Framkvæmdastjórn ESB veitir samþykki sitt fyrir yfirtökunni á Marel Samkeppnisyfirvöld í Evrópusambandinu og Ástralíu hafa gefið blessun sína fyrir yfirtöku John Bean Technologies á Marel og er því núna búið að ryðja í burtu síðustu hindrunum fyrir viðskiptunum gagnvart eftirlitsstofnunum. Fáist samþykki frá að lágmarki níutíu prósent hluthafa Marel við tilboðinu frá JBT á allra næstu vikum mun samruninn formlega klárast á fyrstu dögum næsta árs og meðal annars hafa í för með sér nærri hundrað milljarða útgreiðslu til innlendra fjárfesta. 27.11.2024 16:30
Breytingar sem taka mið af öðrum veruleika yrðu erfiðar og kostnaðarsamar Verði farin sú leið að aðlaga regluverkið um starfsemi lífeyrissjóða að þeirri evrópsku löggjöf sem gildir um fjármálafyrirtæki, eins og Seðlabankinn hefur talað fyrir, þá mun það hafa í för með sér „verulega breytta hugmyndafræði“ og valda miklum viðbótarkostnaði, að mati framkvæmdastjóra eins af stóru lífeyrissjóðunum. Hann segir oft gleymast að líta til þeirra kosta sem fylgir því að standa utan löggjafar Evrópusambandsins, sem taki iðulega mið af öðrum veruleika, og varar jafnframt við tillögum um að Seðlabankinn fái heimildir til stjórnvaldssekta á lífeyrissjóði. 27.11.2024 12:51
Þórdís skipar varaseðlabankastjóra eftir að Bjarni sagði sig frá ferlinu Það kemur í hlut Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra að skipa í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu á næstunni eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði sig frá málinu vegna fjölskyldutengsla við einn af umsækjendum. Sjö sóttust eftir embættinu þegar það var auglýst en einn af þeim dró umsókn sína fljótlega til baka. 26.11.2024 16:14
Undir hluthöfum komið hvort skráning sameinaðs félags hér heima heppnist Marel kemur inn í áformaðan risasamruna við John Bean Technologies (JBT) „algjörlega sem jafningi“ bandaríska fyrirtækisins, að sögn Árna Sigurðssonar forstjóra, sem telur að hluthafar ættu að hafa enn meiri trú á sameinuðu félagi sem verði með einstaka stærðarhagkvæmni og segist ekki hafa upplifað neina fjárfesta tala „ákveðið“ á móti samrunanum. Í viðtali við Innherja undirstrikar hann að það séu hagsmunir þeirra sem vilja taka tilboðinu hjá JBT að ákveða sig snemma fremur en á lokametrunum og brýnir hluthafa Marel að það sé undir þeim komið hvort skráningin á Íslandi muni heppnast vel eða ekki þegar fram í sækir. 26.11.2024 07:55
Niðurstöður fyrstu borana í Nanoq gefa til kynna „hágæða-gullsvæði“ Niðurstöður úr rannsóknarborunum Amaroq Minerals í Nanoq á Suður-Grænland sýndu fram á háan styrkleika gulls á svæðinu og undirstrikar mikla möguleika leyfisins, að sögn forstjóra auðlindafyrirtækisins. Frekari boranir eru áformaðar á næsta ári en fyrstu niðurstöður gefa vísbendingar um að hægt sé að finna gull í magni sem má telja í milljónum únsa. 26.11.2024 07:14
Framtakssjóðurinn Aldir verður leiðandi fjárfestir í Dropp Framtakssjóður í rekstri Aldir hefur eignast leiðandi hlut í fyrirtækinu Dropp, bæði með kaupum á nýju hlutafé sem er gefið út og eins með því að kaupa hluta af bréfum núverandi hluthafa. Félagið hefur stækkað hratt á undanförnum árum, meðal annars með kaupum á Górillu vöruhúsi, og sér fram á frekari fjárfestingar til að styðja við áframhaldandi vöxt. 25.11.2024 14:49
Aðaleigandi Novo Nordisk að kaupa Benchmark fyrir um 45 milljarða Félag í eigu Novo Holdings, sem fer með ráðandi eignarhlut í danska lyfjarisanum Novo Nordisk, hefur náð bindandi samkomulagi um að kaupa Benchmark Holdings fyrir samtals allt að 260 milljónir punda. Fyrirtækið er meðal annars eigandi Benchmark Genetics Iceland, áður Stofnfiskur, sem er með umfangsmikla starfsemi hér á landi í kynbótum á laxi og framleiðslu hrogna. 25.11.2024 11:09
HILI hefur starfsemi á Íslandi og ræður Sigurð Viðarsson sem framkvæmdastjóra Norskt fyrirtæki sem býður einstaklingum að selja hluta af eign sinni í fasteign til fjárfestingasjóðs ætlar að hasla sér völl hér á landi og hefur ráðið Sigurð Viðarsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Kviku banka, sem framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi. Með miklum hækkunum á fasteignamarkaði hefur hreinn auður margra heimila aukist verulega en á sama tíma er hátt vaxtastig farið að valda sumum þeirra lausafjárerfiðleikum. 24.11.2024 12:10
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. 21.11.2024 12:22
Stærra skref hefði gefið röng skilaboð um að Seðlabankinn vildi minnka aðhaldið Raunvaxtaaðhaldið hefur hækkað lítilega frá síðustu mælingu í ágúst en ekki er „endilega heppilegt“ að það aukist enn frekar, að sögn seðlabankastjóra, og mögulega mun það fara minnkandi á næsta ári þegar framleiðsluspennan í hagkerfinu snýst í slaka. Hann segir flesta þætti núna vera að falla með Seðlabankanum og hefur ekki sömu áhyggjur og áður af framboðsskorti á íbúðamarkaði litið til allra næstu ára. 20.11.2024 18:04