Fetar í fótspor Alexanders McQueen Aníta Hirlekar útskrifaðist með BA í fatahönnun frá virta listaháskólanum Central Saint Martins í London í síðustu viku og hefur fengið inngöngu í eftirsóknarvert meistaranám hans. Sama nám hefur verið stökkpallur fyrir þekkta hönnuði á borð við Alexander McQueen. Tíska og hönnun 30. júlí 2012 10:00
Steinunn fetar í fótspor foreldra sinna "Ég hef alltaf verið að hanna og leika mér og breyta skartgripum sem ég átti, en byrjaði ekki almennilega að hanna og gera gripi frá grunni fyrr en árið 2010 og hef verið að síðan þá,“ segir Steinunn Camilla Sigurðardóttir, söngkona í The Charlies. Fyrsta skartgripalína Steinunnar, Carma Camilla, er nú fáanleg á netinu. Tíska og hönnun 25. júlí 2012 07:00
Litrík táningaverðlaun - myndir Teen Choice verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles á sunnudag. Verðlaunin eru afhent ár hvert og eru sigurvegarar í hverjum flokki kosnir af áhorfendum á unglingsaldri. Tíska og hönnun 24. júlí 2012 22:30
Hannar eigin fatalínu Rihanna er ekki við eina fjölina felld; hún lék í sinni fyrstu kvikmynd á árinu og nú hyggst hún hanna fatalínu fyrir tískumerkið River Island. „Mig hefur lengi langað að hanna mína eigin fatalínu. River Island er hinn fullkomni samstarfsaðili og mér þótti eftirsóknarvert að vinna með bresku, fjölskyldureknu fyrirtæki,“ sagði Rihanna í tilkynningu um málið. „London veitir mér innblástur og River Island hannar skemmtilegan fatnað. Ég hlakka til að vinna með þeim og skapa eitt og annað alveg sérstakt.“ Áætlað er að fatalína Rihönnu komi í verslanir vorið 2013. Tíska og hönnun 17. júlí 2012 11:00
Mótmæltu Teen Vogue Tvær stúlkur efndu til mótmæla við skrifstofur Teen Vogue í vikunni og vildu með því hvetja tímaritið til þess að breyta ekki útliti fyrirsæta í blaðinu með aðstoð tölvutækni. Tíska og hönnun 13. júlí 2012 14:00
Fékk frelsi við hönnun E-label Ýr Þrastardóttir fatahönnuður hannar nýja línu fyrir tískumerkið E-label. Línan er væntanleg í haust og samkvæmt hönnuðinum sjálfum er hún ætluð konum sem vilja áberandi og öðruvísi föt. ?Forstöðumenn fyrirtækisins voru mjög hrifin af línunni sem ég sýndi á Reykjavík Fashion Festival í vetur og því var ég fengin til að hanna fyrir merkið. Línan sem ég gerði fyrir E-label er í raun Tíska og hönnun 9. júlí 2012 10:00
Vel heppnuð tískuvika Tískusýning hönnuðarins Sruli Recht var í fyrsta sinn liður af opinberri dagskrá herratískuvikunnar í París á dögunum. Sruli sýndi á sama tíma og tískuhús á borð við Issey Miyake, Pierre Cardin, Dior, Galliano, Hermés, Luis Vuitton og Rick Owens. Tíska og hönnun 7. júlí 2012 08:00
Raf olli ekki vonbrigðum Hönnuðurinn Raf Simons þótti standa sig með prýði þegar hann frumsýndi fyrstu hátískulínu sína á tískuvikunni í París. Simons tók við sem yfirhönnuður Dior tískuhússins eftir að John Galliano lét af störfum. Tíska og hönnun 5. júlí 2012 10:00
Listrænn stjórnandi fyrir sýningu hjá Cedar Lake „Ég er stílisti fyrir tískublöð, auglýsingar og aðila á borð við Oprah Winfrey og Diana Sawyer,“ segir Edda Guðmundsdóttir stílisti í tískuborginni New York. Nú síðast var hún fengin sem listrænn stjórnandi fyrir sýningu Cedar Lake dansflokksins, sem er einn sá virtasti í New York, en hún var frumsýnd 18. júní og lauk á dögunum. Hún telur uppsetninguna til stærri verkefna sinna. Tíska og hönnun 4. júlí 2012 10:00
