Vann eftirsótt verðlaun Vöruhönnuðurinn Brynjar Sigurðarson vann eftirsótt hönnunarverðlaun í Frakklandi á dögunum. Brynjar fékk verðlaunin fyrir ljós og Húsgögn frá Vopnafirði, línu sem hann gerði fyrir lokaverkefni sitt í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Brynjar tók þátt í sýningu ungra hönnuða í Villa Noailles í franska strandbænum Hyères í suðurhluta Frakklands. Tíska og hönnun 3. september 2011 07:00
Mundi frestar bambustískusýningu Tískuhönnuðurinn Mundi Vondi hefur frestað tískusýningu sem hann ætlaði að halda í Gamla bíói á föstudagskvöld. Ástæðan er sú að hann er upptekinn við búningahönnun fyrir leikritið Axlar-Björn auk þess sem Airwaves-tónlistar-hátíðin er á næsta leiti. Tíska og hönnun 1. september 2011 16:00
Sólarljósið nýtt að fullu Bóndabýli í Michigan í Bandaríkjunum var breytt í hlýlegt heimili þar sem sólarbirtan er nýtt að fullu og sömuleiðis mikil lofthæð hússins. Íbúarnir, fimm manna fjölskylda, lögðu sérstaka áherslu á að bærinn rammaði inn notalega hlýju þar sem sólarljósið fengi að njóta sín. Eins og sjá má á myndunum tókst það svo sannarlega. Tíska og hönnun 1. september 2011 11:12
Geðveikt grúví Meðfylgjandi má sjá haustlínu A.F. Vandevorst í ár... Tíska og hönnun 30. ágúst 2011 09:33
Baksviðs á tískuviku Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru baksviðs þegar ástralska tískuvikan hófst formlega í Sydney í Ástralíu. Eins og sjá má var stemningin ekki síðri baksviðs en á sýningarpöllunum. Fyrirsæturnar sýndu fatnað eftir fjölda hönnuða. Tíska og hönnun 29. ágúst 2011 12:43
Einfalt og litríkt Haustlína Blumarine er einföld og kvenleg. Þá er litagleðin allsráðandi eins og sjá má í myndasafni. Tíska og hönnun 26. ágúst 2011 19:34
Alexa í fatabransann Breska sjónvarpsstjarnan og tískufyrirmyndin Alexa Chung verður andlit næstu línu frá verslanakeðjunni Vero Moda. Það þykir mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá hina ungu Chung í sínar raðir því hún þykir með eindæmum smart og mikil fyrirmynd í tískuheiminum. Tíska og hönnun 25. ágúst 2011 21:00
Fimm íslensk merki á tískuvikuna í París "Ég fer út með bjartsýnina að vopni og vonast til að næla mér í nokkra viðskiptavini,“ segir Rebekka Jónsdóttir fatahönnuður en hún fer nú í fyrsta sinn á tískuvikuna í París. Tíska og hönnun 24. ágúst 2011 08:15
Afl til breytinga Sóley Stefánsdóttir, grafískur hönnuður situr í nefnd um mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland. Hún flytur einnig áhugaverða pistla um hönnun í Ríkisútvarpinu á miðvikudögum. Tíska og hönnun 23. ágúst 2011 20:00
Gengur vel innan um þekkta tískuhönnuði Íslensk hönnun verður í fyrsta sinn til sölu í Debenhams erlendis seinna á þessu ári en til eru um tvö hundruð Debenhams-búðir í 25 löndum. Hönnun Mörtu Jonsson er vinsæl og setti met á síðu VivaLaDiva. Tíska og hönnun 23. ágúst 2011 14:30
Haustlína Marc Jacobs Meðfylgjandi má sjá haustlínu Marc Jacobs árið 2011. Tíska og hönnun 22. ágúst 2011 15:51
Stíliserar H&M Plötusnúðurinn og tískufyrirmyndin Leigh Lezark er nýjasti samstarfsaðili sænsku verslanakeðjunnar Hennes&Mauritz. Lezark ætlar að aðstoða verslunina að velja inn föt í fyrstu deild H&M í Selfridges í London. Tíska og hönnun 22. ágúst 2011 12:00
