Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu. Viðskipti innlent 22. desember 2023 12:53
Andstæðingar sjókvíaeldis æfir vegna ákvörðunar Helga Á forsíðu nýs tölublaðs Veiðimannsins, tímariti Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er mynd eftir Gunnar Karlsson þar sem sjókvíaeldið er teiknað upp sem ókindin í íslenskri náttúru. Niðurstaða Helga Jenssonar lögreglustjóra á Vestfjörðum, sú að fella niður rannsókn á slysasleppingum fyrir vestan, kemur illa við andstæðinga sjókvíaeldis. Innlent 21. desember 2023 17:05
Kvika á mikið inni, segir greinandi Kvika á mikið inni, að sögn hlutabréfagreinenda sem metur bankann um 23 prósentum yfir markaðsvirði, en gengi bréfa bankans hefur hækkað um fimmtung á einum mánuði. „Það er von á hraustlegri arðgreiðslu eða endurkaupum,“ segir í verðmati um væntanlega sölu á TM. Innherji 21. desember 2023 12:22
Fossaforstjórarnir veðsetja allt sitt í VÍS Haraldur I. Þórðarson, forstjóri samstæðu VÍS og fyrrverandi forstjóri Fossa, og Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa, hafa sett alla hluti sína í VÍS, sem þeir eignuðust í kjölfar sameiningar félaganna tveggja, að veði til tryggingar lánasamningum. Samanlagt virði hlutanna er tæplega 1,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 21. desember 2023 11:23
Að birta fjárhagsupplýsingar á undan ársreikningi Einn mikilvægasti tímapunkturinn í fjárfestatengslum skráðra félaga er þegar þau birta fjárhagsupplýsingar fyrir árið. Fjárfestar bíða í ofvæni eftir að sjá rekstrarniðurstöðu ársins dregna saman, með umfjöllun um helstu áhrifaþætti og jafnvel horfur á komandi misserum. Hér á landi hefur yfirleitt verið horft á birtingu fjárhagsupplýsinga og ársreikning sem sama hlutinn. Þannig er það samt ekki erlendis. Umræðan 21. desember 2023 10:10
Telja alvarleg brot hafa verið framin varðandi samruna N1 og Festi Samkeppniseftirlitið hefur sent Festi andmælaskjal vegna ætlaðra brota á skilyrðum sem fram koma í ákvörðun frá árinu 2019 um samruna N1 og Festi. Það sé mat Samkeppniseftirlitsins að hin meintu brot séu alvarleg og að til álita komi að beita viðurlögum. Festi hafnar því að hafa brotið gegn ákvæðum sáttarinnar. Viðskipti innlent 21. desember 2023 09:09
Veðsetja alla hluti sína í VÍS og Kaldalóni Fjárfestingafélagið Skel hefur veðsett alla hluti sína í félögunum VÍS og Kaldalóni, helstu skráðu félögunum í eignasafni Skeljar. Forstjórinn segir um hefðbundna fjármögnun að ræða. Viðskipti innlent 20. desember 2023 16:10
Spá fjölgun farþega og ferðamanna á næsta ári Tæplega 8,5 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll á næsta ári samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið 2024. Frá því er greint í tilkynningu. Farþegar hafa aðeins tvisvar verið fleiri. Þá er einnig gert ráð fyrir fjölgun ferðamanna og að fjöldinn verði meiri en þegar hann var mestur árið 2018. Viðskipti innlent 20. desember 2023 14:49
Hver er vinsælasta jólagjöfin? Samverustund hefur verið valin jólagjöf ársins samkvæmt könnun Rannsóknarseturs verslunarinnar. Valið snýst því ekki lengur um mjúka eða harða pakka, heldur er það samvera með fólkinu okkar sem hefur vinningin. Lífið samstarf 20. desember 2023 11:48
Kröfur Sýnar gegn Jóni Einari ekki nægilega skýrar Stefnu Sýnar á hendur Jóni Einari Eysteinssyni hefur verið vísað frá héraðsdómi. Sýn höfðaði mál á hendur honum fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu félagsins. Innlent 19. desember 2023 17:13
Hætta að taka við 500 og 1.000 króna dönskum seðlum Arion banki hefur tilkynnt að ekki verði lengur tekið við 500 og 1.000 króna dönskum seðlum frá og með áramótum. Viðskipti innlent 19. desember 2023 13:47
Þögn landlæknis um stöðu Origo Tækifæri til að nýta heilbrigðistæknilausnir í íslenzka heilbrigðiskerfinu eru mikil. Alls konar hug- og vélbúnaður getur stuðlað að því að bæta umönnun og líðan sjúklinga, bæta utanumhald gagna og lækka kostnað, sem ekki er vanþörf á, um leið og þjóðin eldist og umfang heilbrigðisþjónustu fer vaxandi. Skoðun 19. desember 2023 12:00
Eldgosið hefur ekki áhrif á flug Icelandair Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í gærkvöldi hefur ekki áhrif á flugáætlun Icelandair eins og staðan er nú. Viðskipti innlent 19. desember 2023 10:13
Kemur ný í framkvæmdastjórn Nova Renata Blöndal hefur verið ráðin í starf fararstjóra (Chief Strategy Officer) Nova og tekur hún jafnframt sæti í skemmtana- og framkvæmdastjórn hjá félaginu. Viðskipti innlent 19. desember 2023 09:56
Eldgosið raskar ekki flugumferð Allt flug í dag er samkvæmt áætlun sem gerð var vegna verkfallaflugumferðarstjóra. Þær raskanir sem verða eru því ekki vegna eldgossins. Þetta segir Birgir Olgeirsson hjá PLAY. Innlent 19. desember 2023 08:41
