Framsóknarflokkurinn Niðurskurður umdeildur í Framsókn Þingflokkur Framsóknarflokksins mun ræða á fundi í dag þá ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar að veita ekki fé til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Talið er að málið sé umdeilt innan flokksins. Innlent 13.10.2005 15:04 Greiddu fyrir vegtyllurnar Framsóknarmenn sem fengu störf í gegnum flokkinn létu hluta launa sinna renna til flokksins til að greiða skuldir í fjögur ár á tímabilinu 1992 til 2000. Engu máli skipti hvers konar störf það voru. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:58 Framlög halda uppi flokksstarfinu Allir sem eru í bæjarráði, bæjarstjórn eða nefndastörfum á vegum Framsóknarflokksins í Garðabæ og Mosfellsbæ láta hluta af launum sínum renna til flokksfélagsins í bænum og svo hefur verið lengi. Innlent 13.10.2005 14:58 Framsókn of hógvær segir Hjálmar Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, bendir á að fáir taki afstöðu í könnun Fréttablaðsins. "Reynsla okkar framsóknarmanna er að við eigum mikið inni. Flokksmenn eru hógværir og gefa stundum ekki upp afstöðu sína." Innlent 13.10.2005 14:57 Vinstri grænir á flugi Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins myndu Vinstri grænir rúmlega tvöfalda fylgi sitt ef boðað væri nú til kosninga. Helmingur þingmanna Frjálslynda flokksins myndi hins vegar falla af þingi. Fylgi Samfylkingar eykst frá síðustu könnun, en fylgi stjórnarflokkanna dalar. Innlent 13.10.2005 14:57 Sáttatónn í þingflokki Framsóknar Framsóknarmenn á kjördæmisþingi í Norðvesturkjördæmi sem fór fram í Borgarnesi í gær hvöttu þingflokk framsóknarmanna til að leysa ágreining sem uppi hefur verið innan hans. Þingflokkur ákvað við upphaf þings í haust að kjósa Kristin H. Gunnarsson í engar þingnefndir fyrir hönd flokksins. Innlent 13.10.2005 14:56 Framsókn slíðri sverðin Fulltrúar á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi, sem haldið var í Borgarnesi um helgina, hvöttu þingflokkinn til að slíðra sverðin. Í ályktun þingsins segir að þingflokkurinn sé hvattur til að leysa þann ágreining sem uppi hafi verið innan hans þannig að allir þingmenn flokksins hafi eðlilega aðstöðu til starfa. Innlent 13.10.2005 14:56 Flokkurinn leysi ágreininginn Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi hvetur þingflokkinn til að leysa þann ágreining sem uppi hefur verið innan hans þannig að allir þingmenn flokksins hafi eðlilega aðstöðu til starfa. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á kjördæmisþinginu í Borgarnesi í dag með lófataki. Innlent 13.10.2005 14:56 Verður ekki hrakinn úr flokknum Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segist ekki láta hrekja sig úr Framsóknarflokknum. Sjónarmið hans eigi hljómgrunn innan flokksins. Tólf framsóknarfélag í norðvesturkjördæmi af tuttugu og sex hafa harmað í ályktunum þá stöðu sem er uppi innan flokksins eftir að Kristni var vikið úr öllum þingnefndum flokksins. Innlent 13.10.2005 14:56 Þórólfur getur starfað áfram Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir Þórólf Árnason hafa staðið sig vel í embætti borgarstjóra og hefur fulla trú á því að hann geti sinnt starfinu áfram. Hann segir Þórólf ekki pólitískan borgarstjóra og að þeir sem hafi ráðið hann til starfa beri hina pólitísku ábyrgð. Innlent 13.10.2005 14:55 Alfreð vill enn Þórólf Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í borgarstjórn, segir fréttir um afskipti Þórólfs Árnasonar borgarstjóra af samráði olíufélaganna engu breyta í mati sínu á því að Þórólfur eigi að taka að sér að verða pólitískur leiðtogi R-listans í næstu sveitarstjórnarkosningum. Innlent 13.10.2005 14:53 Framsókn sökuð um sinnaskipti Elsa B. Friðfinnsdóttir, Framsóknarflokki segir að svo virðist sem flokkurinn hafi breytt um stefnu og opni á skólagjöld í framhaldsnámi. Vitnar hún til orða Dagnýjar Jónsdóttur, þingkonu flokksins í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Dagný: "Framsóknarflokkurinn...hafnar