Skoðun

Sá „ó­háði“ kemur til byggða

Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Líkt og jólasveinar koma gjarnan til byggða í desember, þá birtist ávallt hinn „óháði“ fræðimaður prófessor emeritus Stefán Ólafsson í undanfara þingkosninga. Ólíkt jólasveinunum, sem alla jafna leika á alls oddi, hefur „óháði“ fræðimaðurinn allt á hornum sér. Að minnsta kosti hvað Sjálfstæðisflokkinn varðar.

Erindi fræðimannsins „óháða“ er gjarnan að benda þeim á hann hlýða eða lesa, á skattalegt ofbeldi Sjálfstæðisflokksins gagnvart launþegum í landinu og þá gjarnan gegn þeim lægst launuðustu.

Gengur meint ofbeldi út á það, að skattbyrði lægstu launa hafi hækkað. Máli sínu til stuðnings, nefnir hann gjarnan að lágmarkslaun hafi verið skattlaus, er staðgreiðsla skatta var tekin upp hér á landi. Á því herrans ári, voru lágmarkslaun í landinu heilar 41.700 krónur. En í dag eru þau um 409.000 kr.

Árið 1989 voru skattleysismörkin 44.183 kr. , eru í dag 214.839. kr á mánuði.

Ástæða meints ofbeldis er sögð sú að skattleysismörk hafi ekki fylgt launaþróun. Hefðu skattleysismörk fylgt launaþróun frá 1989, þá væru þau 442.346. kr. á mánuði. Enda launavísitalan hækkað um 901,17% frá árinu 1989.

Eðlilegast er að skattleysismörk fylgi verðlagsþróun, fremur en launaþróun. Á undanförnum 35 árum eða síðan staðgreiðslukerfi skatta var komið á eru þó frávik upp á 34. 000. kr. Engu að síður hlýtur hver maður sem ekki er „óháður“ fræðimaður, að sjá hversu fráleitt það væri að skattleysismörkin hefðu fylgt launaþróun. Í dag eru meðallaun í landinu ca. 850.000. kr. Hvað ætli skattprósenta manns á meðallaunum þyrfti að vera há, svo tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti launþega væru þær sömu og eru í dag? Svo maður tali nú ekki um skattprósentur á laun lækna og fleiri sem milljón og meira í tekjur.

Nýjustu sakfellingar fræðimannsins „óháða“ er aukin skattbyrði láglauna og millitekjufólks frá árinu 2013.

Frá árinu 2013 hafa lágmarkslaun hækkað um 100% og meðallaun um 85%. Samkvæmt verðlagsreiknivél Hagstofunnar hefur verðlag hækkað um 57,2% frá árinu 2013. Þannig að einhver er nú kaupmáttaraukningin. Í framhjáhlaupi má geta þess að verðlag hefur hækkað um 463% frá árinu 1989 á meðan launavístalan hefur hækkað eins og áður segir um 901,17% á sama tíma.

Það er því alveg ljóst að kjör launafólks hafa batnað töluvert þann tíma sem fræðimaðurinn „óháði“ notar til viðmiðunar þegar hann sakfellir Sjálfstæðisflokkinn fyrir skattaofbeldi á launafólki í landinu. Tekjuskattur á launafólk hefur lækkað, en því miður ekki nógu mikið til að fría launafólk það fengið hefur allt að 100% launahækkun undan aukinni skattbyrði. Sem er þó dropi í hafið við hliðina á allri þeirri kaupmáttaraukningu sem orðið hefur þennan tíma. Og það á vakt hins illa Sjálfstæðisflokks!

Fræðimaðurinn „óháði“ ætti kannski að reikna út skattbyrði fasteignaskatta í Reykjavík, þar sem Samfylkingin ræður ríkjum, á laun Reykvískra fasteignaeigenda frá árinu 2013.

Höfundur er formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×