Stígur til hliðar og hyggst hjálpa Biden að ná aftur kjöri Bandaríski stjórnmálamaðurinn John Kerry segist ætla að stíga til hliðar sem sérstakur loftslagsráðgjafi ríkisstjórnar Bandaríkjanna seinna á árinu til þess að aðstoða Joe Biden Bandaríkjaforseta og frambjóðanda með kosningaherferð sína. Erlent 13. janúar 2024 20:45
Hvíta húsinu ekki tilkynnt um veikindi og aðgerð varnarmálaráðherrans Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Lloyd Austin, gekkst undir aðgerð vegna blöðruhálskirtilskrabbameins þann 22. desember síðastliðinn og var svo aftur lagður inn í kjölfarið vegna þvagfærasýkingar tengdri aðgerðinni. Erlent 10. janúar 2024 06:57
Samkomulag loks í höfn en lokun stofnana enn möguleg Leiðtogar fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings lýstu því yfir í gærkvöldi að samkomulag hefði náðst um fjárlög ársins 2024. Minna en tvær vikur eru í stöðvun reksturs opinberra stofnana, verði fjárlög ekki samþykkt og er ekki ljóst hvort hægt verði að ljúka viðræðunum og samþykkja frumvarp fyrir þann tíma. Erlent 8. janúar 2024 11:27
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29. desember 2023 16:00
Síðasta vopnasendingin í bili samþykkt Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur nú samþykkt hernaðaraðstoð til handa Úkraínu upp á 250 milljónir dollara. Erlent 28. desember 2023 07:41
Hæstiréttur neitar að flýta máli Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað beiðni Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, um flýtimeðferð varðandi það hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti, njóti enn þeirrar friðhelgi frá lögsóknum sem fylgir forsetaembættinu. Um sigur fyrir Trump er að ræða. Erlent 23. desember 2023 14:01
„Feiti Leonard“ sendur til Bandaríkjanna Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa sleppt Alex Saab, fjármálamanni Nicolas Maduro, forseta Venesúela, úr fangelsi. Í skiptum var maður sem gengur undir nafninu „Feiti Leonard“ sendur til Bandaríkjanna en er verktaki sem sakfelldur var í fyrra vegna aðildar hans að einhverju stærsta mútuhneyksli sjóhers Bandaríkjanna. Erlent 21. desember 2023 10:40
Krefjast þess að Thomas komi ekki að máli Trumps Sífellt fleiri þingmenn Demókrataflokksins krefjast þess að hæstaréttardómarinn Clarence Thomas komi ekki að úrskurði Hæstaréttar varðandi mögulega friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Er það vegna þess að eiginkona Thomas tók þátt í tilraunum Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 18. desember 2023 16:50
Fulltrúadeildin samþykkir formlega rannsókn á Biden Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi að hefja formlega rannsókn á embættisfærslum Joe Bidens forseta sem gætu svo leitt til ákæru til embættismissis. Erlent 14. desember 2023 07:23
„Þau björguðu bókstaflega lífi mínu“ Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, mætti ekki á fund eftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í dag. Þess í stað hélt hann blaðamannafund fyrir utan þinghúsið þar sem hann sakaði þingmenn Repúblikanaflokksins um að óheiðarleika. Erlent 13. desember 2023 17:38
Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi gegn vopnahléstillögu Bandaríkin beittu neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn tillögu þar sem krafist er vopnahlés á Gasa. Fimmtán ríki eiga sæti í öryggisráðinu. Erlent 9. desember 2023 08:33
Sagður hafa eytt fúlgum fjár í vændiskonur og lúxuslíf Ákæra hefur verið gefin út á hendur Hunter Biden, syni Joe Biden Bandaríkjaforseta, fyrir skattsvik. Er Biden sakaður um að hafa svikist um að greiða 1,4 milljónir dala í skatt á árunum 2016 til 2019. Erlent 8. desember 2023 06:58
Biden tilbúinn að lúffa fyrir Repúblikönum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir að frekari hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum geti ekki beðið þar til eftir jól. Þingið þurfi að samþykkja nýjar fjárveitingar til aðstoðarinnar og bað hann þingmenn um að leggja deilur sínar til hliðar í bili. Erlent 6. desember 2023 23:50
Vilja auka lögmæti rannsóknarinnar á Biden Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings íhuga að halda formlega atkvæðagreiðslu í næsta mánuði um rannsókn á meintum embættisbrotum Joe Biden, forseta Bandaríkjanna. Með því eru þeir sagðir vilja festa rannsóknir þeirra á forsetanum og fjölskyldu hans í sessi og gefa henni meira lögmæti. Erlent 1. desember 2023 08:01
Vonir bundnar við fund Biden og Xi í San Francisco í dag Bandaríkin og Kína hafa heitið því að vinna saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og segja hlýnun jarðar „eina stærstu áskorun okkar tíma“. Tilkynningin þykir gefa von um þýðu í samskiptum ríkjanna. Erlent 15. nóvember 2023 08:01
Jill Stein gerir aðra atlögu að Hvíta húsinu Jill Stein tilkynnti í kvöld að hún ætlaði aftur að bjóða sig fram til embættis forseta Bandaríkjanna og aftur fyrir Græningja. Hún bauð sig einnig fram árið 2016 og hefur verið sökuð um það að hafa kostað Demókrata Hvíta húsið og tryggt Donald Trump embættið. Erlent 9. nóvember 2023 22:05
