Skoðun

Fyrir­myndir stækka fram­tíðina

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Ásmundur Einar Daðason skrifa

Stundum segir mynd – eða myndband – meira en þúsund orð. Við leggjum því til að þú horfir á myndbandið hér að neðan áður en lengra er haldið.

Þessir frábæru krakkar fanga vel hvað fyrirmyndir skipta okkur öll miklu máli. Ekki aðeins til að veita okkur leiðsögn og innblástur, heldur jafnframt til að opna augu okkar fyrir tækifærunum sem leynast allt í kringum okkur. Það getur nefnilega reynst erfitt að ímynda sér möguleika sem við vitum ekki að eru fyrir hendi. Fyrirmyndir víkka þannig sjóndeildarhring okkar og um leið: stækka framtíðina.

Stækkaðu framtíðina

Þaðan dregur nýtt verkefni sem ráðuneytin okkar ýttu úr vör í gær heiti sitt. Stækkaðu framtíðina er ætlað að opna augu barna fyrir þeim tækifærum sem framtíðin hefur upp á að bjóða og auka þannig áhuga þeirra á námi auk þess að ýta undir að þau sjái tilgang með náminu sínu.

Stækkaðu framtíðina er verkefni fyrir alla grunn- og framhaldsskóla landsins og felst í því að sjálfboðaliðar af vinnumarkaði heimsækja kennslustundir til að lýsa starfi sínu, segja nemendum frá því hvernig nám þeirra hefur nýst og hvaða bakgrunn viðkomandi hefur

Við þekkum það eflaust flest að þegar við vorum lítil langaði okkur á einhverjum tímapunkti að gera það sama og foreldrar okkar í framtíðinni. Samkvæmt rannsóknum hafa börn myndað sér skoðun ansi ung á því hvað þau ætli að verða þegar þau verða stór og helstu fyrirmyndir þeirra eru einmittforeldrar þeirra og frægt fólk; eins og leikarar, tónlistarfólk eða samfélagsmiðlastjörnur.

Stækkaðu framtíðina miðar að því að því að öll börn og ungmenni sjái þá möguleika sem þeim standa til boða, óháð bakgrunni og staðsetningu, með því að kynnast fjölbreyttum fyrirmyndum. Þannig fá börnin tækifæri til að kynnast ólíkum störfum og heyra sögur frá fólki af vinnumarkaðinum og upplifi aukinn áhuga á námi og tækifærum framtíðarinnar.

Áttu klukkustund aflögu?

Við viljum hvetja sem flest sem til að taka þátt, sama hvaða stöðu þau gegna á vinnumarkaði. Við þurfum fjölbreyttan hóp fólks fyrir fjölbreyttan hóp nemenda. Þátttaka í verkefninu er einföld. Hægt er að skrá sig sem sjálfboðaliða á heimasíðu verkefnisins -stækkaðuframtíðina.is. Þar getur fólk valið hversu margar heimsóknir í skóla það treystir sér í - allt eftir tíma og áhuga. Ein heimsókn í kennslustund á ári er nóg til að vera með í að stækka framtíðina.

Verkefnið er íslensk útgáfa af breska verkefninu Inspiring the Future sem hóf göngu sína árið 2012. Síðan þá hafa um 52 þúsund sjálfboðaliðar tekið þátt í verkefninu með frábærum árangri. Verkefninu er einnig haldið úti í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Sviss og nú er komið að Íslandi.

Allar nánari upplýsingar má nálgast ávef verkefnisins. Við hlökkum til að stækka framtíðina með ykkur.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×