skólagjöldum í grunnnámi í ríkissreknum háskólum." Innlent 13.10.2005 14:51 Þingflokkur biðjist afsökunar Málflutningur Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, er í fullu samræmi við almennan vilja kjósenda flokksins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélagsins í Dalasýslu. Á fundinum var stuðningsyfirlýsing við Kristinn samþykkt einróma. Innlent 13.10.2005 14:52 Kristinn er okkar þingmaður Vestfirðingar eru ósáttir við ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að útiloka Kristinn H. Gunnarsson úr þingnefndum. Þeir segja hann sinn þingmann, það sé stórmál að hann hafi verið gerður áhrifalaus. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:50 Ekki bara stefnt að tekjujöfnun Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segir að tekjujöfnun sé síður en svo eina markmiðið í skattamálum. Samkvæmt útreikningum sem ASÍ vann fyrir Fréttablaðið hefur skattbyrði láglaunamanns þyngst frá því staðgreiðslukerfið var tekið upp 1988 en skattprósentan verður álíka og þá þegar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar hafa tekið gildi. Innlent 13.10.2005 14:49 Ummæli boða ekki gott Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segir að ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að Framsóknarflokkurinn væri "ömurlegur flokkur" boði ekki gott. Aðspurður um framtíð R-listans segir Halldór að samstarfið hafi gengið vel. Innlent 13.10.2005 14:49 Halldór skýrir skatta Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda. Innlent 13.10.2005 14:46 Hvers konar stalínismi er þetta? Kristinn H. Gunnarsson segir að ummæli Hjálmars Árnasonar í Fréttablaðinu um sig beri keim af slúðri og rógi. Hann spyr jafnframt hvers konar stalínismi það sé ef þingmenn Framsóknarflokksins eigi nú að greiða atkvæði samkvæmt vilja þingflokksins en ekki eigin skoðunum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:45 Kristinn mætti í frystinn Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sat sinn fyrsta þingflokksfund hjá Framsóknarflokknum í gær eftir að ákveðið var að hann sæti í engum þingnefndum fyrir flokkinn. Innlent 13.10.2005 14:45 Ekki vald til að reka Kristin Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að stjórn þingflokksins hafi ekki haft vald til að reka Kristin H. Gunnarsson úr Framsóknarflokknum. Kristinn var útilokaður úr nefndum og kom það Hjálmari á óvart að hann hætti ekki sjálfviljugur í flokknum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:44 Kom á óvart að Kristinn hætti ekki Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að það hafi komið sér á óvart að Kristinn H. Gunnarsson hafi kosið að starfa áfram í Framsóknarflokknum í kjölfar ákvörðunar stjórnar þingflokksins að útiloka hann úr þingnefndum. Innlent 13.10.2005 14:44 Fyrsta stefnuræða Halldórs Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra flutti jómfrúarræðu sína sem forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöld. Hafi einhver búist við stórpólítiskum tíðindum úr stefnuræðunni eða að nýji forsætisráðherrann opinberaði nýja hugmyndafræðilega sýn á Ísland og umheiminn, hefur viðkomandi orðið fyrir vonbrigðum. Innlent 13.10.2005 14:44 Karpað um skatta, öryrkja og Írak Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra flutti fyrstu stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöld. Í ræðu sinni sagði hann að stjórnarflokkunum hefði tekist að koma á stöðugleika í efnahagsmálum, minnka atvinnuleysi og auka kaupmátt launþega verulega. Innlent 13.10.2005 14:44 Forsætisráðherra harmar ræðufrétt Forsætisráðuneytið segist harma að annað árið í röð skuli brotinn trúnaður um stefnuræðu forsætisráðherra. Tilefnið er frétt DV í dag um innihald ræðunnar sem Halldór Ásgrímsson flytur á Alþingi í kvöld. Ráðuneytið segir ljóst að brotin hafi verið trúnaðarskylda sem kveðið sé á um í lögum. Ráðherrann óski eftir ræða málið við forseta Alþingis. Innlent 13.10.2005 14:44 Símasölu frestað Halldór Ásgrímsson segir