Fatnaður sem vex með börnum Íris Bjarnadóttir fatahönnuður hannar skemmtileg föt á börn undir heitinu Pjakkar auk kvenfatnaðs undir eigin nafni. Flíkurnar sem hún hannar eru fallegar, þægilegar en umfram allt notadrjúgar. Tíska og hönnun 6. janúar 2012 21:00
Tíu vinsælustu fyrirsætur ársins Tískutímaritið Vogue útnefndi nýverið tíu vinsælustu fyrirsætur ársins. Athygli vakti að fyrirsæturnar eru flestar komnar vel á þrítugsaldurinn og ekki á barnsaldri eins og oft hefur verið. Efsta sætið hreppti fyrirsætan Arizona Muse. Tíska og hönnun 2. janúar 2012 18:00
Ellefu litrík tískuslys á árinu sem er að líða Samantektir yfir best klædda fólk ársins 2011 hafa birst víða er líður að árslokum en einhver tískuslys urðu einnig á árinu. Söngkonurnar Fergie og Katie Perry áttu nokkur slík auk rokkarans Stevens Tylor. Tíska og hönnun 27. desember 2011 21:00
Fjórir skrautlegustu fataskápar Hollywood Á þessu ári hefur frumlegri og litríkari fatnaður sést á rauða dreglinum en oft áður. Það er meðal annars poppsöngkonunni Lady Gaga að þakka, en hún nær alltaf að koma á óvart með klæðnaði sínum. Tíska og hönnun 25. desember 2011 15:00
Mæðgur skulu ekki deila fötum Carine Roitfeld, fyrrverandi ritstjóri franska Vogue, ræddi tísku og blaðaútgáfu við The Guardian um síðustu helgi og ráðlagði mæðrum að fá aldrei lánuð föt dætra sinna. Tíska og hönnun 25. desember 2011 11:00
Blæs á samstarf við H&M Fatahönnuðateymið Stefano Gabbana og Domenico Dolce segist aldrei ætla að fara í samstarf við verslanakeðjur á borð við sænska verslanarisann Hennes & Mauritz. Tíska og hönnun 23. desember 2011 06:00
Jólaförðunin: Glæsileiki & jólagleði Jólaboð eru fram undan hjá mörgum og gaman getur verið að klæðast sínu fínasta pússi og setja svolítinn lit á kinnarnar. Björg Alfreðsdóttir hjá MAC sýnir fallega jólaförðun sem allir ættu að geta leikið eftir áður en haldið er á jólaball. Tíska og hönnun 22. desember 2011 14:00
Brasilískur trommari nýtt andlit Chanel Fyrirsætan og trommarinn Alice Dellal er nýtt andlit Chanel-tískuhússins. Það er sjálfur Karl Lagerfeld sem stendur bak við linsuna í auglýsingaherferðinni sem sýnir nýja töskulínu Chanel. Í tilkynningu frá tískumerkinu segir eftirfarandi: „Lagerfeld hitti Alice Dellal fyrst í myndatöku fyrir nokkrum mánuðum og hreifst strax af einstakri og heillandi framkomu fyrirsætunnar og tónlistarkonunnar.“ Tíska og hönnun 21. desember 2011 15:00
Þær best klæddu árið 2011 Árið er senn á enda og nú keppast fjölmiðlar um að gera það upp á ýmsa vegu. Tískublöð á borð við Vogue, Vanity Fair og Glamour hafa þannig birt lista yfir best klæddu konur, og systur, ársins 2011. Listarnir eru nokkuð ólíkir og á lista Vanity Fair má sjá nöfn ýmissa framakvenna á meðan söng- og leikkonur verma efstu sæti lista Glamour. Föstudagur bar saman konurnar á þessum listum. Tíska og hönnun 20. desember 2011 20:00
