá Icelandair Allt bendir til að skrifað verði undir nýja kjarasamninga breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins á morgun en vel hefur gengið í viðræðum þeirra í dag. Ef af verður mun ríkisstjórin einnig kynna aðgerðarpakka sinn í tengslum við samningana. Innlent 6.3.2024 17:28 Lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn Starfshópur menningar- og viðskiptaráðuneytisins leggur til að stafræn leið verði farin til að minnka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði. Sala og markaðssetning á auglýsingum verði óheimil hjá RÚV en hægt sé að kaupa auglýsingahólf samkvæmt verðskrá á vefnum. Viðskipti innlent 6.3.2024 14:38 Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila. Innlent 6.3.2024 08:11 Táraðist þegar hann heyrði fréttirnar frá Kaíró Félagsmálaráðherra táraðist þegar hann frétti af því að utanríkisráðherra og sendinefnd ráðuneytisins hefði tekist að bjarga sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum út af Gasasvæðinu. Hópurinn er væntanlegur til landsins á næstu dögum og það er að mörgu að hyggja. Innlent 5.3.2024 19:30 Sveitarfélögin geta komið í veg fyrir undirritun kjarasamninga Kjarasamningar eru á lokametrunum og gætu jafnvel legið fyrir á morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir hins vegar að ekki verði skrifað undir samninga nema sveitarfélögin gefi skýr svör varðandi framlag þeirra. Þau muni hagnast mikið á kjarasamningum. Innlent 5.3.2024 19:21 Bergþór stríðir Samfylkingunni Samfylkingin styður markmið útlendingafrumvarpsins sem er til umræðu á Alþingi og dómsmálaráðherra fagnar stefnubreytingu flokksins. Þingflokkur Vinstri Grænna gerir ýmsa fyrirvara við málið. Innlent 5.3.2024 13:31 Náðu 72 yfir landamærin en 13 á upphaflegum lista stjórnvalda enn fastir á Gasa Sjötíu og tveimur Palestínumönnum, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi, var bjargað út af Gasasvæðinu í kjölfar símafundar utanríkisráðherra við ísraelskan kollega sinn síðastliðinn þriðjudag. Utanríkisráðherra segir að drjúgur meirihluti dvalarleyfishafa á Gasa hafi fengið samþykki fyrir því að fara yfir landamærin, en þó ekki allir því þrettán sem eru á upphaflegum lista stjórnvalda eru eftir á Gasa samkvæmt upplýsingum fá utanríkisráðuneytinu. Íslenskir sjálfboðaliðar eru staðráðnir í að sækja þá sem eftir eru. Innlent 5.3.2024 12:28 Sveitarfélögin tali skýrt um gjaldskrárlækkanir og fríar skólamáltíðir Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5.3.2024 11:45 Fengu grænt ljós á flutning 72 dvalarleyfishafa frá Gasa Sjötíu og tveir einstaklingar frá Gasa, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró í Egyptalandi seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands. Þetta gerist eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista íslenskra stjórnvalda um helgina. Innlent 5.3.2024 08:39 Hverjir hafa verið að koma og hverjir eiga að fá að vera? Umsóknum um alþjóðlega vernd á Íslandi fjölgaði gríðarlega árin 2022 og 2023, ekki síst vegna umsókna einstaklinga frá Úkraínu og Venesúela. Ef þessi tvö ár eru tekin út fyrir sviga hafa hins vegar litlar breytingar orðið á fjölda umsókna síðustu ár. Innlent 5.3.2024 07:17 Atkvæðagreiðsla hafin um verkfall ræstingarfólks Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4.3.2024 19:21 Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. Innlent 4.3.2024 16:00 Katrín loðin í svörum um forsetaframboð Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi nú rétt í þessu var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra spurð um það sérstaklega hvort hún ætlaði að gefa kost á sér í komandi forsetakosningaslag. Innlent 4.3.2024 15:34 Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4.3.2024 11:47 Nauðsynlegar breytingar á útlendingalögum Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum vegna hraðrar fjölgunar umsókna um alþjóðlega vernd. Umsóknum hefur fjölgað um 3700% á rúmum áratug og hafa valdið umtalsverðum