Rafíþróttir

Þórsarar upp í toppslagnum

Snorri Már Vagnsson skrifar
Ármann náðu ekki að klára endurkomu í leikinn eftir að lenda 12-3 undir.
Ármann náðu ekki að klára endurkomu í leikinn eftir að lenda 12-3 undir. Rafíþróttasamband Íslands

Þórsarar sigruðu Ármann í Ljósleiðaradeildinni fyrr í kvöld.

Leikurinn fór fram á Overpass og hófu Þórsarar leikinn í vörn. Ármann voru lengi að koma sér af stað en Þór tóku fyrstu fjórar lotur leiksins áður en Ármann fundu sína fyrstu, 4-1. Þór gáfust þó ekki upp og sigruðu aðrar þrjár lotur, staðan þá orðin 7-1. Ármann sigruðu aðeins eina lotu til viðbótar í fyrri hálfleik þar sem Þór var allt í öllu.

Staðan í hálfleik: 10-2

Ármann stillti sér upp í vörn en Þórsarar voru ekki lengi að koma sér upp í 12 lotusigra, staðan þá 12-3. Við tók sería sigra frá Ármanni en þeir tóku 7 lotur í röð þar sem Ofvirkur leiddi liðið sitt til dáða. Endurkoma Ármanns var þó of lítið of seint og Þór fundu loks sigurinn.

Lokatölur: 13-10

Þórsarar eru því jafnir Dusty á toppi deildarinnar eftir óvænt tap þeirra gegn Breiðabliki fyrr í kvöld. Ármann eru enn öruggir í þriðja sæti með fjórtán stig.






×