Boðið að sýna á New York Fashion Week "Jú, þetta var hálf ótrúlegt allt saman,“ segir Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður, sem er nýkomin heim frá New York þar sem hún sýndi sína fyrstu skólínu á skósýningu The Fashion Footwear Association of New York, líkt og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Hönnun Halldóru vakti mikla athygli og hún er kampakát með viðbrögðin. "Fólk var mjög hrifið af básnum okkar. Það er ekki auðvelt að vera eitt af nýju merkjunum þarna, en ég skar mig úr og sumir göptu af undrun þegar þeir sáu hráefnið í skónum.“ Tíska og hönnun 20. desember 2011 11:30
Auðvelda útrás hönnunar "Við höfum lengi verið með þessa hugmynd i kollinum og ákváðum svo að flytja til Berlínar og kýla á þetta í haust,“ segir Tinna Pétursdóttir ein af eigendum fyrirtækisins Boxer Nation, sem er dreifingarþjónusta fyrir hönnuði. Tíska og hönnun 20. desember 2011 09:15
Góð blanda af rokki og þægindum Eva Lín Traustadóttir hannar fatnað undir nafninu evalín og leggur mikla áherslu á þægilega og klæðilega hönnun. Evalín er ársgamalt fyrirtæki sem hefur dafnað hratt. Tíska og hönnun 18. desember 2011 09:00
Shadow Creatures styðja við bakið á konum í afríku Systurnar Edda og Sólveg Ragna Guðmundsdætur sem hanna undir nafninu Shadow Creatures hafa tekið höndum saman við Kríurnar, þróunarsamtök í þágu kvenna í Afríku. Hluti af hverri seldri flík frá systrunum mun renna til styrktar málefnum Kríanna. Tíska og hönnun 16. desember 2011 20:00
Blogga um hugmyndir og hönnun Systurnar Anna Kristrún og Björg Gunnarsdætur halda úti blogginu Overonecoffee.com en þar er að finna fallega hönnun og sniðugar lausnir í hversdeginum. Bloggið er mjög vinsælt og fær um þrjú þúsund flettingar daglega. „Nafnið kom til vegna þess að bloggið er eitthvað sem maður dundar sér við að skoða yfir einum kaffibolla,“ segir Anna Kristrún Gunnarsdóttir verkefnastjóri sem heldur úti blogginu Overonecoffee.com ásamt systur sinni Björgu Gunnarsdóttur, margmiðlunarhönnuði. Tíska og hönnun 15. desember 2011 16:15
Setja á markað handgerða fylgihluti með karakter Mariko Margrét Ragnarsdóttir og Ólöf María Ólafsdóttir, betur þekkt sem Marý, eru hönnuðirnir á bak við merkið MARYMARIKO. Þær hanna fylgihluti úr endurnýttum efniviði. "Við höfum alltaf haft gaman af því að hanna og skapa með höndunum,“ segja Mariko Margrét Ragnarsdóttir sem hefur stofnað merkið MARYMARIKO ásamt vöruhönnuðinum Ólöfu Maríu Ólafsdóttur, betur þekkt sem Marý. Tíska og hönnun 9. desember 2011 09:00
Vor 2012 - Monique Lhuillier Meðfylgjandi má sjá vorlínu hönnuðarins Monique Lhuillier árið 2012.. Tíska og hönnun 6. desember 2011 14:30
Ást við fyrstu sýn hjá ritstjóra "Jú, þetta er frábær auglýsing," segir vöruhönnuðurinn Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir. Fyrir helgi birtist umfjöllun um Not Knot-púða Ragnheiðar á einu af vinsælustu hönnunarbloggum Bandaríkjanna, Design Milk, en daglega sjá á bilinu hálf milljón til tveggja milljóna lesenda efnið sem birtist á síðunni. Það var sjálfur ritstjóri síðunnar sem skrifaði um púðana og sagði það hafa verið ást við fyrstu sýn þegar hún rak aukun í þá. Púðana gerir Ragnheiður úr íslensku einbandi. Tíska og hönnun 5. desember 2011 21:00
