Russell á ráspól en heimsmeistarinn ræsir þriðji Breski ökuþórinn George Russell verður á ráspól þegar ræst verður í brasilíska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag eftir að hafa tryggt sér sigur í sprettkeppninni í gærkvöldi. Nýkrýndi heimsmeistarinn Max Verstappen ræsir hins vegar þriðji. Formúla 1 13. nóvember 2022 09:01
Magnaður Magnussen kom Haas á ráspól Kevin Magnussen, ökumaður Haas, í Formúlu 1 kom öllum á óvart í dag er hann náði besta tímanum í tímatöku fyrir kappakstur morgundagsins sem fer fram í Sao Paulo í Brasilíu. Formúla 1 12. nóvember 2022 13:45
Verstappen setti met í Mexíkó Max Verstappen setti í kvöld met í Formúlu 1 þegar hann vann sinn fjórtánda sigur á tímabilinu. Aldrei hefur ökumaður unnið jafn margar keppnir á einu og sama tímabilinu. Formúla 1 30. október 2022 22:15
Umframeyðslan kostar Red Bull einn milljarð Red Bull liðið í Formúlu 1 hefur verið sektað um sjö milljónir Bandaríkjadala, rétt rúman einn milljarð króna, fyrir að eyða umfram leyfilegt fjármagn á seinasta tímabili. Þá þarf liðið einnig að taka á sig niðurskurð í rannsóknum á loftmótstöðu bílsins um tíu prósent fyrir brotin. Formúla 1 28. október 2022 21:00
Lewis Hamilton vill semja á ný og vera áfram í „fjölskyldunni sinni“ Lewis Hamilton hefur átt erfitt tímabil í formúlu eitt en hann er ekkert á því að hætta og svo gott sem staðfesti nýjan samning við Mercedes liðið. Formúla 1 28. október 2022 10:30
Heimsmeistarinn bestur í Bandaríkjunum Heimsmeistarinn Max Verstappen kom fyrstur í mark í Formúla 1 kappakstrinum í Austin, Texas í Bandaríkjunum í kvöld. Formúla 1 23. október 2022 22:30
Leclerc tekur út refsingu og heimsmeistarinn ræsir annar Ferrari ökumaðurinn Charles Leclerc þarf að taka út refsingu þegar ljósin slokkna í kappakstrinum í Texas í kvöld og nýkrýndi heimsmeistarinn Max Verstappen mun því ræsa í fremstu rásröð ásamt Carlos Sainz á Ferrari. Formúla 1 23. október 2022 10:30
Verstappen ræsir þriðji eftir að hafa tryggt sér titilinn Max Verstappen, nýkrýndur heimsmeistari í Formúlu 1, ræsir þriðji í Texas í kvöld í sinni fyrstu keppni eftir að hafa tryggt sér sinn annan heimsmeistaratitil í íþróttinni á ferlinum. Formúla 1 23. október 2022 08:00
Verstappen heimsmeistari eftir sigur í Japan Max Verstappen, ökuþór Red Bull, tyggði sér núna í morgun sinn annan heimsmeistaratitill í röð eftir að hafa unnið japanska kappaksturinn. Formúla 1 9. október 2022 10:00
Perez kom fyrstur í mark og Verstappen þarf að bíða eftir titlinum Sergio Perez, liðsmaður Red Bull, kom fyrstur í mark þegar kappaksturinn í Singapúr í Formúlu 1 fór fram í dag. Liðsfélagi hans, heimsmeistarinn Max Verstappen, hefði getað tryggt sér sinn annan heimsmeistaratitil í röð með sigri í dag, en hann endaði sjöundi og þarf því að bíða með fagnaðarlætin. Formúla 1 2. október 2022 16:48
Eldsneytisleysið í gær gæti seinkað heimsmeistaratitlinum í dag Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, gæti þurft að bíða örlítið lengur eftir sínum öðrum heimsmeistaratitli í íþróttinni eftir að Red Bull bíll hans var orðinn lár á eldsneyti undir lok tímatökunnar í Singapúr í gær. Formúla 1 2. október 2022 10:30
Ef allt gengur upp verður Verstappen heimsmeistari í annað sinn um helgina Max Verstappen, heimsmeistari í Formúlu 1, getur tryggt sér sinn annan heimsmeistaratitil í röð er kappaksturinn í Singapúr fer fram um helgina þrátt fyrir að enn verði fimm keppnir eftir á tímabilinu. Formúla 1 1. október 2022 08:00
Formúla 1 fær loksins grænt ljós á fjölgun sprettkeppna Formúla 1 mun tvöfalda fjölda sprettkeppna úr þremur í sex frá og með næsta tímabili eftir að Alþjóða akstursíþróttasambandið, FIA, gaf loks grænt ljós á fjölgunina. Formúla 1 27. september 2022 19:46
Formúla 1 fjölgar keppnum og þær hafa aldrei verið fleiri en verða á næsta ári Forráðamenn Formúlu 1 staðfestu í dag að á næsta ári verði 24 keppnir á tímabilinu og að aldrei hafi fleiri keppnum verið komið fyrir á einu tímabili í íþróttinni. Formúla 1 20. september 2022 22:01
Verstappen langbestur á Monza og stefnir hraðbyri á heimsmeistaratitil Max Verstappen vann sig upp úr sjöunda sæti og sigraði Ítalíukappaksturinn í Formúlu 1 í dag. Formúla 1 11. september 2022 21:31
Hamilton biðst afsökunar á bræði sinni Lewis Hamilton hefur beðið liðsfélaga sína hjá Mercedes í Formúlu 1 afsökunar á því að hafa misst stjórn á skapi sínu á meðan hollenska kappakstrinum stóð um helgina. Hamilton missti forystuna vegna ákvarðanatöku liðsins og endaði fjórði. Formúla 1 5. september 2022 16:00
Öruggur sigur heimsmeistarans á heimavelli Max Verstappen varð ekki á nein mistök í hollenska kappakstrinum í Formúla 1 í dag. Formúla 1 4. september 2022 18:36
Verstappen á ráspól í Hollandi Heimsmeistarinn Max Verstappen verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstri morgundagsins sem fram fer í heimalandi hans, Hollandi. Hann skaust fram fyrir Charles Leclerc í blálokin. Formúla 1 3. september 2022 14:45
Kynntur sem nýr ökumaður Alpine en mun aka fyrir McLaren Ástralski ökumaðurinn Oscar Piastri mun aka fyrir McLaren á næsta tímabili í Formúlu 1, þrátt fyrir að hafa verið kynntur sem nýr ökumaður Alpine-liðsins fyrr í sumar. Hann kemur í stað Daniel Ricciardo sem yfirgefu McLaren-liðið eftir tímabilið. Formúla 1 2. september 2022 23:00
Alonso: Hamilton er hálfviti Ökuþórinn Lewis Hamilton hjá Mercedes segist vera þakklátur fyrir að vera enn þá á lífi eftir árekstur við Fernando Alonso á fyrsta hring í belgíska kappakstrinum í gær. Formúla 1 29. ágúst 2022 23:01
Segir Ricciardo óþekkjanlegan Christian Horner, liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1, segir fyrrum ökumann liðsins, Daniel Ricciardo, nær óþekkjanlegan á brautinni. McLaren og Ricciardo komust að samkomulagi nýverið um að rifta samningi hans eftir tímabilið. Óvíst er hvort Ricciardo verði áfram í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili Formúla 1 29. ágúst 2022 16:01
Verstappen ræsti fjórtándi en kom langfyrstur í mark Heimsmeistarinn Max Verstappen var í algjörum sérflokki þegar belgíski kappaksturinn í Formúlu 1 fór fram í dag. Hollendingurinn var fjórtándi í rásröðinni en tryggði sér þrátt fyrir það afgerandi sigur. Formúla 1 28. ágúst 2022 14:33
Verstappen og Leclerc ræsa aftastir í Belgíu Max Verstappen og Charles Leclerc, efstu menn í baráttunni um heimsmeistaratitil ökumanna í Formúlu 1, munu ræsa aftastir í belgiska kappakstrinum sem fram fer á morgun. Formúla 1 27. ágúst 2022 13:00
Baunar á forsetann vegna ummæla um konur í Formúlu 1 Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel harmar ummæli forseta Formúlu 1, Stefano Domenicali, um að konur væru langt frá því að komast inn í keppnina og segir hann hafa sent út kolröng skilaboð. Formúla 1 26. ágúst 2022 16:30
Audi mætir til leiks sem vélaframleiðandi 2026 | Gætu tekið við af Sauber Í dag var tilkynnt að bílaframleiðandinn Audi muni taka þátt í Formúlu 1 árið 2026. Upphafilega kom fram í fréttinni að Audi myndi keppa í F1 en sem stendur er bílaframleiðandinn aðeins að skrá sig til leiks sem vélaframleiðandi. Það gæti þó breyst með tíð og tíma. Formúla 1 26. ágúst 2022 10:31
Segir „loftstein“ þurfa til að konur keppi í Formúlu 1 á næstu árum Engin kona hefur keppt í Formúlu 1 kappakstrinum frá því um miðjan áttunda áratuginn. Forseti Formúlu 1, Stefano Domenicali, reiknar ekki með að það breytist á næstu fimm árum. Formúla 1 25. ágúst 2022 08:01
Lewis Hamilton svekktur yfir því að hafa þurft að hafna hlutverki í Top Gun Formúlukappinn Lewis Hamilton átti möguleika á því að leika í nýju Top Gun kvikmyndinni hans Tom Cruise og var búinn að segja já. Formúla 1 10. ágúst 2022 12:31
Alpine kynnti eftirmann Alonso án þess að fá samþykki hans: „Þetta er rangt“ Fyrr í dag sendi Alpine-liðið í Formúlu 1 frá sér tilkynningu þar sem Oscar Piastri, varamaður liðsins, myndi taka sæti tvöfalda heimsmeistarans Fernando Alonso. Piastri segir það þó rangt og að hann muni ekki aka fyrir liðið á næsta tímabili. Formúla 1 2. ágúst 2022 19:27
Fékk líflátshótanir eftir klúðrið í Abu Dhabi: „Rasísk, ofbeldisfull og viðbjóðsleg skilaboð“ Ástralinn Michael Masi, fyrrum keppnisstjóri í Formúlu 1, gerði afdrifarík mistök í lokakeppni síðasta keppnistímabils. Hann segir sig og fjölskyldu sína hafa fengið líflátshótanir eftir atvikið. Formúla 1 1. ágúst 2022 15:45
Fyrrum heimsmeistarinn tekur sæti Vettels Fyrrum heimsmeistarinn Fernando Alonso á nóg eftir í Formúlu 1 þrátt fyrir að vera 41 árs gamall. Hann hefur gert langtímasamning við Aston Martin um að keyra fyrir framleiðandann frá og með næsta tímabili í Formúlu 1. Formúla 1 1. ágúst 2022 11:01