Körfubolti

„Góður sigur og mikil­vægt að koma til baka eftir erfitt tap“

Siggeir Ævarsson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson var ánægður með að vera mættur aftur í Smárann eftir fjóra útileiki í röð.
Jóhann Þór Ólafsson var ánægður með að vera mættur aftur í Smárann eftir fjóra útileiki í röð. Vísir/Hulda Margrét

Grindvíkingar komu sér aftur á beinu brautina í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið lagði Íslandsmeistara Vals 97-90. Liðin mættust einnig í bikarnum á sunnudag og Grindvíkingar höfðu harma að hefna í kvöld.

Eftir frábæran þriðja leikhluta sem Grindvíkingar unnu með 16 stigum komu gestirnir sterkir til baka og voru hársbreidd frá því að stela sigrinum á lokasprettinum. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með lokaniðurstöðuna.

„Við vorum mjög góðir fyrstu 10-12 mínúturnar í seinni. Valsararnir bara með hörku lið og við með svolítið stutta róteringu. Vorum að reyna að finna mínútur til að hvíla og þá raskaðist aðeins tempóið, sérstaklega varnarlega. En góður sigur og bara mikilvægt að koma til baka eftir erfitt tap á sunnudaginn.“

Jóhann viðurkenndi að sigurinn væri extra sætur í ljósi þess hvernig fór í bikarnum en hann var sömuleiðis mjög sáttur með að hans menn skyldu sýna sitt rétta andlit í kvöld eftir dyntótt gengi undanfarið.

„Algjörlega, og líka þetta er búið að vera svolítið erfitt núna síðustu leiki. Vorum góðir í Keflavík en síðustu tveir vorum við ólíkir sjálfum okkur. Bara mjög sáttur að koma hér, loksins aftur í Smárann, og taka góðan sigur.“

Grindvíkingar voru ískaldir á vítalínunni framan af leik og voru lengi vel undir 50 prósent nýtingu, þó svo að taugarnir hafi haldið í lokin þegar á reyndi. Jóhann var þó ekki á því að það yrði sérstök vítaæfing á næstu æfingu.

„Nei nei, þetta er bara partur af þessu. Inn og út og allt það. Það er bara mikilvægt að menn haldi sér í augnablikinu og einbeiti sér að næsta „play-i“ og vera ekkert að staldra við það sem er búið.“

Grindvíkingar tefldu fram nýjum leikmanni í kvöld, Jordan Aboudou, sem er rétt nýkominn til landsins frá Kína. Hann spilaði tæpar 17 mínútur í kvöld en virðist þó ekki vera í góðu leikformi.

„Fyrir mér er þetta bara góður leikmaður, hann kann körfubolta. Eins og þú segir, það vantar aðeins upp á form hjá honum, en hann er náttúrulega bara búinn að vera hérna í einn og hálfan sólarhring. Ég ætla að segja pass bara.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×