Viggó með flesta tapaða bolta í þýsku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2023 14:30 Viggó Kristjánsson er að búa mikið til í sóknarleik SC DHfK Leipzig en það þýðir líka mikið af töpuðum boltum. Getty/Jan Woitas Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson er sá leikmaður sem hefur tapað flestum boltum í þýsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni samkvæmt opinberri tölfræði hennar.
Viggó hefur tapað 53 boltum í fyrstu sautján leikjum Leipzig og er því með 3,1 tapaðan bolta í leik. Hann hefur tapað tveimur boltum fleiri en Svisslendingurinn Manuel Zehnder hjá Eisenach. Ábyrgðin er vissulega mikil á Viggó í sóknarleik Leipzig en hann er fimmti markahæsti leikmaðurinn í Bundesligunni með 105 mörk í 17 leikjum eða 6,2 mörk í leik. Viggó hefur einnig gefið 40 stoðsendingar og er því búinn að koma að 145 mörkum Leipzig í vetur eða 8,5 í leik. Hann er líka með góða skotnýtingu eða 65 prósent. Það fylgir þó sögunni að Viggó hefur aðeins tapað einum bolta í síðustu tveimur leikjum sínum og með sama áframhaldi verður okkar maður kominn úr þessu óeftirsótta fyrsta sæti áður en við vitum af. Næsti leikur Leipzig er á móti Wetzlar í kvöld. Það má nálgast tölfræði þýsku deildarinnar hér.
Þýski handboltinn Mest lesið Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Handbolti Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Enski boltinn Rondey rakaði af sér hárið til stuðnings Skúla Körfubolti Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Enski boltinn Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Enski boltinn Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Handbolti Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Enski boltinn Annar leikmaður liðsins sem missir barn á síðustu mánuðum Sport Amma, Anníe og hinar eftirminnilegustu stundirnar á ferli Katrínar Tönju Sport Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri Fótbolti Fleiri fréttir Frammistaðan á EM skilaði stelpunum í efri styrkleikaflokk í fyrsta sinn Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Skýrsla Vals: Bölvaður Berlínarmúrinn „Fyrir mig var þetta gríðarlega erfitt“ Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði „Ákveðinn í að láta þennan leik ekki sitja í mér“ „Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Elísa veik og ekki með Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í „Við sjáum möguleika þarna“ „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ „Förum léttar inn í þennan leik“ Leikdagur í Innsbruck: Hitum logsuðutækin Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ „Þá rennur stressið af manni“ Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum „Gæsahúð allsstaðar“ Hugsaði lítið og stressaði sig minna Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Sjá meira