Rafíþróttir

Saga lagði ÍBV í æsi­spennandi botnbaráttu

Snorri Már Vagnsson skrifar
sagaíbv

Saga og ÍBV mættust í síðasta leik kvöldsins og spiluðu liðin á Ancient.

Saga áttu góða byrjun í leiknum og voru fljótir að koma sér í 4-1 en sókn ÍBV náði að halda sér inni í leiknum snöggt og jöfnuðu leikinn í stöðuna 4-4 eftir átta lotur. ÍBV náðu forskoti í örskotsstund en Saga fann svo sigurleiðir að nýju og tóku allar lotur nema eina sem eftir voru af fyrri hálfleik.

Staðan í hálfleik: 9-6

ÍBV komu sér í varnarstöður í seinni hálfleik og hófu leikinn afar vel. Allt var orðið jafn í nítjándu lotu og staðan orðin 9-9. Eftir óreiðumikla lotu náði Saga forystunni að nýju. Slokkna virtist undir ÍBV í kjölfarið eftir góða byrjun í seinni hálfleik en Saga sigruðu lotu eftir lotu. Staðan var orðin 14-9 áður en ÍBV sigruðu loksins lotu, staðan þá 14-10 og líflína komin fyrir Eyjamenn.

Áfram héldu loturnar að rata til ÍBV og komust þeir í stöðuna 14-13 áður en Saga náðu loks að komast á úrslitastig. Loks fundu Saga sigurlotuna og eftir hetjulega baráttu Eyjamanna þurftu þeir að sætta sig við enn eitt tapið.

Lokatölur: 16-13

Saga jafna Atlantic á stigum en ÍBV eru enn á botni deildarinnar án sigurs og fara því sigurlausir í pásuna eftir að keppast við öll lið deildarinnar einu sinni.






×