Segir engan hafa staðið í vegi rannsóknar á Hunter Biden David Weiss, sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem haft hefur Hunter Biden, son Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, til rannsóknar, segir embættismenn ekki hafa staðið í vegi sér. Hann sagðist hafa fullt yfirráð yfir rannsókninni og enginn hefði reynt að grípa fram fyrir hendurnar á sér. Erlent 7. nóvember 2023 22:08
Trump með forskot á Biden í fimm af sex lykilríkjum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er með forskot á Joe Biden Bandaríkjaforseta í fimm af sex lykilríkjum í aðdraganda forsetakosninganna á næsta ári, ef marka má skoðanakönnun New York Times og Siena College. Erlent 6. nóvember 2023 07:20
Biden segir þörf á hléi Joe Biden Bandaríkjaforseti virðist vera að snúast á sveif með þeim sem hafa kallað eftir vopnahléi á Gasa en hann var staddur á fjáröflunarviðburði í gær þegar rabbíni kallaði að forsetanum og biðlaði til hans um að beita sér fyrir vopnahléi. Erlent 2. nóvember 2023 06:59
Trump klikkar meira og gæti misst eitt sitt besta vopn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, og stuðningsmenn hans gera iðulega grín að háum aldri Joe Biden, núverandi forseta og forsetaframbjóðanda. Trump er þó einungis þremur árum yngri en Biden og gerir sjálfur reglulega mistök. Erlent 31. október 2023 14:30
Vellauðugur þingmaður frá Minnesota býður sig fram gegn Biden Dean Phillips, þingmaður frá Minnesota, hefur ákveðið að bjóða sig fram gegn Joe Biden í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Phillips segir Biden hafa staðið sig frábærlega en það sé tímabært að horfa til framtíðar. Erlent 27. október 2023 09:47
Báðu Ísraela um að bíða með innrás Ráðamenn í Bandaríkjunum báðu Ísraela um að bíða með innrás á Gasaströndina. Það er svo meiri tími fáist til að frelsa gísla Hamas-samtakanna, koma birgðum til íbúa og finna leiðir til að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara. Erlent 23. október 2023 10:30
Stuðningurinn við Ísrael og Úkraínu sé skynsamleg fjárfesting til framtíðar Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði Bandaríkjamenn frá skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gær og biðlaði til þeirra um að hverfa ekki frá hlutverki sínu sem „leiðarljós“ heimsins. Erlent 20. október 2023 06:32
Heimsókn Bidens staðfest og ný von um neyðaraðstoð Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti margra klukkustunda langan fund með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gær sem lauk snemma í morgun. Erlent 17. október 2023 06:31
Sótt að Biden vegna nýrra framkvæmda við landamæramúrinn Þingmenn bæði úr röðum Repúblikana og Demókrata hafa gagnrýnt Joe Biden Bandaríkjaforseta eftir að stjórn hans tilkynnti að grænt ljós hefði verið gefið á framkvæmdir við byggingu nýs kafla af múrnum á landamærunum að Mexíkó. Umræddur kafli er rúmlega þrjátíu kílómetrar að lengd og að finna á strjálbýlu svæði í Texas. Erlent 6. október 2023 06:43
Sundraðir Repúblikanar gefa sér viku Átta Repúblikanar, af 220 í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, veltu Kevin McCarthy, fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, úr sessi í gærkvöldi. Þetta eru margir af sömu þingmönnunum og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins. Erlent 4. október 2023 13:32
Örlög McCarthy ráðast líklega í dag Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagði þingflokki Repúblikanaflokksins í dag að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu gegn honum fari fram seinnipartinn. Greiði allir Demókratar atkvæði með tillögunni geta einungis fimm Repúblikanar velt McCarthy úr sessi. Erlent 3. október 2023 15:30
Samþykktu bráðabirðgafjárlög á síðustu stundu Bandarískir þingmenn samþykktu á síðustu stundu í nótt nýtt fjárlagafrumvarp til bráðabirgða og komu þannig í veg fyrir lokun opinberra stofnanna. Sú lokun átti formlega að hefjast á miðnætti í nótt, að staðartíma, og hefur verið frestað um 45 daga. Fjárlögin nýju gætu kostað forseta fulltrúadeildarinnar embættið. Erlent 1. október 2023 08:05
Lítið nýtt á „hörmulegum“ fundi um Biden Repúblikanar héldu í gær fyrsta nefndarfundinn um rannsókn þeirra á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, varðandi mögulega ákæru fyrir embættisbrot. Fundurinn stóð yfir í rúma sex tíma en ekkert nýtt kom fram sem gaf til kynna að Biden hefði brotið af sér í starfi eða væri sekur um spillingu. Erlent 29. september 2023 11:04
Biden segir Trump og stuðningsmenn hans beina ógn við lýðræðið Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin standa á krossgötum og að MAGA-hreyfing Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sé bein ógn við lýðræði landsins. Erlent 29. september 2023 08:06