Reykjavík Runway 2011 Meðfylgjandi myndband sýnir aðeins brotabrot frá Reykjavík Runway fatahönnunarkeppninni sem fram fór í Hafnarhúsinu í vikunni þar sem fjórir hönnuðir voru valdir í úrslitin; þær Eygló Margrét Lárusdóttir, Sólveig og Edda Guðmundsdætur, og Rosa Denise Winther Denison og Bryndís Þorsteinsdóttir og sigurvegarinn, Harpa Einarsdóttir. Harpa fær samning við Reykjavik Runway þar sem haldið verður áfram að vinna að uppbyggingu tískumerkis hennar, Zizka, á tískuvikunni í New York. Tíska og hönnun 20. ágúst 2011 12:08
Glæsivilla við vatnið Meðfylgjandi má sjá myndir af glæsivillu í Kaoyai, sem er þjóðgarður í Tælandi. Vatnið, grasið og trén skapa rómantíska stemningu í gluggastóru rúmgóðu húsinu sem er byggt á nokkrum pöllum. Þá eru stórir gluggar í þaki hússins sem sjá til þess að birtan flæði fallega í rýminu. Tíska og hönnun 19. ágúst 2011 16:24
Leðurkjólatíska í Hollywood Leður hefur heldur betur verið að ryðja sér til rúms á tískupöllunum undanfarið og nú hefur leðrið skilað sér á rauða dregilinn. Kjólar úr þessu sterka efni eru greinilega vinsælir hjá stjörnunum, sem keppast um að skarta glansandi leðurkjólum við fín tilefni. Merki á borð við Hermés og Chloe voru með litríkt leður í bolum, kjólum, pilsum og buxum í vetrarlínum sínum fyrir komandi haust og því þess virði að halda augunum opnum fyrir fögrum leðurflíkum. Tíska og hönnun 18. ágúst 2011 16:00
Yohji Yamamoto haust 2011 Meðfylgjandi má sjá haustlínu Yohji Yamamoto fyrir árið 2011. Tíska og hönnun 18. ágúst 2011 11:45
Tískuviðburður í Kronkron á Menningarnótt Á menningarnótt verður uppi heljarinnar húllumhæ í versluninni Kronkron við Laugaveg. Aðdáendur Kron by Kronkron gleðjast eflaust yfir því að ný vetrarlína merkisins verður komin í hús en einnig ætlar Hildur Yeoman fatahönnuður að sýna nýja fylgihlutalínu sína, Cherry Bomb Collection. Tíska og hönnun 17. ágúst 2011 13:00
Christian Dior - haust 2011 Meðfylgjandi má sjá haustlínu fyrir árið 2011 frá Christian Dior. Tíska og hönnun 16. ágúst 2011 07:32
Ýkt sæt í Jason Wu Leikkonan Diane Kruger var klædd í Jason Wu fatnað frá toppi til táar á rauða dreglinum. Blár retró jakkinn við stuttar buxurnar, skyrtan og upptekið hárið hefur fengið verðskuldaða athygli í tískudálkum vestan hafs. Takið eftir gula veskinu sem toppar heildina á skemmtilegan máta. Haustlína Jason Wu (myndir). Tíska og hönnun 12. ágúst 2011 10:19
Sumartískan 2012 í Kaupmannahöfn Hönnuðir og innkaupafólk frá öllum heimshornum sótti Kaupmannahöfn heim um helgina þar sem farið var yfir strauma og stefnur sumarsins 2012. Það er gaman að sjá að litadýrð sumarsins heldur áfram næsta sumar. Bleikur og myntugrænn voru ríkjandi á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem og ljósgrár og auðvitað hvítur, sem allajafna kemur sterkur inn í fataskápinn á sumrin. Tíska og hönnun 10. ágúst 2011 11:00
Balenciaga haustlína 2011 Meðfylgjandi má sjá haustlínu Balenciaga árið 2011. Takið eftir netakjólunum. Tíska og hönnun 8. ágúst 2011 09:37
