Skoðun

Þetta er ekki hægt lengur

Svanhildur Hólm Valsdóttir skrifar

Það er hægt að segja ýmislegt um stríð Eflingar gegn almennri skynsemi, þær aðferðir sem er beitt og áhrifin sem þær hafa. En til að afmarka efnið verður hér einungis fjallað um það sem kalla mætti athyglisvert þolpróf á íslenskri vinnumarkaðslöggjöf. Verkfallsvopninu er beitt með afar sértækum og óforskömmuðum hætti gegn einstökum fyrirtækjum. Fámennir hópar eru látnir leggja niður störf til að valda sem mestu tjóni með sem minnstum tilkostnaði fyrir sjóði Eflingar. Embætti ríkissáttasemjara, sem í nágrannalöndunum er lykilembætti með skýrt umboð og valdheimildir, hefur reynst jafnvel enn valdalausara en áður var talið. Niðurstaðan er sú að löggjöfin er ónýt, viðnámið ekkert og og sá stjórnlausasti stjórnar.

Þrátt fyrir að félagsdómur, héraðsdómur og landsréttur hafi staðfest heimild ríkissáttasemjara til að leggja fram miðlunartillögu þegar útséð er um að samningar náist, virðist Eflingu vera að takast að gera það verkfæri bitlaust með því að hafna að leggja fram kjörskrá. Nýtur Efling þar reyndar stuðnings landsréttar, með vísan í heimildarskort í götóttri vinnulöggjöf. Í ofanálag hefur félagið meira að segja haldið því fram að slík skrá sé ekki til. Það vekur óneitanlega nokkra furðu að stéttarfélag, sem gengur jafnhart fram í þágu félagsmanna sinna, viti ekki fyrir hverja það er að berjast.

Tilraunastarfsemi í kjaradeilum, sem stjórnvöld hafa leyft að þróast óáreitt undanfarin ár, hefur leitt til þess að þau sitja nú með vandann í fanginu. Vandséð er að verkföllum ljúki án lagasetningar, en það er lausn sem dugir til skamms tíma. Meira þarf til, enda er stór hluti ástæðunnar fyrir þessu kafkaíska ástandi sem við stöndum frammi fyrir að kjarkinn hefur vantað til að gera nauðsynlegar breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni. Hvorki hefur verið gerð gangskör að því að koma í veg fyrir misnotkun á verkfallsvopninu né hafa ríkissáttasemjara verið veittar nægar heimildir og umboð til að gegna einhverju öðru hlutverki en að vera fundarstjóri í Karphúsinu, - þegar aðilar leyfa honum það.

Tómlæti löggjafans gagnvart þeirri frumskyldu sinni að setja lög sem virka og breyta lögum þegar þau gera það ekki verður að linna. Þótt mikilvægir samningar hafi náðst við ábyrga hluta almenna vinnumarkaðarins renna þeir út eftir ár og það er ekki hægt að bíða og vona bara það besta. Gott ef ekki hefur verið stofnaður spretthópur af minna tilefni.

Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×