Tvær flugvélar þurftu að hringsóla í skamman tíma Starfsemi á Keflavíkurflugvelli er eðlileg og er flogið bæði til og frá vellinum. Tvær flugvélar Icelandair sem voru á leið til Keflavíkurflugvallar þurftu að hringsóla í skamman tíma á meðan unnin var öskuspá vegna gossins sem hófst um fjóra kílómetra norðaustur af Grindavík klukkan 22:17. Innlent 19. desember 2023 01:19
Flugumferðarstjórar fresta verkfallsaðgerðum Félag flugumferðarstjóra hefur ákveðið að hætta við verkfallsaðgerðir næstkomandi miðvikudag í ljósi tíðinda af eldgosinu. Innlent 18. desember 2023 23:22
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. Innherji 18. desember 2023 11:19
Icelandair semur um rekstur flugeldhúss félagsins til tólf ára Icelandair hefur gert tólf ára samning við fyrirtækið Newrest Group um rekstur flugeldhúss Icelandair á Keflarvíkurflugvelli. Newrest tekur við rekstrinum 1. febrúar næstkomandi. Flugeldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru framleiddar veitingar sem flugfélagið býður upp á í flugi. Viðskipti innlent 18. desember 2023 11:14
Ekki nóg að merkja bjórauglýsingu með „léttöl“ Fjölmiðlanefnd hefur sektað Sýn um 1,5 milljónir króna vegna áfengisauglýsingar sem birt var hér á Vísi. Nefndin taldi að um áfengisauglýsingu hafi verið að ræða þrátt fyrir að auglýsing á Víking Gylltum hafi verið merkt með orðinu „léttöl“. Viðskipti innlent 18. desember 2023 10:57
Fyrstu brottfarir klukkan ellefu Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra héldu áfram í nótt þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í þriðja skiptið. Verkfallið hefur áhrif á alla umferð um Keflavíkurflugvöll og fjölda flugferða hefur verið frestað. Innlent 18. desember 2023 09:13
Ólöf kveður Kviku og heilsar Íslandsbanka Ólöf Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka. Hún hefur undanfarið verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka. Viðskipti innlent 18. desember 2023 08:20
Líkur á að fólk komist ekki heim fyrir jól að aukast talsvert Forstjóri Icelandair segir að líkurnar á að farþegar komist ekki á sinn áfangastað fyrir jól aukist talsvert milli vikna í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra og sáttasemjara. Slæmt sé að vita til þess að fólk geti ekki einu sinni talað saman. Innlent 17. desember 2023 22:31
Þakklátur fyrir fagmennsku og góðvild Sundkappinn söngelski Már Gunnarsson segist gríðarlega ánægður með þjónustu Play í flugi sínu heim til landsins í dag. Hann og hundurinn hans Max voru kampakátir og segja það hafa verið besta flug þeirra til þessa. Lífið 17. desember 2023 11:15
Flugumferðarstjórar bjóði upp á gula viðvörun Forstjóri Icelandair líkir verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra við óveður sem olli félaginu um eins milljarðs króna tjóni fyrir sléttu ári. Aðgerðirnar valdi félaginu miklu tjóni en bitni fyrst og fremst á fólki sem stefnir á ferðalög í kringum hátíðirnar. Innlent 17. desember 2023 08:50
Gular viðvaranir í boði flugumferðarstjóra Nú eru rúmlega tvö ár liðin frá því að Icelandair tók á flug á ný eftir að hafa verið í híði í 18 mánuði vegna Covid faraldursins. Sem betur fer hefur Icelandair og ferðaþjónustan á Íslandi náð sér vel á strik og á fyrstu níu mánuðum þessa árs námu útflutningstekjur Íslendinga vegna flugs og ferðaþjónustu 35% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Skoðun 16. desember 2023 22:01
Play breytir áætlunarkerfinu vegna verkfallanna Tímabundnar breytingar verða gerðar á tengileiðakerfi flugfélagsins Play meðan á verkfallshrinu flugumferðarstjóra stendur. Breytingarnar eiga við um flugferðir á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Innlent 16. desember 2023 17:53
Mánuður án flugs gæti kostað 40 milljarða Ætla má að algjör stöðvun flugsamgangna í einn dag vegna verkfalls flugumferðarstjóra myndi kosta hagkerfið 1,5 milljarð króna samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins. Þá myndi slík stöðvun í mánuð kosta það fjörutíu milljarða. Samtök atvinnulífsins segja stöðuna átakanlega. Innlent 16. desember 2023 17:36
Ólíklegt að allir komist heim fyrir jól Icelandair segir það ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól að öllu óbreyttu. Er það vegna verkfalls flugumferðastjóra sem hefur valdið umtalsverðri truflun og töfum á flugáætlun flugfélagsins. Innlent 15. desember 2023 18:35
Samruni Marels og JBT skynsamlegur ef skuldir aukast ekki verulega Greinendur bandaríska fjárfestingarbankans William Blair telja að Marel og John Bean Technologies (JBT) séu nú nær því að hefja samrunaviðræður og um möguleika á „verulegum“ samlegðaráhrifum ef samningar nást. Innherji 15. desember 2023 13:47