Innlent

Rútuslys á Suður­lands­vegi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á vettvang.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á vettvang. Vísir/Vilhelm

Lögreglu var fyrir stuttu tilkynnt um umferðarslys á Suðurlandsvegi fyrir austan Hala á Suðursveit. Ekki er vitað hversu margir eru slasaðir eða hversu alvarlegt slysið var en samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er um að ræða rútuslys.

 Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni og áhöfn annarrar þyrlu í viðbragðsstöðu. Slysið átti sér stað einhver staðar á milli Hafnar í Hornafirði og Fagurhólsmýrar.

Á vef Vegagerðarinnar segir að flughált sé austan við Höfn og krapi, hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Suðausturlandi. 

Fréttin verður uppfærð þegar frekari fregnir berast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×