engar stefnubreytingar fylgja forsætisráðherraskiptunum í stefnuræðu sinni sem flutt verður í kvöld. Samkvæmt heimildum DV verður sölu Símans frestað enn einu sinni og 90 prósent húsnæðislán sett á dagskrá. Innlent 13.10.2005 14:44 Hjálmari ekki falin ábyrgðastörf Trúnaðarbrestur hefur orðið milli herstöðvaandstæðinga og Hjálmars Árnasonar þingflokksformanns Framsóknarflokksins. Samtökin hafa ákveðið að fela honum engin trúnaðarstörf. </font /></font /></b /></b /> Innlent 13.10.2005 14:43 Hallar undan fæti í lýðræðisumræðu Einar Pálsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Árborg segir hafa hallað undan fæti í lýðræðislegri umræðu að undanförnu. "Þingflokkurinn hefur gengið mjög hart fram gagnvart Kristni H. Gunnarssyni fyrir að vera ekki á sömu línu og þingflokkurinn," segir Einar. Innlent 13.10.2005 14:43 Skoðanafrelsi undirstaða lýðræðis Kristinn H. Gunnarsson segir að stjórnmálaflokkur sé því aðeins lýðræðisleg hreyfing að þar ríki skoðanafrelsi. Hann segir skoðanir sínar endurspegla meiningu fjölda flokksmanna og spyr hvers vegna forystu flokksins séu svona mislagðar hendur að hún sé í stríði við sinn eigin flokk í hverju málinu á fætur öðru. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:43 Á samleið með Framsókn "Mönnum finnst þeir tefla hagsmunum sínum í tvísýnu ef þeir setja fram sjónarmið í umdeildum málum sem eru á annan veg en þann sem forystan hefur gefið upp. Þetta er stóra vandamálið í flokknum," segir Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, um Framsóknarflokkinn. Innlent 13.10.2005 14:43 Vissi af sviptingu Kristins Magnúsi Ólafssyni, formanni kjördæmissambands Framsóknarflokksins, var tilkynnt fyrir þingflokksfund Framsóknarflokksins í gærkvöld að til stæði að svipta Kristin H. Gunnarsson öllum nefndarsetum á vegum flokksins. Hann sagði í samtali við fréttastofu að honum hefði jafnframt verið sagt að Kristni yrði tilkynnt þessi ákvörðun fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 14:42 « ‹ 45 46 47 48 49 ›
Niðurskurður umdeildur í Framsókn Þingflokkur Framsóknarflokksins mun ræða á fundi í dag þá ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar að veita ekki fé til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Talið er að málið sé umdeilt innan flokksins. Innlent 13.10.2005 15:04
Greiddu fyrir vegtyllurnar Framsóknarmenn sem fengu störf í gegnum flokkinn létu hluta launa sinna renna til flokksins til að greiða skuldir í fjögur ár á tímabilinu 1992 til 2000. Engu máli skipti hvers konar störf það voru. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:58
Framlög halda uppi flokksstarfinu Allir sem eru í bæjarráði, bæjarstjórn eða nefndastörfum á vegum Framsóknarflokksins í Garðabæ og Mosfellsbæ láta hluta af launum sínum renna til flokksfélagsins í bænum og svo hefur verið lengi. Innlent 13.10.2005 14:58
Framsókn of hógvær segir Hjálmar Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, bendir á að fáir taki afstöðu í könnun Fréttablaðsins. "Reynsla okkar framsóknarmanna er að við eigum mikið inni. Flokksmenn eru hógværir og gefa stundum ekki upp afstöðu sína." Innlent 13.10.2005 14:57
Vinstri grænir á flugi Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins myndu Vinstri grænir rúmlega tvöfalda fylgi sitt ef boðað væri nú til kosninga. Helmingur þingmanna Frjálslynda flokksins myndi hins vegar falla af þingi. Fylgi Samfylkingar eykst frá síðustu könnun, en fylgi stjórnarflokkanna dalar. Innlent 13.10.2005 14:57
Sáttatónn í þingflokki Framsóknar Framsóknarmenn á kjördæmisþingi í Norðvesturkjördæmi sem fór fram í Borgarnesi í gær hvöttu þingflokk framsóknarmanna til að leysa ágreining sem uppi hefur verið innan hans. Þingflokkur ákvað við upphaf þings í haust að kjósa Kristin H. Gunnarsson í engar þingnefndir fyrir hönd flokksins. Innlent 13.10.2005 14:56
