Skoðun

Sam­bands­lausir þjónar þjóðarinnar

Flosi Eiríksson skrifar

Í Lífskjarasamningunum vorið 2019 á almennum vinnumarkaði var samið um hagvaxtarauka – hann var hugsaður þannig að ef það væri hagvöxtur í þjóðfélaginu þá hækkuðu laun, en meira hjá þeim sem taka laun samkvæmt töxtum. Með þessari aðferð er verið að reyna að tryggja að hagvöxtur leiði ekki bara til launaskriðs og hækkanna hjá þeim hæstlaunuðu sem oftast semja um sín laun við sjálft sig heldur til alls þorra almennings.

Hagvaxtaraukinn var nýmæli og hefur var eitt af þeim atriðum sem var hvað mest kynnt og rætt um í framhaldi af undirritun samningsins.

Þetta ákvæði í kjarasamningum og umræðan um það virðist hafa farið fram hjá Seðlabankanum og hann hreinlega ekki gert ráð fyrir hagvaxtaraukanum í spám sínum á undanförnum misserum.Þangað til á fundi peningastefnunefndar í vikunni þar sem Seðlabankastjóri fann honum allt til foráttu og sakaði þá sem undir þetta skrifuðu um alvarleg mistök og ætla að leiða einstakar hörmungar yfir þjóðina! Hagvaxtaraukinn ætti þó að hafa verið Seðlabankanum ljós, því það lá fyrir að hann hefði virkjast í einhverjum mæli samkvæmt öllum spám bankans eftir heimsfaraldur. Fyrir vikið mætti spyrja hvort bankinn hafi einfaldlega farið of bratt fram í vaxtalækkunum og blásið í eignabólur?

Látum það liggja á milli hluta hvaða umfjöllun eða afleiðingar ummæli Seðlabankastjóra af þessum toga myndu leiða af sér í þróuðum vestrænum ríkjum, en viðbragðsleysið hér á landi segir kannski eitthvað um stöðu Seðlabankans og vigt hans í umræðunni.

Seðlabankastjóri var spurður út í það á fundinum hvort ekki væri ástæða til að efna til samráðs við aðila vinnumarkaðarins.Bæði með tilliti til hagvaxtaraukans og einnig tilundirbúnings fyrirkjaraviðræður á komandi ári. Verri hugmynd virtist hann ekki hafa heyrt – Seðalbankinn gæti ekki verið að efna til samtals ,,út af einhverjum kjarasamningum“ þau þrjú sem sátu þarna í pallborði væru ,,þjónar þjóðarinnar“ og þau ein bæru samkvæmt lögum ábyrgð á verðstöðugleika, heill og hamingju þjóðarinnar og hananú!

Við eigum semsagt að setja allt okkar traust á stofnun sem virðist ekki hafa áttað sig grunnatriðum í kjarasamningum sem skrifað var undir 2019, hefur engan áhuga á samtali eða samráði við samtök launafólks og SA og lítur svo á að efnislegar ábendingar um hagstjórn og vaxtastefnu feli í sér að fólk sé efnahagslega ólæst, hafi gert margvísleg mistök og eigi bara að hafa hægt um sig meðan ,,þjónar þjóðarinnar“ taka umsamdar kjarabætur af fólkinu í landinu.

Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×