Barnvæn vinnustofa Vala Magnúsdóttir hefur drifið óvenjulegt verkefni af stað. Ólátagarður er hönnunarverslun með barna- og barnatengda vöru sem býður auk þess upp á opna vinnustofu. Þar geta foreldrar og börn föndrað vörur sem Vala framleiðir undir heitinu Ólátagarðshönnun Tíska og hönnun 1. desember 2011 14:00
Að fara ekki í jólaköttinn Jólakötturinn er nýr spilastokkur eftir Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuð. Spilið miðast við yngstu spilamennina og gengur út á að safna samstæðum jólasveinum og lenda ekki í jólakettinum. Tíska og hönnun 30. nóvember 2011 21:00
Fyrirsætunnar Loulou de la Falaise minnst Tískuíkonið Loulou de la Falaise lést í byrjun mánaðarins aðeins 63 ára að aldri. Falaise var músa, samstarfskona og ein besta vinkona hönnuðarins Yves Saint Laurent, sem hannaði Le Smoking-kvenjakkafötin fyrir áhrif frá henni. Tíska og hönnun 29. nóvember 2011 22:00
Innlit til Lukku - Huggulegt hverfi með skuggahlið Lukka Sigurðardóttir býr ásamt fjölskyldu og gæludýrum í Bústaðahverfinu. Lukka er nemandi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hún var í hópi myndlistarmanna sem tók þátt í listasýningunni InterMost "Elusive Intimacy" í Gallery K4 í Prag. Tíska og hönnun 29. nóvember 2011 21:00
Prada - vor 2012 Í meðfylgjandi myndaalbúmi má skoða vorlínu Prada 2012 þar sem áhersla er lögð á falleg munstur... Tíska og hönnun 29. nóvember 2011 09:00
Gulla hannar glæsihýsi í Mið-Austurlöndum Íslenskur arkitekt, Guðlaug Jónsdóttir, ætlar á næstunni að opna skrifstofur í þremur heimsálfum. Guðlaug hefur getið sér gott orð í Bandaríkjunum en hyggst sækja á ný mið í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Tíska og hönnun 26. nóvember 2011 21:00
Skreytir bæinn með jólavættum "Ég er búinn að vera á kafi í þessu verkefni síðan í ágúst og er því jólaundirbúningurinn ansi langur hjá mér í ár,“ segir Hafsteinn Júlíusson vöruhönnuður en hann ætlar að sjá til þess að miðborgin fær á sig nýjan blæ í desember. Tíska og hönnun 25. nóvember 2011 21:00
Auglýsingar tískurisa þykja ekki börnum sæmandi Bresku samtökin Advertising Standards Authority hafa bannað auglýsingar frá tískumerkjunum Marc Jacobs og Miu Miu. Ástæðan er að þær þykja ekki börnum sæmandi, en leikkonurnar Dakota Fanning og Hailee Steinfeld eru í aðalhlutverkum á myndunum. Tíska og hönnun 25. nóvember 2011 16:15
Íslenskur skóhönnuður sýnir í New York „Þetta er alveg frábært tækifæri fyrir mig,“ segir Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður. Tíska og hönnun 22. nóvember 2011 05:00
Ódýr snilld í eldhúsið Ef þig langar til að fríska aðeins upp á eldhúsið þitt, án þess þó að gera róttækar breytingar, þá er... Tíska og hönnun 20. nóvember 2011 08:57
Kisan kveður Laugaveg Hjónin Olivier Brémond og Þórunn Anspach hyggjast loka versluninni Kisan við Laugaveg í desember. Ætla á móti að leggja meiri rækt við verslunarrekstur í New York og opna þar aðra búð á næstu árum. Tíska og hönnun 18. nóvember 2011 14:00
Í samstarf við tískurisa Íslenska fyrirtækið Kron by Kronkron er komið í samstarf við franska tískurisann Mariu Luisu um hönnun, framleiðslu og sölu á skóm. Opnar margar dyr segir annar eigendanna, Magni Þorsteinsson. Tíska og hönnun 18. nóvember 2011 13:00