Framsókn slíðri sverðin Fulltrúar á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi, sem haldið var í Borgarnesi um helgina, hvöttu þingflokkinn til að slíðra sverðin. Í ályktun þingsins segir að þingflokkurinn sé hvattur til að leysa þann ágreining sem uppi hafi verið innan hans þannig að allir þingmenn flokksins hafi eðlilega aðstöðu til starfa. Innlent 13.10.2005 14:56
Flokkurinn leysi ágreininginn Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi hvetur þingflokkinn til að leysa þann ágreining sem uppi hefur verið innan hans þannig að allir þingmenn flokksins hafi eðlilega aðstöðu til starfa. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á kjördæmisþinginu í Borgarnesi í dag með lófataki. Innlent 13.10.2005 14:56
Verður ekki hrakinn úr flokknum Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segist ekki láta hrekja sig úr Framsóknarflokknum. Sjónarmið hans eigi hljómgrunn innan flokksins. Tólf framsóknarfélag í norðvesturkjördæmi af tuttugu og sex hafa harmað í ályktunum þá stöðu sem er uppi innan flokksins eftir að Kristni var vikið úr öllum þingnefndum flokksins. Innlent 13.10.2005 14:56
Þórólfur getur starfað áfram Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir Þórólf Árnason hafa staðið sig vel í embætti borgarstjóra og hefur fulla trú á því að hann geti sinnt starfinu áfram. Hann segir Þórólf ekki pólitískan borgarstjóra og að þeir sem hafi ráðið hann til starfa beri hina pólitísku ábyrgð. Innlent 13.10.2005 14:55
Alfreð vill enn Þórólf Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í borgarstjórn, segir fréttir um afskipti Þórólfs Árnasonar borgarstjóra af samráði olíufélaganna engu breyta í mati sínu á því að Þórólfur eigi að taka að sér að verða pólitískur leiðtogi R-listans í næstu sveitarstjórnarkosningum. Innlent 13.10.2005 14:53
Framsókn sökuð um sinnaskipti Elsa B. Friðfinnsdóttir, Framsóknarflokki segir að svo virðist sem flokkurinn hafi breytt um stefnu og opni á skólagjöld í framhaldsnámi. Vitnar hún til orða Dagnýjar Jónsdóttur, þingkonu flokksins í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Dagný: "Framsóknarflokkurinn...hafnar skólagjöldum í grunnnámi í ríkissreknum háskólum." Innlent 13.10.2005 14:51
Þingflokkur biðjist afsökunar Málflutningur Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, er í fullu samræmi við almennan vilja kjósenda flokksins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélagsins í Dalasýslu. Á fundinum var stuðningsyfirlýsing við Kristinn samþykkt einróma. Innlent 13.10.2005 14:52
Kristinn er okkar þingmaður Vestfirðingar eru ósáttir við ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að útiloka Kristinn H. Gunnarsson úr þingnefndum. Þeir segja hann sinn þingmann, það sé stórmál að hann hafi verið gerður áhrifalaus. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:50
Ekki bara stefnt að tekjujöfnun Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segir að tekjujöfnun sé síður en svo eina markmiðið í skattamálum. Samkvæmt útreikningum sem ASÍ vann fyrir Fréttablaðið hefur skattbyrði láglaunamanns þyngst frá því staðgreiðslukerfið var tekið upp 1988 en skattprósentan verður álíka og þá þegar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar hafa tekið gildi. Innlent 13.10.2005 14:49
Ummæli boða ekki gott Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segir að ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að Framsóknarflokkurinn væri "ömurlegur flokkur" boði ekki gott. Aðspurður um framtíð R-listans segir Halldór að samstarfið hafi gengið vel. Innlent 13.10.2005 14:49
Halldór skýrir skatta Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda. Innlent 13.10.2005 14:46
Hvers konar stalínismi er þetta? Kristinn H. Gunnarsson segir að ummæli Hjálmars Árnasonar í Fréttablaðinu um sig beri keim af slúðri og rógi. Hann spyr jafnframt hvers konar stalínismi það sé ef þingmenn Framsóknarflokksins eigi nú að greiða atkvæði samkvæmt vilja þingflokksins en ekki eigin skoðunum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:45
