Innlent

Standa vaktina á jóla­dag: „Þetta er bara eins og hina dagana“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Unnar Már Sigurbjörnsson stóð vaktina við lokunarpóst Reykjavíkurmegin Hellisheiðar í dag.
Unnar Már Sigurbjörnsson stóð vaktina við lokunarpóst Reykjavíkurmegin Hellisheiðar í dag. Vísir/Rúnar

Björgunarsveitarfólk hefur staðið vaktina við Hellisheiðina frá því í gær, til að tryggja að ökumenn fari ekki inn á hana. Útlit er fyrir að hún verði lokuð til morguns.

Björgunarsveitir voru kallaðar til aðstoðar fólki á Hellisheiði í gærkvöldi, á aðfangadagskvöld. Heiðin var lokuð en einhverjir höfðu reynt við hana, mögulega vegna misvísandi upplýsinga á skiltum. Nú hefur lokunarpóstum verið komið fyrir beggja vegna heiðarinnar. En hvernig er fyrir björgunarsveitarfólkið að standa vaktina á jóladag?

„Þetta er bara eins og hina dagana. Við þurfum að vera hér og leiðbeina fólki og segja þeim hvernig staðan er, hvaða möguleikar eru í stöðunni hverju sinni,“ Unnar Már Sigurbjörnsson, meðlimur í hjálparsveit skáta í Reykjavík.

Beina umferð annað

Ólíklegt er að Hellisheiði og Þrengslin verði opnuð í dag, en umferð hefur meðal annars verið beint um Suðurstrandarveg.

„Það er alltaf í boði að fara hann ef hann er opinn. Þannig að við bara beinum fólki þangað sem það getur farið.“

Unnar segir nokkra umferð hafa verið í hádeginu.

„Og það ruddust svolítið margir bílar yfir heiðina. Hvers vegna veit ég ekki, það gæti hafa verið út af kortaforritum. Ég þekki ekki nánari deili á því en mín vakt hér hefur gengið mjög vel.“

Að æða upp á lokaða heiði er hættuspil

Ekki hafi þurft að liðsinna fólki uppi á heiðinni síðan í gærkvöldi að sögn Unnars. Þrátt fyrir það varar hann við því að fólk reyni hana.

„Að fara inn á lokaða heiði er hættuspil, alveg sama hvernig veðrið er hér. Veðrið hér getur verið ágætt, en snælduvitlaust uppi á heiði. Þessi litli vegarspotti hér á milli hefur mjög margt upp á að bjóða í vondu veðri.“

Og svo standa kollegar ykkar vaktina hinu megin heiðar? 

„Jú,jú. Manni í Þorlákshöfn og björgunarsveitin í Hveragerði standa hinu megin og passa upp á póstana sína þar.“

Flugferðum aflýst og nóg af útköllum

Veðrið hefur haft áhrif víðar, en Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði hafa til að mynda verið lokaðar í dag. Björgunarsveitir víða á vestanverðu landinu hafa verið kallaðar út, í Borgarfirði, í Reykhólasveit og á Akranesi, þar sem bátur var við það að slitna frá bryggju.

Að sama skapi var fjölda flugferða til og frá Keflavíkurflugvelli aflýst, en appelsínugul viðvörun er í gildi á Suðurlandi til miðnættis, með éljagangi og vindhraða upp í 30 metra á sekúndu. Aðstæður þar hafa þó skánað og farið að undirbúa flugferðir að nýju.

Fylgjast má með nýjustu veðurspám á vef Veðurstofunnar, og upplýsingar um færð á vegum má fá á Umferðin.is.


Tengdar fréttir

Þak fauk nánast af hlöðu

Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út fyrr í dag vegna hættu á að þak á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli myndi fjúka. Vel tókst til að tryggja að þakið lyftist ekki af, en 10 manns komu að verkinu sem var lokið um hálf þrjú í dag.

Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir

Jólahretið er hressilegt þennan jóladagsmorgun. Búast má við suðvestanátt í dag með hvassviðri eða stormi víða með dimmum éljum, einkum um landið sunnan- og vestanvert. 15-25 m/s og frosti frá 0 og upp í 5 stig.

Á vaktinni við lokunar­pósta alla jólanótt

Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast á aðfangadagskvöld og jólanótt, en slæm færð og vonskuveður hefur víða einkennt upphaf jólahátíðarinnar. Lokunarpóstar eru við Hellisheiði, og veðurviðvaranir í gildi inn í morgundaginn. 

Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík

Ein flugvél er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli og aðrar eru að gera sig klárar, flugferðir frá vellinum hafa legið niðri síðan í morgun vegna veðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×