Gellur ganga í gallajökkum Gallajakkar eru sjóðheitir um þessar mundir. Gallajakkar passa nánast við allt, kjóla, pils eða buxur, sama hvort sem þeir eru snjáðir eða ekki. Meðfylgjandi má sjá myndir af gellum í gallajökkum. Tíska og hönnun 5. ágúst 2011 13:53
Fullkomið fyrir liðið sem er alltaf að flytja XBO gámurinn, sem 70°N arkítektar breyttu í færanlegt heimili, er 12 metrar að lengd, 3,2 metra breiður og lofthæðin er 3,5 metrar. Gámurinn er kjörinn fyrir fólk sem er sjaldan heima hjá sér og gerir litlar sem engar lúxuskröfur. Hann má flytja á auðveldan máta sem er vissulega kostur fyrir fólk sem er endalaust í stuði fyrir flutningar. Skoða gamámyndir hér. Klikkað kaffihús í Chennai á Indlandi eftir Mancini arkítekta. Sjá hér. Tíska og hönnun 4. ágúst 2011 11:58
Íslenskir hönnuðir flykkjast á tískuvikuna í Köben Danska tískuvikan hefst í dag og er Kaupmannahöfn stútfull af innkaupafólki og fatahönnuðum víðs vegar að úr heiminum. „Þetta er í þriðja sinn sem við förum hingað út. Alltaf gaman þó að auðvitað séu þetta fyrst og fremst viðskipti,“ segir Jóel Pálsson, annar eigenda fatamerkisins Farmers Market. Jóel var að lenda í Kaupmannahöfn ásamt eiginkonu sinni, Bergþóru Guðnadóttur, þegar Fréttablaðið náði af honum tali. Tíska og hönnun 4. ágúst 2011 11:00
Þetta hús leynir á sér Þetta hús, sem staðsett er í Tucson í Bandaríkjunum, lætur ekki fara mikið fyrir sér séð frá götunni. Lóðin er í þröngu skipulagi borgarinnar og hvert herbergi hússins tekur mið að því að hámarka nýtingu rýmisins. Einfalt og nútímalegt hús sem leynir svo sannarlega á sér. Þegar inn í stílhreint húsið er komið leika himinn og sundlaug aðalhlutverkin eins og sjá má á myndum í myndasafni. Tíska og hönnun 2. ágúst 2011 12:25
Það gerist ekki svalara Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Diesel Black Gold haustlínu í ár sem einkennist af svalheitum, leðri og rúskinni. Hér má sjá myndband frá sýningunni (Dieselblackgold.com). Tíska og hönnun 29. júlí 2011 14:08
Stundum er ein sundlaug einfaldlega ekki nóg Meðfylgjandi má sjá myndir af svölu svörtu einbýlishúsi, sem er í eigu ungra barnlausra hjóna, 30 km frá Buenos Aires í Argentínu. Ef myndirnar eru skoðaðar má greinilega sjá að gler er notað í miklum mæli og að ekki er lagt mikið upp úr öryggi (enda engin börn á heimilinu) þegar kemur að sundlaugunum. Húsið er kjörið fyrir veisluhöld og sundlaugarpartý. Tíska og hönnun 29. júlí 2011 11:44
D&C haustlína karla 2012 Haustlínu Dolce & Gabbana árið 2012 fyrir herra má skoða í meðfylgjandi myndaalbúmi. Tíska og hönnun 28. júlí 2011 12:34
Skammarkrókur laus við lúxus Meðfylgjandi myndir sýna kofa sem er staðsettur í skógi í Bordeaux í Frakklandi. Hugmyndin var að byggja lítinn látlausan kofa sem skaðaði ekki umhverfi sitt á nokkurn hátt. Kofinn minnir helst á skammarkrók fyrir einhvern sem hefur gert eitthvað af sér því lúxusinn er enginn eins og sjá á myndunum. Tíska og hönnun 27. júlí 2011 10:46
Fléttu-fílingur í Hollywood Í meðfylgjandi myndasafni má sjá frábærar hugmyndir þegar kemur að því að flétta hárið. Nicole Kidman, Rihanna, Jennifer Lopez og Paris Hilton vita hvað þarf til að tolla í tískunni. Í sumar er það fléttað hár og það á rauða dreglinum. Skoða myndir hér. Tíska og hönnun 27. júlí 2011 10:26