Innlent

Sigurður beðinn um að fjar­lægja Framsóknarnælu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sigurður Ingi segir kosningabaráttuna hafa verið skemmtilega og glaðlega. 
Sigurður Ingi segir kosningabaráttuna hafa verið skemmtilega og glaðlega.  Vísir/Magnús Hlynur

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var beðinn um að fjarlægja barmmerki merkt flokknum er hann mætti á kjörstað á Selfossi í dag. 

„Þetta er bara hluti af mér. Þetta er nú ekki gróið,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson formaður flokksins glettinn meðan hann tók niður næluna og stakk henni í vasann. 

Hann skipar annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Halla Hrund Logadóttir leiðir listann. 

„Þetta var bara óvenju létt,“ sagði Sigurður Ingi við Magnús Hlyn fréttamann eftir að hann greiddi atkvæðið sitt. 

„Síðustu dagar hafa gengið mjög vel og ég er gríðarlega stoltur af mínu fólki hringinn í kringum landið. Jákvæð, glaðleg, skemmtileg og uppbyggileg kosningabarátta.“

Hann segist bjartsýnn, stígandinn hafi verið góður síðustu daga. Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi í nýjustu könnun Maskínu, fer úr 7,8 prósentum í 8,6 prósent. 

Sigurður neitar því ekki að hann sé orðinn örlítið þreyttur eftir kosningabaráttuna. „En á meðan það er gaman þá keyrir maður áfram.“

Og heldurðu að þú verðir á þingi áfram?

„Það er í höndum kjósenda. Ég vona það auðvitað. Ég er að bjóða mig fram til þess.“

Verður Framsókn í næstu ríkisstjórn?

„Það er fyrst í höndum kjósenda og svo verða flokkarnir að finna sér skynsamlega leið til að stjórna landinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×