Viðskipti erlent

Danska ríkið kaupir Kastrup

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Nicolai Wammen fjármálaráðherra Danmerkur segir um heillaspor að ræða.
Nicolai Wammen fjármálaráðherra Danmerkur segir um heillaspor að ræða. EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Danska ríkið hyggst kaupa 59,4 prósenta hlut í Kastrup flugvelli af lífeyrissjóðnum ATP. Ríkið átti áður rúmlega fjörutíu prósenta hlut í flugvellinum og mun því eiga 98 prósenta hlut eftir kaupin.

Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að kaupin muni nema 32 milljörðum danskra króna eða því sem nemur rúmlega 625 milljörðum íslenskra króna. Þar segir ennfremur að horft verði til þess að minnka eignarhlutinn til lengri tíma í 50,1 prósent, ríkið haldi þar með meirihluta sínum.

Flugvöllurinn er skráður á danska hlutabréfamarkaðinn og fer ríkið með rétt rúmlega fjörutíu prósenta hlut, lífeyrissjóðir rest. Fjármálaráðherra Danmerkur Nicolai Wammen segir að kaupin séu til þess fallin að treysta rekstrargrundvöll flugvallarins, sem gegni mikilvægu innviðahlutverki í Danmörku.

Fram kemur í frétt DR að samtök atvinnulífs í Danmörku hafi fagnað kaupunum. Hlutabréf í vellinum hafa hækkað um tæplega helming eftir að kaupin voru tilkynnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×