Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Sindri Sverrisson skrifar 2. nóvember 2024 10:17 Axel Óskar Andrésson er farinn frá KR. Mynd: KR Miðvörðurinn sterkbyggði Axel Óskar Andrésson og KR hafa komist að sameiginlegri ákvörðun um að hann yfirgefi félagið.
Þetta staðfesti Axel Óskar við Vísi í dag. Hann gekk í raðir KR í mars, þegar hann sneri heim til Íslands úr atvinnumennsku, og skrifaði þá undir samning sem gilda átti til loka tímabilsins 2026. Riftunarákvæði var hins vegar í samningnum sem gerði kleift að Axel yfirgæfi Vesturbæinn nú þegar leiktíðinni er lokið. Axel segist í samtali við Vísi þegar kominn með nokkur tilboð frá félögum hérlendis. Fastlega má búast við því að eitt þeirra sé úr Mosfellsbænum, þar sem hann er uppalinn, en Afturelding spilar í fyrsta sinn í efstu deild á næstu leiktíð. Þá kveðst Axel einnig hafa fengið eitt tilboð erlendis frá. Axel, sem er 26 ára gamall, hafði leikið í tíu ár erlendis þegar hann kom til KR í mars. Fyrstu árin lék hann í Englandi en svo einnig í Noregi, Lettlandi og Svíþjóð. Þá á hann að baki 2 A-landsleiki og 46 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Axel lék 21 deildarleik og tvo bikarleiki fyrir KR í sumar og skoraði samtals fjögur mörk. Hann kom ekkert við sögu á lokakafla mótsins en síðasti leikurinn hans í KR-treyjunni var 16. september.
Besta deild karla KR Mest lesið „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Körfubolti Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern Fótbolti Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Fótbolti HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Fótbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira