Lífið

Opna „hommalegustu blóma­búðina í bænum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Bjarmi Fannar og Bjarni Snæbjörnsson voru að festa kaup á blómabúð.
Bjarmi Fannar og Bjarni Snæbjörnsson voru að festa kaup á blómabúð. Instagram @bjarmii

„Ég hefði séð eftir því hefði ég sagt nei. Hæ Blóm verður hommalegasta blómabúðin í bænum,“ segir Bjarmi Fannar vöruhönnuður. Hann og eiginmaður hans Bjarni Snæbjörnsson, leikari og leikstjóri, tóku Svartan föstudag í nýjar hæðir og keyptu heila blómabúð.

Hjónin giftu sig 21. júní síðastliðinn

Á Instagram færslu skrifar Bjarmi Fannar: 

„Svartur föstudagur. Allir að kaupa sér eitthvað fallegt. Við keyptum okkur blómabúð.“

Blómabúðin ber heitið Hæ Blóm, er staðsett í Efstalandi 26 og opnar í janúar. 

Blaðamaður ræddi við Bjarma sem segir að hugmyndin hafi kviknað snemma í janúar þegar hann var staddur í hugleiðslutíma á Balí. 

„Nafnið kom til mín eins og hugljómun og frá þeirri stundu fór eitthvað út í alheiminn,“ segir Bjarmi. 

Hæ Blóm opnar í janúar.Instagram

Blóm hafa alla tíð átt mjög sérstakan stað í hjarta hans og fór hann alla leið með ástríðuna. 

„Þegar ég lærði blómskreytirinn í miðjum heimsfaraldri sá ég möguleikann á að sameina ástríðu mína fyrir vöruhönnun og blómahönnun.

Þetta ævintýri hófst þó fyrir tilstilli góðs vinar okkar Bjarna. Hann hafði samband og eiginlega sagði mér að kaupa blómabúð vinkonu sinnar, núverandi eiganda Blómasmiðjunnar í Grímsbæ, sem var að leita að nýjum eiganda. 

Ég leyfði hugmyndinni að marenerast í nokkra daga og sá fyrir mér allt sem Hæ Blóm gæti orðið en ég var líka hræddur við að stíga svona langt út fyrir þægindarammann. Án hvatningar frá Bjarna hefði ég líklega aldrei tekið þetta skref.

Ég ákvað að treysta tilfinningunni og fylgja innsæinu. Ég sagði upp starfi mínu hjá Icelandair og tók stökkið. Svo áður en ég veit af vorum við búnir að skrifa undir kaupsamninginn og við fáum afhent núna 1. janúar.“

Það getur verið erfitt að skipuleggja drauma sína fram í tímann. 

„Blómabúð hefur lengi verið á draumalistanum mínum en þó frekar sem fimmtán ára framtíðaráætlun. Þegar tækifærið kom til mín svona óvænt vissi ég að ég gæti ekki sleppt því. 

Ég hefði séð eftir því hefði ég sagt nei. Hæ Blóm verður hommalegasta blómabúðin í bænum,“ 

segir Bjarmi Fannar að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.