Fótbolti

Kane kominn í jóla­frí?

Sindri Sverrisson skrifar
Harry Kane heldur um lærið eftir að hafa meiðst á laugardaginn.
Harry Kane heldur um lærið eftir að hafa meiðst á laugardaginn. Getty/Lars Baron

Bayern München verður án markahróksins Harry Kane annað kvöld í stórleiknum gegn meisturum Leverkusen í þýsku bikarkeppninni, og mögulega spilar Kane ekki meira á þessu ári.

Enski landsliðsfyrirliðinn fór meiddur af velli í jafnteflinu við Dortmund um helgina og Vincent Kompany, stjóri Bayern, segir ljóst að liðið verði án Kane í næstu leikjum.

„Það er mögulegt að hann snúi aftur á þessu ári en hann mun missa af nokkrum leikjum,“ sagði Kompany.

Vetrarfrí tekur við í Þýskalandi 22. desember en fram að því á Bayern eftir leikinn við Leverkusen í 16-liða úrslitum bikarsins, deildarleiki við Heidenheim, Mainz og Leipzig, og leik við Shaktar Donetsk í Meistaradeild Evrópu.

Leiktíðin heldur svo áfram hjá Bayern eftir jól, þegar liðið mætir Borussia Mönchengladbach 11. janúar.

Með menn til að leysa málið

Kane hefur skorað tuttugu mörk í nítján leikjum í öllum keppnum á þessari leiktíð, en núna verða mörkin að koma úr öðrum áttum.

„Það er ekki hægt að skipta inn manni og fá sama fjölda af mörkum frá honum – þess vegna er hann toppleikmaður,“ sagði Kompany.

„En við erum með hæfileika í þessu liði og leysum þetta með öðrum hætti. Við höfum valkosti. Thomas Muller, Mathys Tel, Serge Gnabry, Michael Olise, Leroy Sane. Ég hef nefnt nánast alla. Augljóslega hefur Harry skorað tuttugu mörk en við eigum fleiri sem geta skorað mörk, þar á meðal Jamal Musiala. Við höfum menn til að leysa þetta hlutverk, þó að það sé ekki hægt að fá sama markafjölda frá einum manni,“ sagði Kompany.

Bayern freistar þess sem fyrr segir að slá ríkjandi meistara Leverkusen út úr bikarnum á morgun, eftir að hafa mistekist að komast í undanúrslit keppninnar síðan liðið vann hana árið 2020.

„Við mætum ríkjandi meisturum – einu af 2-3 bestu liðum Þýskalands – og ég vona að frammistaða okkar verði í takti við mikilvægi leiksins,“ sagði Kompany.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×