kostnaði fyrir ríkið, eða um 20 milljörðum króna árið 2023, auk álags á alla okkar innviði. Skoðun 4.3.2024 08:00 Dómsmálaráðherra reiknar með málþófi á Alþingi Á síðustu tveimur árum hafa íslensk stjórnvöld fengið níu þúsund umsóknir frá flóttafólki um vernd hér á landi en það eru mun fleiri umsóknir en hin löndin á Norðurlöndunum hafa fengið á sama tíma. Innlent 3.3.2024 14:30 Upplifir alls ekki að forysta VG sé ekki nógu sterk Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan í kosningum í dag. Þingflokksformaður VG telur að flokkurinn sé ekki að ná í gegn með þær áherslur og þann árangur sem náðst hefur meðan flokkurinn hefur setið við ríkisstjórnarborðið. Innlent 3.3.2024 08:09 Sýni að Vinstri græn séu í tilvistarkreppu Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan. Stjórnmálafræðingur segir flokkinn í tilvistarkreppu. Minna fylgi Samfylkingar milli mánaða og aukið fylgi Miðflokks megi rekja til útlendingamála. Innlent 2.3.2024 12:07 Vinstri græn næðu ekki inn á þing Vinstri græn mælast með 4,7 prósent í nýjum Þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn myndi detta af þingi ef niðurstaðan yrði þessi í næstu Alþingiskosningum. Samfylkingin mælist áfram stærsti flokkur landsins þó fylgið dali um rúm tvö prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 1.3.2024 19:37 „Hluti af skipulagðri hungursneyð sem er verið að búa til á svæðinu“ Fólk kom í dag saman á Austurvelli, í frosti og kulda, til knýja íslensk stjórnvöld til að hætta við ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Innlent 1.3.2024 19:30 Taka þurfi styttingu framhaldsskólans til skoðunar Mennta- og barnamálaráðherra segir koma til greina að endurskoða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú. Þess í stað yrði grunnskólanám stytt um eitt ár. Innlent 1.3.2024 15:47 Hildigunnur nýr veðurstofustjóri Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H. Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní næstkomandi. Innlent 1.3.2024 12:33 Bein útsending: Nóbelsverðlaunahafi um hagfræðina á 21. öldinni Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz í dag. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og stendur frá klukkan 12 til 13:30. Sýnt er frá viðburðinum í beinni útsendingu. Viðskipti innlent 1.3.2024 11:15 Fyrirmyndir stækka framtíðina Stundum segir mynd – eða myndband – meira en þúsund orð. Við leggjum því til að þú horfir á myndbandið hér að neðan áður en lengra er haldið. Skoðun 1.3.2024 08:01 Vilja fá vinnandi fólk til að segja börnum frá vinnumarkaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Í tilkynningu um verkefnið segir að markmið þess sé að tengja alls konar fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins þar sem það segi nemendum frá starfi sínu og menntun. Innlent 29.2.2024 13:58 Bjarni ræddi við Israel Katz og bíður eftir grænu ljósi Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra ræddi við Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, símleiðis síðdegis í dag. Þar óskaði Bjarni liðsinnis um afgreðislu á lista yfir dvalarleyfishafa á Gaza. Erindinu hafi verið vel tekið af hálfu ísraelska ráðherrans en þó alls óvíst hvenær grænt ljós fáist. Innlent 28.2.2024 16:31 « ‹ 7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 148 ›
Einstakt tækifæri fyrir samfélagið og vonar að skrifað verði undir í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bindur vonir við að sveitarfélögin komi í sameiningu að aðgerðapakka til að greiða fyrir undirritun kjarasamninga. Hún bindur vonir við að gengið verði frá síðustu lausu endum samninganna í dag. Innlent 7.3.2024 11:08
Sveitarfélögin ein komi í veg fyrir undirritun kjarasamninga í dag Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta algjörlega á sveitarfélögunum. Allar deilur við Samtök atvinnulífsins hafi verið leystar en nú bíði stéttarfélögin eftir skýrum skilaboðum frá sveitarfélögunum. Innlent 7.3.2024 10:37