Miss J. hrifinn af Munda "Hann kom í heimsókn í sýningarherbergið okkar hérna í París,“ segir farahönnuðurinn Mundi sem fékk hinn fræga gönguþjálfara og fyrirsætu Miss J. Alexander í heimsókn í vikunni. Miss J. Alexander er litríkur karakter sem skaust fram í sviðljósið sem hægri hönd fyrirsætunnar Tyru Banks í raunveruleikaþáttunum America"s Next Top Model. Þar var hann þekktur fyrir að koma fram í skemmtilegum fatasamsetninum og jafnvel klæðast dragi. Miss J sérhæfir sig í að kenna fyrirsætum að ganga tískupallinn enda fyrrum fyrirsæta sjálfur. Hann er búsettur í París en þar fer nú fram herrafatatískuvika fyrir sumarið 2013. Tíska og hönnun 2. júlí 2012 20:00
Sýnir með Issey Miyake og Dior á tískuvikunni í París "Sýning sem þessi er mjög mikilvæg hönnuðum sem vilja koma sér á framfæri á erlendum mörkuðum og setur okkur í flokk með stóru tískuhúsunum og ýtir undir áhuga kaupenda,“ segir fatahönnuðurinn Sruli Recht. Tískusýning hans er nú liður í opinberri dagskrá tískuvikunnar í París í haust og mun hann sýna á sama tíma og tískuhús á borð við Issey Miyake, Pierre Cardin, Dior, Galliano, Hermés, Luis Vuitton og Rick Owens. Tíska og hönnun 2. júlí 2012 15:00
Karl Bretaprins verður tískuspekingur Það er enginn annar en Karl Bretaprins sem gefur karlmönnum tískuráðleggingar í júlíútgáfu breska GQ-tímaritsins. Karl hefur löngum verið ötull talsmaður breskrar fatahönnunar en prinsinn var í vor kosinn einn af bestu klæddu mönnum Bretlands af lesendum GQ. Tíska og hönnun 2. júlí 2012 10:00
Fyrirsætur í hár saman á Twitter Íraelska ofurfyrirsætan Bar Refaeli reitti samstarfskonu sína, Irinu Shayk, til reiði þegar hún birti skoðun sína á klippingu fótboltakappans Cristiano Ronaldo, kærasta Shayk, á Twitter. Refaeli var ekki par hrifin af hárgreiðslunni sem Ronaldo skartar á meðan hann spilar með portúgalska landsliðinu á EM í knattspyrnu og skrifaði á Twitter: ?Það eina sem ég get hugsað um þegar ég sé Ronaldo er að það ætti að banna hárgel.? Tíska og hönnun 2. júlí 2012 08:00
Gyðja Collection og í allra fyrsta skipti Lilja Collection Í meðfylgjandi myndasafni má sjá frumsýningu á tveimur glænýjum sumar og haustlínum frá Gyðju sem eru komnar í verslanir. Tíska og hönnun 29. júní 2012 12:45
Iðnaðarljós fyrir heimilið Stór hangandi iðnaðarljós sáust yfirleitt aðeins á veitingastöðum þar til nú en síðasta árið hafa ljós af þessu tagi sést í auknum mæli inni á heimilum. Tíska og hönnun 29. júní 2012 12:00
Lady Gaga-jakkinn sleginn á rúmar 2 milljónir króna „Það var mjög spennandi að fylgjast með uppboðinu,“ segir fatahönnuðurinn Vera Þórðardóttir en jakki sem hún hannaði og poppstjarnan Lady Gaga klæddist seldist á dögunum fyrir 17.500 dollara, eða rúmar 2,2 milljónir íslenskra króna. Tíska og hönnun 29. júní 2012 11:00
Britney í eldrauðum þröngum kjól Söngkonan Britney Spears mætti í eldrauðum kjól í X-Factor áheyrnarprufurnar í gær... Tíska og hönnun 28. júní 2012 11:30
Giorgio Armani sýning vakti mikla lukku Giorgio Armani sýndi herratískuna fyrir vor/sumar 2013 í stórborginni Mílanó á Ítalíu í vikunni... Tíska og hönnun 28. júní 2012 10:30
Óaðfinnanleg Blake Lively Blake Lively var stórglæsileg að sjá er hún mætti í ,The Late Show hjá David Letterman í gærkvöldi. Tíska og hönnun 27. júní 2012 15:00
