Seðlabankinn Standið við stóru orðin og lækkið vexti! Opið bréf til peningastefnunefndar og Seðlabankastjóra Skoðun 6.2.2024 06:00 Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. Innherji 5.2.2024 11:59 Er viðsnúningur á húsnæðismarkaði í kortunum? Um mitt ár 2022 hækkaði peningastefnunefnd vexti kröftuglega og þrengdi lánþegaskilyrði og óhætt er að segja að aðgerðirnar hafi slakað verulega á yfirspenntum húsnæðismarkaðnum. Árstaktur húsnæðisverðs að raunvirðir hrapaði úr 17% hækkun niður í 6% lækkun núna í haust. Undir lok síðasta árs komu hins vegar fram vísbendingar um viðsnúning og nýbirtar verðbólgutölur benda sterklega til að í janúar hafi raunverðslækkanakaflanum lokið, að minnsta kosti um stundar sakir. Umræðan 5.2.2024 08:39 Olíusjóðurinn stækkar stöðu sína í sértryggðum bréfum á íslensku bankanna Verðbréfaeign olíusjóðs Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, í íslenskum fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum jókst nokkuð á liðnu ári þegar hann bætti enn frekar við sig með kaupum á sértryggðum skuldabréfum á bankanna. Á sama tíma hélt eign sjóðsins áfram að minnka í íslenskum ríkisbréfum. Innherji 1.2.2024 11:21 Vilhjálmur segir verðlækkun IKEA gott innlegg í kjaraviðræður Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins settust aftur að samningaborði hjá ríkissáttasemjara upp úr klukkan níu í morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir verðlækkun IKEA gott innlegg í viðræðurnar. Innlent 1.2.2024 10:32 Undirliggjandi verðbólga minnkar en telur „útilokað“ að vextir lækki strax Þrátt fyrir að varast beri að lesa of mikið í óvænta lækkun á vísitölu neysluverðs, sem mátti einkum rekja til sveiflubundinna liða, þá er afar jákvætt að undirliggjandi verðbólga virðist vera að dragast saman sem gefur tilefni til aukinnar bjartsýni, að mati greiningar Arion banka. Verðbólguálagið á markaði hefur hríðfallið frá því í gærmorgun en skuldabréfamiðlari telur hins vegar „útilokað“ að peningastefnunefnd muni lækka vexti strax í næstu viku, einkum þegar enn er ósamið á almennum vinnumarkaði. Innherji 31.1.2024 13:49 Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári Spáð er 1,9 prósent hagvexti á árinu 2024 í þjóðhagsspá Íslandsbanka. Markar þetta hagsveifluskil og er tiltölulega hægur vöxtur í sögulegu tilliti. Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári. Viðskipti innlent 31.1.2024 09:14 Minnsta verðbólga í tæp tvö ár Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í mars fyrir tveimur árum og mælist nú 6,7 prósentustig. Þetta hljóta að teljast góð tíðindi inn í kjaraviðræður þar sem samningsaðilar stefna allir að gerð samninga sem leiði til minni verðbólgu og lækkun vaxta. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01 Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30.1.2024 11:52 Opinberir starfsmenn með svipaðar kröfur og breiðfylkingin á ríkið Formaður BSRB segir samflot opinberra starfsmanna gera svipaðar kröfur um aðkomu ríkisins að kjarasamningum og stéttarfélög á almenna markaðnum gerðu. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað breiðfylkinguna og SA til fundar í dag. Innlent 29.1.2024 19:20 Mögulegt að boða til verkfalla á fimmtudag Friðarskylda á almennum vinnumarkaði rennur út á fimmtudag. Formaður VR segir augljóst að gripið verði til aðgerða nálgist Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld ekki breiðfylkingu verkalýðsfélaga við samningaborðið. Hugmynd formanns Starfsgreinasambandsins um engar launahækkanir á þessu ári dragi opinberir aðilar gjaldskrárhækkanir til baka hafi ekki verið rædd í innan breiðfylkingarinnar. Innlent 29.1.2024 12:13 Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29 Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46 Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22.1.2024 09:54 Kuldi í kjaraviðræðum vegna deilna um launaskrið Nú þegar hálfur mánuður er þar til friðarskylda rennur út á almennum vinnumarkaði ásamt gildandi skammtímasamningum, er mikil óvissa komin í viðræður breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðsforystan segir atvinnurekendur vilja minni krónutöluhækkanir vegna launaskriðs þeirra hærra launuðu. Innlent 18.1.2024 12:07 Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 17.1.2024 12:34 Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17 Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma. Innlent 15.1.2024 13:21 Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir. Innherji 10.1.2024 11:56 Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2.1.2024 08:47 Stefán nýr framkvæmdastjóri hjá Seðlabankanum Stefán Guðjohnsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í nóvember. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:36 Söguleg breiðfylking stefnir að því að keyra niður vexti og verðbólgu Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári. Innlent 21.12.2023 18:31 Gleðilegt að verðbólga virðist hjaðna fyrr en spáð var Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:27 Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum. Innlent 20.12.2023 11:54 Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. Innherji 19.12.2023 12:16 Ísland eigi enn inni „töluvert mikið“ af hækkunum á lánshæfismati Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra. Innherji 14.12.2023 07:01 Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings. Innherji 13.12.2023 11:41 Strangt þak á kaupauka hefur leitt til hærri launa í fjármálakerfinu Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað, segja stjórnendur fjármálafyrirtækja. Það eykur rekstraráhættu fyrirtækjanna, einkum þeirra minni. Innherji 12.12.2023 07:01 Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. Innherji 11.12.2023 11:45 Má Seðlabankinn semja sínar reglur? Ég skrifaði fyrir nokkru grein þar sem bent var á að stýrivextir seðlabanka ættu ekki að hafa áhrif á útlánavexti lánastofnana. Til að leggja áherslu á slíkt, hefur alltaf verið grein í lögum um Seðlabanka, þar sem Seðlabanka var veitt heimild til að ákveða sjálfur þá vexti sem settir voru á þau afmörkuðu lán sem honum væri heimilt að veita lánastofnunum. Skoðun 8.12.2023 11:00 « ‹ 8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 48 ›
Standið við stóru orðin og lækkið vexti! Opið bréf til peningastefnunefndar og Seðlabankastjóra Skoðun 6.2.2024 06:00
Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. Innherji 5.2.2024 11:59
Er viðsnúningur á húsnæðismarkaði í kortunum? Um mitt ár 2022 hækkaði peningastefnunefnd vexti kröftuglega og þrengdi lánþegaskilyrði og óhætt er að segja að aðgerðirnar hafi slakað verulega á yfirspenntum húsnæðismarkaðnum. Árstaktur húsnæðisverðs að raunvirðir hrapaði úr 17% hækkun niður í 6% lækkun núna í haust. Undir lok síðasta árs komu hins vegar fram vísbendingar um viðsnúning og nýbirtar verðbólgutölur benda sterklega til að í janúar hafi raunverðslækkanakaflanum lokið, að minnsta kosti um stundar sakir. Umræðan 5.2.2024 08:39
Olíusjóðurinn stækkar stöðu sína í sértryggðum bréfum á íslensku bankanna Verðbréfaeign olíusjóðs Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, í íslenskum fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum jókst nokkuð á liðnu ári þegar hann bætti enn frekar við sig með kaupum á sértryggðum skuldabréfum á bankanna. Á sama tíma hélt eign sjóðsins áfram að minnka í íslenskum ríkisbréfum. Innherji 1.2.2024 11:21
Vilhjálmur segir verðlækkun IKEA gott innlegg í kjaraviðræður Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins settust aftur að samningaborði hjá ríkissáttasemjara upp úr klukkan níu í morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir verðlækkun IKEA gott innlegg í viðræðurnar. Innlent 1.2.2024 10:32
Undirliggjandi verðbólga minnkar en telur „útilokað“ að vextir lækki strax Þrátt fyrir að varast beri að lesa of mikið í óvænta lækkun á vísitölu neysluverðs, sem mátti einkum rekja til sveiflubundinna liða, þá er afar jákvætt að undirliggjandi verðbólga virðist vera að dragast saman sem gefur tilefni til aukinnar bjartsýni, að mati greiningar Arion banka. Verðbólguálagið á markaði hefur hríðfallið frá því í gærmorgun en skuldabréfamiðlari telur hins vegar „útilokað“ að peningastefnunefnd muni lækka vexti strax í næstu viku, einkum þegar enn er ósamið á almennum vinnumarkaði. Innherji 31.1.2024 13:49
Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári Spáð er 1,9 prósent hagvexti á árinu 2024 í þjóðhagsspá Íslandsbanka. Markar þetta hagsveifluskil og er tiltölulega hægur vöxtur í sögulegu tilliti. Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári. Viðskipti innlent 31.1.2024 09:14
Minnsta verðbólga í tæp tvö ár Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í mars fyrir tveimur árum og mælist nú 6,7 prósentustig. Þetta hljóta að teljast góð tíðindi inn í kjaraviðræður þar sem samningsaðilar stefna allir að gerð samninga sem leiði til minni verðbólgu og lækkun vaxta. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30.1.2024 11:52
Opinberir starfsmenn með svipaðar kröfur og breiðfylkingin á ríkið Formaður BSRB segir samflot opinberra starfsmanna gera svipaðar kröfur um aðkomu ríkisins að kjarasamningum og stéttarfélög á almenna markaðnum gerðu. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað breiðfylkinguna og SA til fundar í dag. Innlent 29.1.2024 19:20
Mögulegt að boða til verkfalla á fimmtudag Friðarskylda á almennum vinnumarkaði rennur út á fimmtudag. Formaður VR segir augljóst að gripið verði til aðgerða nálgist Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld ekki breiðfylkingu verkalýðsfélaga við samningaborðið. Hugmynd formanns Starfsgreinasambandsins um engar launahækkanir á þessu ári dragi opinberir aðilar gjaldskrárhækkanir til baka hafi ekki verið rædd í innan breiðfylkingarinnar. Innlent 29.1.2024 12:13
Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29
Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46
Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22.1.2024 09:54
Kuldi í kjaraviðræðum vegna deilna um launaskrið Nú þegar hálfur mánuður er þar til friðarskylda rennur út á almennum vinnumarkaði ásamt gildandi skammtímasamningum, er mikil óvissa komin í viðræður breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðsforystan segir atvinnurekendur vilja minni krónutöluhækkanir vegna launaskriðs þeirra hærra launuðu. Innlent 18.1.2024 12:07
Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 17.1.2024 12:34
Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17
Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma. Innlent 15.1.2024 13:21
Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir. Innherji 10.1.2024 11:56
Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2.1.2024 08:47
Stefán nýr framkvæmdastjóri hjá Seðlabankanum Stefán Guðjohnsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í nóvember. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:36
Söguleg breiðfylking stefnir að því að keyra niður vexti og verðbólgu Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári. Innlent 21.12.2023 18:31
Gleðilegt að verðbólga virðist hjaðna fyrr en spáð var Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:27
Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum. Innlent 20.12.2023 11:54
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. Innherji 19.12.2023 12:16
Ísland eigi enn inni „töluvert mikið“ af hækkunum á lánshæfismati Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra. Innherji 14.12.2023 07:01
Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings. Innherji 13.12.2023 11:41
Strangt þak á kaupauka hefur leitt til hærri launa í fjármálakerfinu Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað, segja stjórnendur fjármálafyrirtækja. Það eykur rekstraráhættu fyrirtækjanna, einkum þeirra minni. Innherji 12.12.2023 07:01
Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. Innherji 11.12.2023 11:45
Má Seðlabankinn semja sínar reglur? Ég skrifaði fyrir nokkru grein þar sem bent var á að stýrivextir seðlabanka ættu ekki að hafa áhrif á útlánavexti lánastofnana. Til að leggja áherslu á slíkt, hefur alltaf verið grein í lögum um Seðlabanka, þar sem Seðlabanka var veitt heimild til að ákveða sjálfur þá vexti sem settir voru á þau afmörkuðu lán sem honum væri heimilt að veita lánastofnunum. Skoðun 8.12.2023 11:00