Lokasprettur kjaraviðræðna með forsætisráðherra Forystufólk breiðfylkingarinnar, Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar mæta til fundar við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðshúsinu klukkan 10 í morgun til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar við Samtök atvinnulífsins. Innlent 7.3.2024 09:53
Markmiðin góð í fjölmiðlastefnu en segir fjárhæð styrkja of lága Í drögum að fyrstu opinberu fjölmiðlastefnu landsins er lagt upp með að hefðbundin auglýsingasala hjá RÚV verði óheimil og styrkir til einkarekinna fjölmiðla festir í sessi. Formaður Blaðamannafélags Íslands fagnar markmiðinu en segir fjárhæð styrkja of lága sé miðað við Norðurlöndin. Innlent 6.3.2024 19:17
Samningar breiðfylkingar nánast í höfn en verkfallsboðun hjá Icelandair Allt bendir til að skrifað verði undir nýja kjarasamninga breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins á morgun en vel hefur gengið í viðræðum þeirra í dag. Ef af verður mun ríkisstjórin einnig kynna aðgerðarpakka sinn í tengslum við samningana. Innlent 6.3.2024 17:28
Lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn Starfshópur menningar- og viðskiptaráðuneytisins leggur til að stafræn leið verði farin til að minnka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði. Sala og markaðssetning á auglýsingum verði óheimil hjá RÚV en hægt sé að kaupa auglýsingahólf samkvæmt verðskrá á vefnum. Viðskipti innlent 6.3.2024 14:38
Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila. Innlent 6.3.2024 08:11
Táraðist þegar hann heyrði fréttirnar frá Kaíró Félagsmálaráðherra táraðist þegar hann frétti af því að utanríkisráðherra og sendinefnd ráðuneytisins hefði tekist að bjarga sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum út af Gasasvæðinu. Hópurinn er væntanlegur til landsins á næstu dögum og það er að mörgu að hyggja. Innlent 5.3.2024 19:30
Sveitarfélögin geta komið í veg fyrir undirritun kjarasamninga Kjarasamningar eru á lokametrunum og gætu jafnvel legið fyrir á morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir hins vegar að ekki verði skrifað undir samninga nema sveitarfélögin gefi skýr svör varðandi framlag þeirra. Þau muni hagnast mikið á kjarasamningum. Innlent 5.3.2024 19:21
Bergþór stríðir Samfylkingunni Samfylkingin styður markmið útlendingafrumvarpsins sem er til umræðu á Alþingi og dómsmálaráðherra fagnar stefnubreytingu flokksins. Þingflokkur Vinstri Grænna gerir ýmsa fyrirvara við málið. Innlent 5.3.2024 13:31
Náðu 72 yfir landamærin en 13 á upphaflegum lista stjórnvalda enn fastir á Gasa Sjötíu og tveimur Palestínumönnum, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi, var bjargað út af Gasasvæðinu í kjölfar símafundar utanríkisráðherra við ísraelskan kollega sinn síðastliðinn þriðjudag. Utanríkisráðherra segir að drjúgur meirihluti dvalarleyfishafa á Gasa hafi fengið samþykki fyrir því að fara yfir landamærin, en þó ekki allir því þrettán sem eru á upphaflegum lista stjórnvalda eru eftir á Gasa samkvæmt upplýsingum fá utanríkisráðuneytinu. Íslenskir sjálfboðaliðar eru staðráðnir í að sækja þá sem eftir eru. Innlent 5.3.2024 12:28
Sveitarfélögin tali skýrt um gjaldskrárlækkanir og fríar skólamáltíðir Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5.3.2024 11:45
Fengu grænt ljós á flutning 72 dvalarleyfishafa frá Gasa Sjötíu og tveir einstaklingar frá Gasa, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró í Egyptalandi seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands. Þetta gerist eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista íslenskra stjórnvalda um helgina. Innlent 5.3.2024 08:39
Hverjir hafa verið að koma og hverjir eiga að fá að vera? Umsóknum um alþjóðlega vernd á Íslandi fjölgaði gríðarlega árin 2022 og 2023, ekki síst vegna umsókna einstaklinga frá Úkraínu og Venesúela. Ef þessi tvö ár eru tekin út fyrir sviga hafa hins vegar litlar breytingar orðið á fjölda umsókna síðustu ár. Innlent 5.3.2024 07:17