Kristinn mætti í frystinn Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sat sinn fyrsta þingflokksfund hjá Framsóknarflokknum í gær eftir að ákveðið var að hann sæti í engum þingnefndum fyrir flokkinn. Innlent 13.10.2005 14:45
Ekki vald til að reka Kristin Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að stjórn þingflokksins hafi ekki haft vald til að reka Kristin H. Gunnarsson úr Framsóknarflokknum. Kristinn var útilokaður úr nefndum og kom það Hjálmari á óvart að hann hætti ekki sjálfviljugur í flokknum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:44
Kom á óvart að Kristinn hætti ekki Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að það hafi komið sér á óvart að Kristinn H. Gunnarsson hafi kosið að starfa áfram í Framsóknarflokknum í kjölfar ákvörðunar stjórnar þingflokksins að útiloka hann úr þingnefndum. Innlent 13.10.2005 14:44
Fyrsta stefnuræða Halldórs Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra flutti jómfrúarræðu sína sem forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöld. Hafi einhver búist við stórpólítiskum tíðindum úr stefnuræðunni eða að nýji forsætisráðherrann opinberaði nýja hugmyndafræðilega sýn á Ísland og umheiminn, hefur viðkomandi orðið fyrir vonbrigðum. Innlent 13.10.2005 14:44
Karpað um skatta, öryrkja og Írak Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra flutti fyrstu stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöld. Í ræðu sinni sagði hann að stjórnarflokkunum hefði tekist að koma á stöðugleika í efnahagsmálum, minnka atvinnuleysi og auka kaupmátt launþega verulega. Innlent 13.10.2005 14:44
Forsætisráðherra harmar ræðufrétt Forsætisráðuneytið segist harma að annað árið í röð skuli brotinn trúnaður um stefnuræðu forsætisráðherra. Tilefnið er frétt DV í dag um innihald ræðunnar sem Halldór Ásgrímsson flytur á Alþingi í kvöld. Ráðuneytið segir ljóst að brotin hafi verið trúnaðarskylda sem kveðið sé á um í lögum. Ráðherrann óski eftir ræða málið við forseta Alþingis. Innlent 13.10.2005 14:44
Símasölu frestað Halldór Ásgrímsson segir engar stefnubreytingar fylgja forsætisráðherraskiptunum í stefnuræðu sinni sem flutt verður í kvöld. Samkvæmt heimildum DV verður sölu Símans frestað enn einu sinni og 90 prósent húsnæðislán sett á dagskrá. Innlent 13.10.2005 14:44
Hjálmari ekki falin ábyrgðastörf Trúnaðarbrestur hefur orðið milli herstöðvaandstæðinga og Hjálmars Árnasonar þingflokksformanns Framsóknarflokksins. Samtökin hafa ákveðið að fela honum engin trúnaðarstörf. </font /></font /></b /></b /> Innlent 13.10.2005 14:43
Hallar undan fæti í lýðræðisumræðu Einar Pálsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Árborg segir hafa hallað undan fæti í lýðræðislegri umræðu að undanförnu. "Þingflokkurinn hefur gengið mjög hart fram gagnvart Kristni H. Gunnarssyni fyrir að vera ekki á sömu línu og þingflokkurinn," segir Einar. Innlent 13.10.2005 14:43
Skoðanafrelsi undirstaða lýðræðis Kristinn H. Gunnarsson segir að stjórnmálaflokkur sé því aðeins lýðræðisleg hreyfing að þar ríki skoðanafrelsi. Hann segir skoðanir sínar endurspegla meiningu fjölda flokksmanna og spyr hvers vegna forystu flokksins séu svona mislagðar hendur að hún sé í stríði við sinn eigin flokk í hverju málinu á fætur öðru. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:43
Á samleið með Framsókn "Mönnum finnst þeir tefla hagsmunum sínum í tvísýnu ef þeir setja fram sjónarmið í umdeildum málum sem eru á annan veg en þann sem forystan hefur gefið upp. Þetta er stóra vandamálið í flokknum," segir Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, um Framsóknarflokkinn. Innlent 13.10.2005 14:43
Vissi af sviptingu Kristins Magnúsi Ólafssyni, formanni kjördæmissambands Framsóknarflokksins, var tilkynnt fyrir þingflokksfund Framsóknarflokksins í gærkvöld að til stæði að svipta Kristin H. Gunnarsson öllum nefndarsetum á vegum flokksins. Hann sagði í samtali við fréttastofu að honum hefði jafnframt verið sagt að Kristni yrði tilkynnt þessi ákvörðun fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 14:42