Innlent

Sig­ríður Júlía verður bæjar­stjóri Ísafjarðarbæjar

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir tekur senn við starfi bæjarstjóra á Ísafirði.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir tekur senn við starfi bæjarstjóra á Ísafirði. Ísafjarðarbær

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verður næsti bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hún tekur við af Örnu Láru Jónsdóttur sem verið hefur bæjarstjóri frá árinu 2022 en náði á laugardaginn kjöri á Alþingi.

Í tilkynningu þess efnis á vef Ísafjarðarbæjar segir að Sigríður Júlía hafi setið í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar þetta kjörtímabil og verið bæði forseti bæjarstjórnar og formaður skipulags- og mannvirkjanefndar. Hún hafi síðustu misseri verið skólastjóri Lýðskólans á Flateyri en áður hafi hún starfað um árabil sem sviðsstjóri hjá Skógræktinni.

Skógfræðingur frá Suðureyri

Sigríður Júlía sé með meistaragráðu í skógfræði frá lífvísindaháskólann að Ási í Noregi og B.S.-gráðu í landnýtingu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Sigríður Júlía búi á Suðureyri og sé gift Steinþóri Bjarna Kristjánssyni. Hún eigi tvo syni og fjögur stjúpbörn.

Ráðning Sigríðar Júlíu verði tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi næstkomandi fimmtudag og hún muni hefja störf 7. janúar 2025.

Gott að Sigríður geti stokkið til

„Vestfjörðum og Ísafjarðabæ hefur gengið vel síðustu árin. Við höfum náð tökum á fjármálum bæjarins og sjáum fram á áframhaldandi uppbyggingu. Það kom okkur ekki á óvart að kjósendur vildu Örnu á þing og úr því að svo fór er gott að hafa Siggu sem getur stokkið til með skömmum fyrirvara og klárað kjörtímabil Í-listans. Hún er vel inni í öllum málum og frábær samstarfsfélagi,“ er haft eftir Gylfa Ólafssyni, oddvita Í-listans og formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×