Atkvæðagreiðsla hafin um verkfall ræstingarfólks Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4.3.2024 19:21
Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. Innlent 4.3.2024 16:00
Katrín loðin í svörum um forsetaframboð Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi nú rétt í þessu var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra spurð um það sérstaklega hvort hún ætlaði að gefa kost á sér í komandi forsetakosningaslag. Innlent 4.3.2024 15:34
Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4.3.2024 11:47
Nauðsynlegar breytingar á útlendingalögum Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum vegna hraðrar fjölgunar umsókna um alþjóðlega vernd. Umsóknum hefur fjölgað um 3700% á rúmum áratug og hafa valdið umtalsverðum kostnaði fyrir ríkið, eða um 20 milljörðum króna árið 2023, auk álags á alla okkar innviði. Skoðun 4.3.2024 08:00
Dómsmálaráðherra reiknar með málþófi á Alþingi Á síðustu tveimur árum hafa íslensk stjórnvöld fengið níu þúsund umsóknir frá flóttafólki um vernd hér á landi en það eru mun fleiri umsóknir en hin löndin á Norðurlöndunum hafa fengið á sama tíma. Innlent 3.3.2024 14:30
Upplifir alls ekki að forysta VG sé ekki nógu sterk Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan í kosningum í dag. Þingflokksformaður VG telur að flokkurinn sé ekki að ná í gegn með þær áherslur og þann árangur sem náðst hefur meðan flokkurinn hefur setið við ríkisstjórnarborðið. Innlent 3.3.2024 08:09
Sýni að Vinstri græn séu í tilvistarkreppu Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan. Stjórnmálafræðingur segir flokkinn í tilvistarkreppu. Minna fylgi Samfylkingar milli mánaða og aukið fylgi Miðflokks megi rekja til útlendingamála. Innlent 2.3.2024 12:07
Vinstri græn næðu ekki inn á þing Vinstri græn mælast með 4,7 prósent í nýjum Þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn myndi detta af þingi ef niðurstaðan yrði þessi í næstu Alþingiskosningum. Samfylkingin mælist áfram stærsti flokkur landsins þó fylgið dali um rúm tvö prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 1.3.2024 19:37
„Hluti af skipulagðri hungursneyð sem er verið að búa til á svæðinu“ Fólk kom í dag saman á Austurvelli, í frosti og kulda, til knýja íslensk stjórnvöld til að hætta við ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Innlent 1.3.2024 19:30
Taka þurfi styttingu framhaldsskólans til skoðunar Mennta- og barnamálaráðherra segir koma til greina að endurskoða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú. Þess í stað yrði grunnskólanám stytt um eitt ár. Innlent 1.3.2024 15:47
Hildigunnur nýr veðurstofustjóri Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H. Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní næstkomandi. Innlent 1.3.2024 12:33
Bein útsending: Nóbelsverðlaunahafi um hagfræðina á 21. öldinni Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz í dag. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og stendur frá klukkan 12 til 13:30. Sýnt er frá viðburðinum í beinni útsendingu. Viðskipti innlent 1.3.2024 11:15
Fyrirmyndir stækka framtíðina Stundum segir mynd – eða myndband – meira en þúsund orð. Við leggjum því til að þú horfir á myndbandið hér að neðan áður en lengra er haldið. Skoðun 1.3.2024 08:01
Vilja fá vinnandi fólk til að segja börnum frá vinnumarkaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Í tilkynningu um verkefnið segir að markmið þess sé að tengja alls konar fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins þar sem það segi nemendum frá starfi sínu og menntun. Innlent 29.2.2024 13:58
Bjarni ræddi við Israel Katz og bíður eftir grænu ljósi Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra ræddi við Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, símleiðis síðdegis í dag. Þar óskaði Bjarni liðsinnis um afgreðislu á lista yfir dvalarleyfishafa á Gaza. Erindinu hafi verið vel tekið af hálfu ísraelska ráðherrans en þó alls óvíst hvenær grænt ljós fáist. Innlent 28.2.2024 16:31