Burton fær orðu drottningarinnar Fatahönnuðurinn Sarah Burton hefur fengið orðu frá bresku drottningunni fyrir framlag sitt til breskrar fatahönnunar. Burton, sem tók við tískuhúsi Alexanders McQueen eftir að hann lést árið 2010, hannaði brúðarkjól Katrínar hertogaynju af Cambrigde er hún gekk í það heilaga með Vilhjálmi Bretaprins í fyrra. Kjóllinn þótti einkar vel heppnaður hjá Burton. Tíska og hönnun 26. júní 2012 13:00
Zara vann Louboutin - Mega selja rauða sóla Spænska fatamerkið Zara vann mál sem skóhönnuðurinn Christian Louboutin höfðaði gegn fyrirtækinu árið 2008. Ástæða málsins var að Zara seldi skó með rauðum sóla, en það taldi Louboutin sig hafa einkarétt á. Málið hefur verið lengi á leið sinni í gegnum réttarkerfið í Frakklandi sem komst á dögunum að þeirri niðurstöðu að Zöru er leyfilegt að selja skó með rauðum sóla og þarf Louboutin því að greiða verslunarkeðjunni vinsælu um hálfa milljón í skaðabætur. Tíska og hönnun 26. júní 2012 08:00
Gyðja Collection kynnir nýja sumarlínu Um glænýja skó- og fylgihlutalínu fyrir sumarið er að ræða sem unnin er úr hágæða íslensku roði. „Ég nota mikið íslenskt roð í fylgihlutina frá Gyðju en allir skórnir eru úr ekta leðri og roði að innan sem utan. Fiskleður er bæði sterkt og meðfærilegt og hefur frá náttúrunnar hendi einstaka eiginleika.Það er mjög gaman að vinna með þetta flotta hráefni því að í hverri tegund er hægt að leika sér með áferð, liti og yfirborðsmeðferðir. Þekktu alþjóðlegu merkin eins og Prada, Dior, Nike, Ferragamo og Puma eru einnig farin að nýta sér þetta einstaka íslenska hráefni sem unnið er í Sjávarleðri á Sauðárkróki." segir Sigrún Lilja, framkvæmdastjóri Gyðju Tíska og hönnun 22. júní 2012 18:00
Íslensk fyrirsæta gerir það gott á heimsvísu Hólið þessa vikuna fær íslenska fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir sem gerir það gott á heimsvísu en um þessar mundir en hún er andlit ítalska tískuhússins Versace fyrir árið 2013. Tíska og hönnun 22. júní 2012 10:30
Klæddu þig rétt fyrir ströndina Ófáir Íslendingar halda nú til heitari landa þar sem þeir njóta þess að baða tærnar upp úr heitum sjó og sóla kroppinn... Tíska og hönnun 21. júní 2012 10:10
Rihanna tekur zebramunstrið alla leið Söngkonan Rihanna, 24 ára, var í gærdag klædd í gular zebra munstraðar stuttbuxur þegar hún yfirgaf hótelið sem hún gistir á í London... Tíska og hönnun 20. júní 2012 15:00
Svartklædd Gaga Söngkonan Lady Gaga, 26 ára, brosti blítt þegar hún var mynduð í Sydney í Ástralíu í gærdag klædd í hælaskó sem fóru ekki fram hjá neinum... Tíska og hönnun 20. júní 2012 14:00
Keira Knightley eins og gyðja á rauða dreglinum Keira Knightley var vægast sagt glæsileg á frumsýningu kvikmyndarinnar, Seeking A Friend For The End Of The World á Los Angeles kvikmyndahátíðinni á dögunum... Tíska og hönnun 20. júní 2012 10:30
Stjörnur klæðast samfestingum Samfestingar hafa slegið svo rækilega í gegn að stjörnurnar keppast nú við að klæðast þeim á sjálfum rauða dreglinum... Tíska og hönnun 20. júní 2012 09:30
Ekki hrifinn af Bundchen Karlfyrirsætan David Gandy hefur barist ötullega fyrir launajöfnuði innan fyrirsætubransans, en kvenfyrirsætur fá að jafnaði töluvert hærri laun en karlfyrirsætur. Að auki segir Gandy að sumar ofurfyrirsæturnar séu hortugar og erfiðar að vinna með. Tíska og hönnun 20. júní 2012 08:00
Fimm flottustu dress vikunnar Ungstirnið, Selena Gomez er ein þeirra sem vakti mikla athygli fyrir útlit sitt og klæðnað í vikunni sem er að líða... Tíska og hönnun 18. júní 2012 21:00
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið