Kaupendur rafbíla muni geta sótt um styrk úr Orkusjóði Frá og með næstu áramótum munu einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrk vegna kaupa á rafbílum og öðrum orkuhlutlausum bifreiðum en styrkurinn á að koma í stað skattaívilnana sem eru að falla úr gildi. Innlent 24. október 2023 06:37
Talinn hafa stefnt fólki í lífshættu með því að aka vísvitandi á annan bíl Framhald aðalmeðferðar fer fram í Héraðsdómi Suðurlands í dag í máli manns sem er grunaður um að keyra bíl sínum vísvitandi á annan bíl og lagt líf fólks sem var í þeim bíl í hættu. Innlent 23. október 2023 14:11
Páll í Toyota er látinn Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi forstjóri Toyota, er látinn. Páll, sem ávallt var kenndur við Toyota var 94 ára að aldri þegar hann skildi við en síðustu árin dvaldi hann að hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka þar sem hann andaðist. Viðskipti innlent 23. október 2023 10:25
Styrktu gott málefni á bleikum Ford Mustang Mach-E Brimborg og Ford á Íslandi ætla heldur betur að lýsa upp skammdegið, mála borgina bleika og styrkja gott málefni í október með fagurbleikum Ford Mustang Mach-E rafbíl. Lífið samstarf 19. október 2023 14:21
Kvíðadrifin vetrarferð á 100% rafmagni Er hægt að skipta yfir í rafbíl eftir að hafa sett allt sitt traust á tröllvaxinn díselhlunk? Díselhlunkurinn er enginn draumur í innanbæjarsnatti en á langferðum frá Reykjavík norður yfir heiðar reynist hann vel. Rafbílar eru samt sem áður framtíðin og nú skildi reyna á einn slíkan norður í land í vetrarfæri. Samstarf 18. október 2023 14:16
„Mest þakklátur fyrir að dóttir mín hafi sloppið“ Oddur Þórir Þórarinsson lenti í bílslysi á Hellisheiðinni síðastliðinn mánudag. Með honum í bílnum var dóttir hans, sem er á öðru ári. Þau hafa fundið fyrir minni háttar áverkum og segist Oddur þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr. Hann veltir þó fyrir sér hvort stjórnvöld geti ekki gripið til aðgerða sem myndu fækka slysum sem þessum. Innlent 13. október 2023 18:46
Jaguar kynnir fyrsta tengiltvinnbílinn F-Pace PHEV Jaguar við Hestháls kynnir nk. laugardag, 14. október milli kl. 12 og 16, aldrifna jepplinginn F-Pace SE R-DYN í tengiltvinnútfærslu (PHEV) sem margir aðdáendur F-Pace hér á landi hafa beðið eftir með óþreyju. Samstarf 13. október 2023 15:00
„Þetta er nú meiri lúxus kerran“ Volvo hefur verið leiðandi í öryggismálum áratugum saman og er sú ímynd að hjá Volvo fari öryggi, þægindi og flottheit fullkomlega saman, rótgróin í hugum okkar flestra. Volvo ætlar sér einnig að vera í forystu þegar kemur að rafvæðingu, sjálfvirkri aksturstækni og sjálfbærni og stefnir á að framleiða eingöngu rafbíla árið 2030. Samstarf 12. október 2023 11:01
InstaVolt, brautryðjandi í hraðhleðslustöðvum, hefur opnað aðra hraðhleðslustöð sína á Íslandi Garðyrkjustöðin Friðheimar hefur nú gangsett fjögur sérlega hraðvirk 160 kW hleðslutæki við þennan geysi vinsæla ferðamannastað sem er algengur viðkomustaður þegar Gullni hringurinn er farinn. Samstarf 11. október 2023 12:21
„Það eina sem hélt mér fastri var bílbeltið“ „Ég horfi öðrum augum á lífið eftir þetta allt. Það er ótrúlegt að það þurfi ekki nema bara eitt augnablik og þá breytist lífið alveg. Allt í einu var mér bara kippt úr úr lífinu eins og ég þekkti það,“ segir hin tvítuga Þórhildur Björg Þorsteinsdóttir en hún lenti í alvarlegri bílveltu á Krýsuvíkurvegi fyrir tæpu ári og hefur síðan þá gengið í gegnum erfitt bataferli. Innlent 9. október 2023 06:00
Allir fótboltastrákar á skólastyrk fengu pallbíl frá skólanum Skólaliðin í ameríska fótboltanum eru risastór auglýsing fyrir skólana enda háskólafótboltinn gríðarlega vinsæll í Bandaríkjunum. Leikmenn hafa í gegnum tíðina ekki fengið neitt þótt skólarnir hafi grætt mikið á liðum sínum. Nú er að verða breyting á því. Sport 6. október 2023 22:31
Endurhannaður og langdrægari Hyundai Kona frumsýndur Hyundai á Íslandi frumsýnir á laugardag, 7. október milli kl. 12 og 16, nýjan og endurhannaðan Hyundai KONA í þremur útgáfum; hreinan og langdrægari rafbíl, tvinnbíl og fjórhjóladrifinn bensínbíl og verða allar útgáfur til taks fyrir áhugasama sem koma, kynna sér og reynsluaka rétta bílnum fyrir sínar þarfir. Samstarf 6. október 2023 11:54
Fagnar gjaldinu en hefur áhyggjur af hnignandi rafbílaeftirspurn Framkvæmdastjóri FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segist fagna áformum fjármálaráðherra um kílómetragjald rafmagns- og vetnisbíla en að þau hefðu mátt vera betur útfærð. Þá segist hann hafa áhyggjur af því að gjaldið gæti komið niður á áhuga landsmanna á rafmagnsbílum. Innlent 4. október 2023 18:37
Sex krónu kílómetragjaldi komið á um næstu áramót Áform fjármálaráðherra um frumvarp um kílómetragjald á bílanotkun gerir ráð fyrir að sex krónu kílómetragjaldi verði komið á rafmagns- og vetnisbíla á næsta ári. Þannig sé áætlað að eigandi rafmagnsbíls sem ekur sömu vegalengd muni greiða sama gjald fyrir afnot af vegakerfinu og sá sem ekur bensínbíl. Tengiltvinnbílar munu hins vegar greiða tveggja krónu kílómetragjald á næsta ári. Kílómetragjald á bensín- og díselbíla verður komið á í ársbyrjun 2025. Neytendur 4. október 2023 11:38
Kraftur og mýkt á sama tíma Ford Mustang Mach-E er hreinn rafbíll sem smellpassar inn í íslenskar aðstæður. Hann er fjórhjóladrifinn og þykir eintaklega góður í snjó og hálku, hefur mikla drægni og er búinn eldsnöggri hraðhleðslu. Samstarf 4. október 2023 08:54
Pjúra lúxus í öllum atriðum Sænski bílaframleiðandinn Polestar ætlar sér stóra hluti í rafbílavæðingu heimsbyggðarinnar og vill flýta fyrir breytingum til sjálfbærra ferðamáta með hágæða hönnun og tækni. Fyrirtækið stefnir á að vera með fimm tegundir rafbíla í vörulínu sinni árið 2026. Samstarf 2. október 2023 14:49
Ný sería af Tork gaurnum hefst í dag: „Gaman að þykjast vera bankastjóri“ Ný sería af Tork gaurnum hefst á Vísi í dag en um er að ræða þriðju seríuna af þessum skemmtilegu bílaþáttum. Bílar 27. september 2023 07:01
Orkulaus orkuskipti? Nú eru rétt um 100 dagar til áramóta. Fjármálaráðherra hefur sagt að þá verði lagður virðisaukaskattur á rafbíla af fullum þunga en í dag eru fyrstu 5.500.000 krónurnar af kaupverði rafbíla án virðisaukskatts. Rafbílar bera að auki 5% vörugjöld frá síðustu áramótum. Skoðun 21. september 2023 09:00
Hleðslukvíðinn heyrir sögunni til með nýrri kynslóð Splunkunýr rafknúinn sportjeppi Peugeot E-3008 kemur til landsins í febrúar 2024. Bíllinn þykir marka tímamót í hönnun rafbíla hjá Peugeot og muni mæta þörfum íslenska rafbílamarkaðarins. Forsala hefst í október hjá Brimborg. Samstarf 20. september 2023 16:10
Vildi ekki borga 25 þúsund og situr uppi með 405 þúsund króna reikning Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða bílaumboðinu BL um 55 þúsund krónur auk dráttarvaxta og málskostnað upp á 350 þúsund krónur. Maðurinn neitaði að borga 25 þúsund króna reikning vegna greiningar á bilun. Innlent 19. september 2023 10:24
Markmiðið að gefa notuðum rafbílarafhlöðum framhaldslíf „Við höfum verið svo lánsöm að vinna með sterkum samstarfsaðilum og erum núna að safna að okkur stórskotaliði til þess að efla slagkraftinn,“ segir Linda Fanney Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri Alor og vísar þar í ný og spennandi verkefni sem fyrirtækið vinnur nú að. Atvinnulíf 18. september 2023 07:00
Fyrsti breytti rafmagnsjeppi landsins til sýnis um helgina Um hundrað og þrjátíu jeppar af öllum stærðum og gerðum eru til sýnis um helgina í Fífunni í Kópavogi í tilefni af 40 ára afmæli ferðaklúbbsins 4x4. Fyrsti breytti rafmagnsjeppi landsins er meðal annars á sýningunni og nokkrir gamlir Willis jeppar svo ekki sé minnst á nýbreyttan sex hjóla Ford trukk, sem er að fara á Suðurpólinn Innlent 16. september 2023 12:32
Verkföll hafin hjá bílarisunum í Bandaríkjunum Verkalýðsfélag starfsmanna í bílaiðnaði í Bandaríkjunum hefur nú hafið verkfallsaðgerðir eftir að samningaviðræður við stóru bílarisana þrjá í Banndaríkjunum fóru endanlega út um þúfur. Viðskipti erlent 15. september 2023 07:18
Gert ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum Gert er ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum í nýju fjárlagafrumvarpi. Innleitt verður nýtt tekjuöflunarkerfi í tveimur áföngum. Fjármálaráðherra segir ríkið hafa gefið of mikið eftir af heildartekjum vegna rafbíla. Áfram verði hagkvæmara að eiga rafbíl. Neytendur 12. september 2023 10:06
Stórsýning í Kauptúni Mikið verður um að vera hjá Toyota Kauptúni á laugardag, 9. september þegar blásið verður til sannkallaðrar stórsýningar frá kl. 12 – 16. Samstarf 7. september 2023 08:30
Fjölskyldubíllinn Renault Scenic kemur rafvæddur og endurhannaður frá grunni Franski bílaframleiðandinn Renault hefur endurhannað einn vinsælasta fjölskyldubílinn á framleiðslulínunni, hinn rúmgóða Scenic, sem Íslendingum er að góðu kunnur frá því fyrir síðustu aldamót þegar fyrsta kynslóð hans kom fyrst á markað, nánar tiltekið árið 1996. Samstarf 6. september 2023 08:51
Rannsaka enn hvort þrjótar hafi komist yfir gögn Brimborgar Starfsemi bílaumboðsins Brimborgar og tengdra fyrirtækja komst aftur í gang í dag eftir að netárás stöðvaði hana í hátt í tvo sólarhringa. Forstjóri fyrirtækisins segir að tekist hafi að endurheimta öll gögn en sérfræðingar kanni enn hvort að þrjótarnir hafi komist yfir persónuupplýsingar viðskiptavina. Innlent 31. ágúst 2023 12:28
Rándýri Porsche-inn sem lyktaði dregur dilk á eftir sér Bílabúð Benna þarf að greiða Ólöfu Finnsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dómstólasýslunnar, tæplega 700 þúsund krónur vegna gjalda sem Ólöf þurfti að standa skil á þrátt fyrir að kaupum hennar á Porsche hjá bílabúðinni hefði verði rift. Þá þarf Bílabúð Benna að greiða 700 þúsund krónur í málskostnað. Innlent 24. ágúst 2023 16:53
Tesla Cybertruck á Íslandi Það sást til Cybertruck, óútkomins pallbíls frá Tesla, á Langjökli í gær. Á myndbandi frá jöklinum virðist sem verið sé að taka upp auglýsingu fyrir bílinn sem á að koma út á seinni hluta ársins. Bílar 20. ágúst 2023 23:08
Nýjung í rekstri bílastæða Green Parking er félag í eigu Öryggismiðstöðvarinnar sem sérhæfir sig í nútímalegum bílastæðalausnum á rekstri bílastæða, bílakjöllurum og bílastæðahúsum. Samstarf 18. ágúst 2023 08:31