Rafíþróttir

Saga með þægi­legan sigur

Snorri Már Vagnsson skrifar
Kristófer Daði “ADHD” Kristjánsson og Jón Kristján “j0n” Jónsson mættust í Ljósleiðaradeildinni.
Kristófer Daði “ADHD” Kristjánsson og Jón Kristján “j0n” Jónsson mættust í Ljósleiðaradeildinni.

Saga hafði betur gegn ÍA í Ljósleiðaradeildinn í Counter-Strike fyrr í kvöld, en liðin mættust á Mirage þar sem Saga byrjaði leikinn í vörn.

ÍA fóru hratt af stað og sigruðu fyrstu tvær loturnar en Saga náði svo að sigra sína fyrstu lotu og jöfnuðu leikinn í kjölfarið í 2-2. Áfram sigruðu ÍA og komust í 5-2 áður en ÍA náði aftur lotu.

Saga leiddu fyrri hálfleikinn en ÍA náðu þó að halda í framan af en fóru þó eftir á í hálfleikinn.

Staðan í hálfleik: 8-4

Í forystunni stilltu ÍA-menn sér í vörn og sigruðu fyrstu lotuna. Lotan reyndist þó sú síðasta sem ÍA fundu sigur í þar sem Saga sigldu burt með leikinn og sigruðu það sem eftir lifði leiks.

Lokatölur: 13-5

Saga koma sér því upp fyrir Young Prodigies og eru jafnir þeim á stigum með tófl slík. ÍA sitja enn í áttunda sæti með átta stig.






×